Feykir


Feykir - 17.08.2016, Blaðsíða 3

Feykir - 17.08.2016, Blaðsíða 3
30/2016 3 Feykiflottur Liggurðu á frétt? Áttu skemmtilega mynd sem gaman væri að birta í Feyki? Hafðu samband > feykir@feykir.is 350 ár frá fyrstu prentun Passíusálmanna Hólahátíð um helgina Hin árlega Hólahátíð var haldin á Hólum í Hjaltadal um helgina. Hófst hún á föstudaginn með tónleikum í Hóladómkirkju þar sem barokksveit Hólastiftis kom fram, en í ár voru Hólahátíðin og Barokkhátíðin sameinaðar í eina hátíð. Á hátíðinni var þess minnst að 350 ár eru liðin frá því að Passíusálmar sr. Hallgríms Péturssonar komu fyrst út á prenti og af því tilefni hefur sýning á útgáfum sálmanna verið opin í Auðunarstofu allan ágústmánuð. Á laugardaginn var gengin pílagrímaganga frá Gröf á Höfðaströnd heim að Hólum og að henni lokinni var helgistund í Hóladómkirkju og kvöldverður Undir Byrðunni. Á sunnudaginn hófst dagskrá með messu í Hóla- dómkirkju. Sr. Hildur Eir Bolladóttir predikaði en fyrir altari þjónuðu sr. Halla Rut Stefánsdóttir sóknar- prestur, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup á Hólum og sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson biskup. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir lýsti blessun. Kór Hóladómkirkju söng, undir stjórn Jóhanns Bjarnasonar og Helena Guðlaug Bjarnadóttir sópran söng einsöng. Félagar úr barokksveit Hóla- stiftis, þau Lára Sóley Jóhannsdóttir, Ásdís Arnardóttir og Eyþór Ingi Jónsson, léku á hljóðfæri. Að messu lokinni var boðið upp á hátíðarkaffi í Hólaskóla. Var síðan haldin samkomu í Hóladóm- kirkju þar sem sr. Solveig Lára flutti ávarp og forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson flutti hátíðar- ræðu, eins og nánar er greint frá á forsíðu. Meðfylgj- andi myndir tók blaðamaður Feykis á Hólum á sunnu- daginn. /KSE Vikuna 7.–13. ágúst var rúmum 686 tonnum landað á Skagaströnd, tæpum 276 tonnum var landað á Sauðárkróki, tæpum 14 tonnum á Hvammstanga og rúmum 20 tonnum á Hofsósi. Alls gera þetta um 1.000 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE Aflatölur 7.–13. ágúst á Norðurlandi vestra Um þúsund tonn að landi SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG HVAMMSTANGI Brák HU 8 Handfæri 736 Harpa HU 4 Dragnót 13.140 Alls á Hvammstanga 13.876 SKAGASTRÖND Arnar HU 1 Botnvarpa 524.088 Auður HU 94 Handfæri 813 Bjartur í Vík HU 11 Landb.lína 792 Blær HU 77 Landb.lína 381 Bogga í Vík Grásleppunet 817 Dagrún HU 121 Þorskfisknet 7.455 Dísa HU 91 Handfæri 225 Dúddi Gísla GK 48 Lína 6.250 Eyjólfur Ól. HU 100 Handfæri 3.024 Fengsæll HU 56 Grásleppunet 574 Geiri HU Handfæri 802 Guðrún R. HU 162 Handfæri 784 Gyðjan HU 44 Handfæri 663 Hafdís HU Handfæri 807 Hafrún HU 12 Dragnót 25.964 Húni HU 62 Þorskanet 814 Jenný HU 40 Handfæri 548 Kambur HU 24 Handfæri 394 Óli Gísla GK 112 Lína 2.671 Sandfell SU 75 Lína 38.123 Sighvatur GK 57 Lína 66.497 Skalli HU 33 Handfæri 805 Svalur HU 124 Handfæri 793 Sæfari HU 200 Landb. lína 933 Sæunn HU 30 Handfæri 788 Víðir EA 423 Handfæri 814 Alls á Skagaströnd 686.619 SAUÐÁRKRÓKUR Badda SK 114 Þorskfisknet 476 Fannar SK 11 Handfæri 428 Farsæll SH 30 Rækjuvarpa 24.547 Gammur SK 12 Þorskfisknet 2.749 Gjávík SK 20 Handfæri 366 Hafey SK 10 Handfæri 721 Helga Guðm. SK 23 Handfæri 338 Klakkur SK 5 Botnvarpa 96.285 Maró SK 33 Handfæri 286 Málmey SK 1 Botnvarpa 147.023 Már SK 90 Handfæri 773 Óskar SK 13 Handfæri 605 Sæborg HU 80 Handfæri 473 Vinur SK 22 Handfæri 160 Ösp SK 135 Handfæri 573 Alls á Sauðárkróki 275.803 HOFSÓS Álborg SK 88 Handfæri 654 Ásmundur SK 123 Landb. lína 2.082 Bíldsey SH 65 Landb. lína 8.147 Geisli SK 66 Línutrekt 3.317 Skáley SK 32 Handfæri 379 Von SK 21 Handfæri 320 Þorgrímur SK 27 Landb.lína 5.211 Samtals 20.110 Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls Valgarðs B. Guðmundssonar sem lést 9. júlí sl. Rut Valdimarsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.