Feykir - 16.11.2016, Blaðsíða 2
2 43/2016
Nú hefur reiða konan rasað út og skilningsríki maðurinn talað
og mál að taka upp léttara hjal. Reyndar hef ég verið hugsi yfir af
hverju allir eru svona reiðir á
samfélagsmiðlum sem raun ber
vitni. Erum við ef til vill meira
reið og látum allt fara í taugarnar
á okkur af því það er svo auðvelt
að vera reiður á samfélagsmiðlum?
Sjálf hef ég staðið mig að hvoru
tveggja, að vera reiða konan og
reita saklaust fólk til reiði. Og þarf
nú kannski ekki mikið til. Ég hef
stundum óþarflega kaldhæðinn
húmor og það eitt og sér hefur
reitt fólk til reiði. Jafnvel fyrir
daga samfélagsmiðlanna.
Velti líka fyrir mér hvort öll þessi fjölmiðlun í samfélags-
miðlum geri okkur upplýstari um eitthvað sem máli skiptir, eða
geri okkar frekar reiðari yfir því sem litlu máli skiptir. Færi til
dæmis allt á hliðina ef einhver fær lélega afgreiðslu í Toy´s us eða
ef dagskránni hjá RÚV seinkar um tvær mínútur, ef enginn væri
að tjá sig um það á Twitter eða Instagram? Eitt er víst að það hefur
verið gósentíð hjá nettröllum að undanförnu. Fyrst kosninga-
slagurinn, svo kosningaúrslitin, svo stjórnarmyndun, þá Trump
og Hillary og loks hið árlega skúbb um íkveikjuna í jólageitinni.
Reyndar óttast ég að við séum að gera kjánum eins og þeim
sem kveikja í jólaskrauti greiða með því að veita því athygli. Ég er
þannig innrætt að þegar vefmiðlar birta smelludólga hleypur í
mig þrjóska og ég smelli ekki á þá. Til að útskýra orðið
smelludólgur þá eru það fyrirsagnir sem fá fólk til að smella á
viðkomandi „frétt“, með þeim afleiðingum að vefmiðillinn fær
fleiri smelli og þar með betra sæti á vefmælingalistum og getur þá
ef til vill selt fleiri auglýsingar. Þarna má nefna fréttir á borð við
atriði Borgardætra í Kastljósinu sem hneykslaði landann upp úr
skónum. Eða allar „hún gerði þetta og þá gerðist þetta“- grein-
arnar, sem innihalda yfirleitt fróðleik um hvernig þú getur
blandað töfradrykki úr túrmerik og losnað við öll aukakílóin eins
og vindurinn. Ef þessir töfradrykkir væru til og virkuðu væru
sennilega engin offituvandamál, en það er önnur saga.
Svo eru það allar fréttirnar um hverjir voru hvar með hverjum.
Þar lendi ég enn og aftur í vandræðum, því ég veit yfirleitt ekki
hvaða fólk er verið að tala um! Ég vissi heldur ekki, áður en ég
fletti gömlum árgöngum af Séð og heyrt á biðstofu á sjúkrahúsinu
á Akureyri – þar sem ég, nota bene, beið 40 mínútur fram yfir
gefinn tíma í myndatöku- að ræktardurgur og djammdrottning
væru starfsheiti. Skyldu þau vera lögvernduð?
Ég held að upplýsingaflæðið sem er alla að drepa, sem og
snjallsímavæðingin, hafi ef til vill leitt til offramleiðslu á „ekki
fréttum.“ Sem aftur verður kannski til þess að ef fólk ætlar að ná
athygli verður það að toppa vitleysuna í næsta manni. Veit ekki
alveg hvort að það að kveikja í Ikea-geitinni eina ferðina enn er
endilega rétta leiðin til þess. En hitt veit ég að ég varð hálfmeyr
þegar einhver fésbókarvina minna setti krúttlegan prjóna-status á
vegginn sinn daginn sem Trump vann forsetakosningarnar í
Bandaríkjahreppi.
Kristín S. Einarsdóttir,
á rólegum og rómantísku nótunum
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdótti, kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
LEIÐARI
Af jólageitum
og smelludólgum
Vikuna 6.–12. nóvember var tæpum 410 tonnum landað á Skagaströnd og tæplega 22 tonnum
á Hofsósi. Tæpum 345 tonnum var landað á Sauðárkróki. Alls gera þetta um 775 tonn á
Norðurlandi vestra. /KSE
Aflatölur 6.–12. nóvember 2016 á Norðurlandi vestra
Hátt í 800 tonnum landað
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landb. lína 6.096
Alda HU 112 Landb. lína 8.592
Auður HU 94 Handfæri 5.038
Álfur SH 414 Landb. lína 9.534
Bergur sterki HU 17 Landb. lína 2.119
Bogga í Víki HU 6 Landb. Lína 2.122
Dísa HU 91 Botnvarpa 732
Dúddi Gísla GK 48 Lína 9.590
Fengsæll HU 56 Landb. lína 1.986
Fjölnir GK 157 Landb. lína 97.329
Guðbjartur SH 45 Landb. lína 11.907
Hafrún HU 12 Dragnót 6.330
Hjördís HU 16 Handfæri 10.770
Hulda HF 27 Landb. lína 9.257
Kristinn SH 812 Landb.lína 24.283
Kristín GK 457 Landb. lína 80.419
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 315
Páll Jónsson GK 7 Landb. lína 90.719
Stella GK 23 Landb.lína 9.067
Sæhamar SH 223 Landb. lína 1.169
Særif SH 25 Landb.lína 22.082
Alls á Skagaströnd 409.456
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 9.127
Fannar SK 11 Landb. lína 2.587
Klakkur SK 5 Botnvarpa 128.224
Málmey SK 1 Botnvarpa 187.964
Þorleifur EA 88 Dragnót 16.349
Alls á Sauðárkróki 344.251
HOFSÓS
Bíldsey SH 65 Lína 14.595
Þorleifur EA 88 Dragnót 7.020
Alls á Hofsósi 21.615
Elínborgar-
dagur haldinn
hátíðlegur
Skagaströnd
Árlegur Elínborgardagur
Höfðaskóla á Skagaströnd
var haldinn hátíðlegur í
síðustu viku . Dagurinn er
haldinn í tilefni Dags
íslenskrar tungu sem er 16.
nóvember á fæðingardegi
Jónasar Hallgrímssonar og
haldinn hefur verið
hátíðlegur í skólum landsins
frá árinu 1996.
Í Höfðaskóla er dagurinn
tileinkaður Elínborgu Mar-
gréti Jónsdóttur sem starfaði
við skólann til fjölda ára og
ánafnaði hún sveitarfélaginu
bókasafn sitt. Á Elínborgar-
degi fluttu nemendur, fyrir
fullum sal áheyrenda, fjöl-
breytt efni í bundnu sem
óbundnu máli. Öll atriðin
áttu það sammerkt að vera til
heiðurs íslenskri tungu. Að
lokinni hátíðardagskrá
gæddu gestir sér á ljúffengum
veitingum. /PF
Fjölmenni á tónleikunum
Minningarhátíð um Jónas Tryggvason
Um síðustu helgi hélt
Tónlistarskóli Austur-
Húnavatnssýslu skemmtilega og
vel heppnaða tónleika í
Blönduóskirkju til minningar um
Jónas Tryggvason en í ár eru eitt
hundrað ár liðin frá fæðingu
hans. Á Húna.is segir að
fjölmenni hafi verið á
tónleikunum, kirkjubekkirnir
þétt setnir og góður rómur
gerður að öllu því sem fram fór.
Frá unga aldri söng Jónas með
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
var stjórnandi og samdi lög fyrir
kórinn og félaga sína þar.
Sönghóp karla úr Lionsklúbbi
Blönduóss æfði hann um árabil,
kenndi söng við barnaskólann
og spilaði við helgiathafnir á
Héraðshælinu. Hann var braut-
ryðjandi við stofnun Tónlistar-
félags Austur-Húnvetninga og
umsjónarmaður með tónlistar-
skóla héraðsins meðan kraftar
hans entust. /PF
Afþakka hækkun á launakjörum
Sveitarstjórnarfulltrúar í Skagafirði
Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar
í síðustu viku var samþykkt að afþakka þá
launahækkun sem kjörnum fulltrúum í stjórnum,
ráðum og nefndum á vegum sveitarfélagsins ber,
eftir að kjararáð ákvað að hækka þingfararkaup
um 44% þann 29. október síðastliðinn.
Viðmið um grunnlaun, þóknanir og starfs-
tengdan kostnað eru sett sem hlutfall af þing-
fararkaupi hverju sinni og hefði hækkunin því
leitt til hækkunar á áðurnefndum þóknunum. Í
bókun byggðarráðs segir m.a.: Samkvæmt
samþykkt um kjör fulltrúa í stjórnum, ráðum og
nefndum Sveitarfélagsins Skagafjarðar þá eru viðmið
um grunnlaun, þóknanir og starfstengdan kostnað
sett sem hlutfall af þingfararkaupi á hverjum tíma.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar vísar því til
sveitarstjórnar að hafna hækkun á launakjörum full-
trúa í stjórnum, ráðum og nefndum sveitarfélagsins,
sem leiðir af 44% hækkun þingfararkaups sem kjara-
ráð úrskurðaði um þann 29. október sl. /KSE /PF
Frá Jónasarhátíð. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. MYND: JÓN SIGURÐSSON