Feykir - 27.04.2016, Side 11
16/2016 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina hefur örugglega tíma
til að tékka á grillinu fyrir sumarið...
Spakmæli vikunnar
Ef þú býrð yfir þekkingu, leyfðu öðrum að kveikja
á kertum sínum í henni. – Margaret Fuller
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Krossgáta
salati (setja smá olíu í vatnið svo
spaghettíið festist síður saman).
EFTIRRÉTTUR
Raspterta
2 egg
2 dl sykur
3 dl ljóst brauðrasp (ekki þetta
tvílita eins og PAXO)
1 tsk lyftiduft
60 g smjör eða smjörlíki, brætt
3 ½ msk mjólk
Aðferð: Sykur og egg hrærð
aðeins saman, restin af hrá-
efnunum sett útí og hrært örlítið,
þar til þetta hefur blandast.
Eitt lausbotna mót u.þ.b. 24 sm
smurt í hliðum og bökunarpappír
settur í botninn (mjög mikilvægt
því annars festist kakan við
botninn). Bakað við 170°C gráður
í 15-17 mínútur. Kakan kæld á rist.
Karamellukrem:
3 dl rjómi
1 ½ dl sykur
3 tsk síróp (gamla góða Lyle´s
í grænu dósunum)
Aðferð: Soðið niður þar til sleifin
myndar far í botninn. Þegar
kremið hefur kólnað svolítið er 1
tsk vanilludropar og 45 g kalt
smjör sett útí og hrært. Hellt yfir
kökuna og hún borðuð með bestu
lyst.
Við keflinu tekur svo Ingibjörg
Margrét Valgeirsdóttir frá Daufá
í Lýtingsstaðahreppi, búsett á
Sauðárkróki.
Verði ykkur að góðu!
Steinabollur
& Raspterta
AÐALRÉTTUR
Steinabollur
(eins og Steini gaf okkur
uppskriftina)
2 hlutar svínahakk
1 hluti nautahakk
smávegis kjötfars
hafragrjón - meira en maður
heldur
mjólk
egg
oregano
karrí
(varla neitt) salt
Aðferð: Öllu hrært saman í
hrærivél. Mótað í bollur og sett í
smurt eldfast mót, bakað í ofni, þarf
ekki að steikja fyrst. Spaghettisósa,
úr tómötum, (ég kaupi oft
Dolomio) hituð í potti og hellt yfir
áður en bollurnar eru bornar fram.
Gott er að hafa meira en nóg af
sósunni því það fer ríflega af henni.
Borið fram með soðnu spaghettí og
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Það verður að teljast heiður
að vera boðið að vera með
þrátt fyrir að hafa ekki fasta
búsetu í Skagafirði, svo að ekki varð skorast undan þegar Vala
og Helgi báðu okkur að taka við og gefa lesendum einhverjar
uppáhalds uppskriftir,“ segja matgæðingarnir Árdís
Kjartansdóttir og Hjörleifur Jóhannesson í Stekkjarbóli í
Skagafirði.
„Fyrir valinu urðu tvær sem alltaf hitta í mark. Sú fyrri er
hversdagsmatur, fljótlegur og auðveldur að búa til og alltaf vinsæll,
ekki síst hjá unga fólkinu. Við köllum hann Steinabollur eftir
Þorsteini Kristleifssyni vini okkar frá Húsafelli, sem hefur haft það
á orði að hann kunni ekki að elda fyrir færri en tólf. Við höfum oft
notið þess. Uppskriftin sem hér birtist er grunnuppskrift til
aðlögunar eftir smekk hvers og eins.
Hin er gömul og góð, kemur frá nágrannakonu móðurömmu
minnar heitinnar, en þær bjuggu báðar í fyrsta raðhúsinu sem
byggt var á Akureyri og hefur alltaf verið kallað Langavitleysa. Sú
kona hét Ída Magnúsdóttir. Kakan heitir Raspterta en ég kalla hana
oft Íduköku. Þessi uppskrift er líklega um hundrað ára gömul en
kakan er mjög einföld og sérlega ljúffeng.“
Árdís og Hjörleifur matreiða Feykir spyr...
Ertu búin að fara
eða ætlar þú að fara
á einhverja viðburði
í Sæluvikunni?
Spurt á Facebook
UMSJÓN kristin@feykir.is
„Tónleikar Skagfirska
kammerkórsins sem við
sungum á voru hluti Sælu-
viku og svo vorum við á
stórkostlegu Kirkjukvöldi í
Sauðárkrókskirkju í gærkveldi.“
Solveig Lára Guðmundsdóttir
„Ég fór á kaffihlaðborðið
hjá Samgönguminjasafninu
á sumardaginn fyrsta, og
svo fer ég á Árið er - Lögin
sem lifa á föstudagskvöldið.
Mig langar líka að kíkja á
myndlistarsýningarnar, bæði
í Safnahúsinu og Gúttó, það er
aldrei að vita hvað maður lætur
sér detta í hug að gera
um helgina.“
Hrafnhildur Viðarsdóttir
„Já, auðvitað. Ég sá Fullkomið
brúðkaup á sunnudaginn,
alveg frábær sýning. Dagskrá
Sæluviku er fjölbreytt og
skemmtileg, margt sem ég
ætla að kíkja á.“
Halla Rut Stefánsdóttir
„Ég ætla að reyna að sjá
Fullkomið brúðkaup og svo
langar mig rosalega líka á Árið er
– Lögin sem lifa. Vonandi næ ég
að sjá bæði.“
Hildur Þóra Magnúsdóttir
Hahaha...
Hefurðu heyrt um smiðinn sem rak við
framan í forstjórann?
Vissurðu að...
... heilinn notar 20% af öllu súrefni og blóði líkamans?
... þegar þú ert vakandi framleiðir heilinn þinn næga orku til að knýja
litla ljósaperu?
... meinafræðingurinn sem krufði lík Albert Einstein stal heilanum úr
honum og geymdi í krukku í 20 ár?
Hjörleifur og Árdís.
MYND: ÚR EINKASAFNI