Feykir


Feykir - 27.04.2016, Page 12

Feykir - 27.04.2016, Page 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 16 TBL 27. apríl 2016 36. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Kiwanisklúbburinn Drangey Afhendir reiðhjólahjálma Á sumardaginn fyrsta afhenti Kiwanisklúbb- urinn Drangey krökkum í 1. bekk grunnskól- anna í Skagafirði reiðhjólahjálma. Fyrir afhendingu fór lögreglan yfir mikilvægi hjálma- notkunar og brýndi notkun hjálmanna fyrir börnum og fullorðnum. Fjörtíu hjálmar voru afhentir og að því loknu grilluðu Drangeyjarfélagar pylsur fyrir alla viðstadda. /KSE 560 VARMAHLÍÐ & 453 8888 www.velaval.is Verið velkomin VIÐ ERUM Í ALFARALEIÐ! FÓÐUR FYRIR ALLAN BÚPENING! „Við fundum fyrir mikilli jákvæðni bæjarbúa á þessum dögum“ Heilsudagar haldnir á Blönduósi í annað sinn Dagana 8. - 18. apríl sl. voru haldnir Heilsudagar á Blönduósi. Markmiðið með þeim er að hvetja fólk til að huga vel að heilsunni og hreyfa sig markvisst. Að sögn Erlu Jakobsdóttur íþróttafræðings og ÍAK einkaþjálfara og Róberts Daníels Jónssonar forstöðumanns í Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi var verkefninu ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu og tókst það svo sannarlega. „Aðstaðan sem við höfum á Blönduósi og í nágrenni bæjarins er eins og best verður á kosið til að stunda fjölbreytta hreyfingu, bæta heilsuna eða viðhalda góðri heilsu. Við eigum frábæra aðstöðu til íþróttaiðkunar og höfum fjölbreytt íþróttastarf fyrir alla aldurshópa. Hér á staðnum er einnig gott sjúkrahús og starfsfólk, sem skiptir okkur bæjarbúa miklu máli. Umhverfið er einstakt, ótal útivistarmöguleikar, stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir svo eitthvað sé nefnt,“ segja Erla og Róbert. „Við fundum fyrir mikilli jákvæðni bæjarbúa á þessum dögum og ferðamenn sem komu til okkar voru einnig mjög ánægðir með að vera boðið í sund og fá ferska ávexti í heita pottinn. Einstaklingar, fyrirtæki og íþróttafélög lögðu öll sitt að mörkum og allir tilbúnir að taka þátt,“ segja þau. Þetta er í annað sinn sem Heilsudagar eru haldnir á Blönduósi og segja Erla og Róbert þátttöku jafnt sem viðtökur hafa farið fram úr björtustu vonum. „Það er von okkar að þessir dagar séu komnir til að vera og verði hér eftir árlegur viðburður og sem eigi síðan eftir að stækka og dafna,“ segja þau að lokum. /BÞ Viða r Þó r Ás tvald sson Sölu stjór i Suð urlan d Sím i: 48 0 13 06 Gsm : 86 3 19 71 Netf ang: vida r@o lis.is GLÆSIBÆR GUESTHOUSE 551 Skagafjordur, Iceland Host: Ragnheidur Erla Björnsdóttir & Friðrik Stefánsson Tel. 00354 892 5530 E-mail: ragnheidur.bjorns@gmail.com Dæli Guesthouse Kristinn Rúnar Víglundsson Manager Tel: 0354 865 6074 l E-mail: daeli@daeli.is l w ww.daeli.is 531 Hvammstangi l Iceland Sigríð ur Ká radót tir FRAM KVÆM DAST JÓRI / MA NAG ER Borg armý ri 5, 5 50 Sa udár krók i, Ice land Tel: + 354 4 53 51 2 802 5 Fax: +354 453 5626 www .suta rinn. is gesta stofa @sut arinn .is :: s igga @sut arinn .is GISTING HESTALEIGAHESTAFERÐIR Elvar Einarsson & Fjóla Viktorsdóttir Syðra Skörðugil, 560 Varmahlíð, Iceland Tel: +354 893 8140 / +354 897 0611 info@sydraskordugil.is www.sydraskordugil.is HORSEBACK RIDING & ACCOMMODATION FYRIRTÆKI OG FERÐAÞJÓNUSTUAÐILAR tilboð á nafnspjaldaprenti H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is H Ö N N U N P R E N T N S K I L T A G E R Ð Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is MYND: FÉSBÓKARSÍÐA KIWANIS www.skagafjordur.is Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun um matsskyldu Bleikjukynbótastöð Hólum í Hjaltadal Sveitarfélagið Skagafjörður hefur tekið ákvörðun um að Bleikjukynbótastöðin á Hólum í Hjaltadal skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr 106/2000. Ákvörðunin liggur frammi hjá Sveitarfélaginu Skagafirði og á vefsíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is og á vefsíðu Skipulagsstofnunar www.skipulag.is. Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis - og auðlindamála til 20. maí 2016. Sauðárkróki 14. apríl 2016 Skipulags - og byggingarfulltrúi Jón Örn Berndsen

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.