Feykir


Feykir - 17.08.2016, Blaðsíða 11

Feykir - 17.08.2016, Blaðsíða 11
30/2016 11 metta. Sumir vilja líka meira eða minna af einhverju hráefni, það er nú það skemmtilega við svona salöt. Það er ekki hægt að eyðileggja neitt. Þetta ljúffenga salat hentar líka mjög vel sem forréttur. Besta fiskisúpa í heimi (fyrir fjóra) 1 púrrulaukur 2 stórar gulrætur 1 græn paprika 1 tsk karrý 1 fiskteningur og 1 grænmetisteningur Rúmlega 1 l vatn 3 meðalstórar kartöflur Brokkólí 1 rjómaostur með kryddjurtum 1 piparostur 2-4 ýsuflök Rækjur Aðferð: Grænmetið skorið smátt og steikt í smjöri. Salt og annað krydd eftir smekk (til dæmis tarragon – ég set þó bara salt og pipar). Kartöflur (hráar) skornar í bita og settar út í súpuna. Látið sjóða í smástund. Góður brúskur af brokkolí settur út í og látið malla í fimm mínútur. Ostarnir látnir bráðna í súpunni, það þarf að gefa piparostinum dálítið góðan tíma. Ýsa skorin í strimla og sett í pottinn. Gott að hafa rækjur líka. Súpan tekin af hellunni og látin standa í 3-5 mínútur Verði ykkur að góðu! KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina getur látið sig hlakka til haustsins.... Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Hahaha... Tengdó datt ofan í óskabrunn í gær. Ég hafði ekki hugmynd um að þeir virkuðu. Feykir spyr... Tókst þú þátt í einhverjum viðburðum í Skagafirði um helgina? Spurt á Facebook UMSJÓN kristin@feykir.is „Fór á sólóistakvöldið á Gærunni. Átti vinnuhelgi á sjúkrahúsinu. Grill og útivera í sumarbústað í Varmahlíð með fjölskyldunni.“ Þorbjörg Harðardóttir „Já, ég var á ættarmóti niðja Þórarins og Ólafar frá Ríp í Hegranesinu sem var gríðarlega skemmtilegt og vel heppnað eins og við var að búast með svona eðalfólki.“ Álfhildur Leifsdóttir „Já, ég kíkti á Sveitasæluna í Reiðhöllinni.“ Anna Steinunn Friðriksdóttir Já ég er búin að fara og skemmti mér mjög vel Þórey Sigurjóna Karelsdóttir Vissirðu að... ... stafrófið á Havaii inniheldur aðeins 13 stafi? ... Fanta með appelsínubragði er þriðja mest selda gosið í heiminum? ... górillur geta ekki synt? ... Ástralía er eina heimsálfan sem ekki inniheldur virk eldfjöll? Góður matur fyrir göngugarpa II Pestó pasta (af vefnum Ljúfmeti og lekkerheit) Pasta gott grænt pestó rauðlaukur, skorin fínt niður rauð paprika, skorin í bita tómatar (e.t.v. kirsuberjatómatar eða plómutómatar) fetaostur ferskur parmesan gott jurtasalt eða venjulegt salt pipar Aðferð: Pastað er soðið samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Þegar það er tilbúið er vatninu hellt af og pastað sett aftur í pottinn. Hrærið pestói saman við ásamt fetaostinum (mér þykir gott að stappa hluta af ostinum með smá af olíunni), rauðlauknum, paprikunni og tómötunum. Piprið og saltið og rífið ferskan parmesan ost yfir. Berið fram með hvítlauksbrauði. Einfalt salat með melónu og hráskinku (af vefnum MS-Gott í matinn) Hráskinka melóna, gjarnan vel þroskuð kantalópa Mozzarella kúla Salatblöð að eigin vali Ólífuolía Sítróna Sjávarsalt og nýmalaður pipar Aðferð: Hráskinkan er vafin um kantalópusneiðar, gott blaðsalat sett í botninn á fati eða stórum diski. Mozzarella kúlan rifin yfir salatið. Kryddað með sjávarsalti og pipar, dálítilli ólífuolíu hellt yfir ásamt dassi af safa úr sítrónu. Að síðustu eru hráskinkuvafðar melónu- sneiðarnar lagðar yfir. Hlutföllin í salatinu eru algjört aukaatriði. Þið gerið bara eins mikið og ykkur finnst gott og þurfið fyrir þann fjölda af fólki sem þarf að MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN kristin@feykir.is Eins og ég gat um í matarþætti á dögunum eyði ég sumarfrísdögunum gjarnan í gönguferðum. Líkt og það er mikilvægt að velja staðgóðan morgunverð í slíkum ferðum er fátt notalegra en að snæða góðan kvöldverð að dagleið lokinni. Meðfylgjandi uppskriftir eru af góðum réttum sem bornir hafa verið á borð í slíkum ferðum, þar sem kokkurinn er ekki síður mikilvægur en leiðsögumaðurinn og gönguskórnir. Feykir mælir með Salat með melónu og hráskinku. MYND: MS.IS Tilvitnun vikunnar Við erum öll i ræsinu en sum okkar horfum upp til stjarnanna. - Oscar Wilde „Nei, ég gerði það ekki.“ Sigurður Jóhann Árnason

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.