Feykir - 16.11.2016, Blaðsíða 6
6 43/2016
Á dögunum stóðu listamenn
í Textílsetri Íslands á
Blönduósi fyrir sýningu í
Bílskúrs gallerí, en slíkar
sýningar eru haldnar í
hverjum mánuði á vegum
setursins. Sýningin var haldin
í lok október og þá sýndu níu
listamenn frá ýmsum
löndum. Þeirra á meðal er
Vanessa Ager frá Kanada, en
hún hefur dvalið í
Textílsetrinu áður og
heillaðist af staðnum. Raunar
varð hún svo heilluð að nú
hefur hún fest kaup á íbúð á
Blönduósi og hyggst flytja
þangað um leið og tilskilin
atvinnu- og dvalarleyfi
liggja fyrir.
Blaðamaður Feykis heimsótti
listamennina þegar þeir voru
að leggja lokahönd á upp-
setningu sýningar. Þar gat að
líta fjölbreytt og metnaðarfullt
handverk, þar sem textíll birtist
í fjölbreyttum myndum.
Vanessa sýndi blaðamanni
jafnframt aðstöðuna sem lista-
mennirnir hafa í Textílsetrinu.
Þar er stór vinnustofa ásamt
vefstofu, sem færir mann ára-
tugi aftur í tímann, til þess tíma
þegar Kvennaskólinn starfaði.
Listamennirnir dvelja í heima-
vist gamla Kvennaskólans og
geta unnið að list sinni þegar
þeim hentar. Þeir koma frá
ýmsum löndum og dvelja
flestir þrjá mánuði í Textíl-
setrinu, en það er þó sveigjan-
legt hversu lengi er dvalið.
Vanessa segist hafa frétt af
Textílsetrinu gegnum vinkonu
sína og sló hún til, þar sem
hana hafði alltaf langað að
koma til Íslands. „Ég var mjög
hissa þegar ég fann listamiðstöð
sem sérhæfði sig í textíl, ég átti
ekki von á slíku. Ég hef fengist
við textíl allt mitt líf og alist
upp kringum slíkt, en mamma
er bútasaumskona,“ segir hún.
Innblásturinn segist Vanessa
sækja í hafið. Eftir sýninguna
var hún á förum til Kanada en
sagðist ekki geta beðið eftir að
komast aftur til Íslands og
Vanessa Ager heillaðist af Blönduósi
og ætlar að setjast þar að
Textílsetrið veitir
frábær tækifæri til
listsköpunar
UMFJÖLLUN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
halda áfram að vinna að
listsköpun sinni.
Á sýningunni sýndi Vanessa
meðal annars garn sem hún
hefur sjálf spunnið. Sýningar-
munina segist hún taka með
sér til Kanada og setja upp á
sýningu þar, en þeir verði ef til
vill til sölu síðar. Hún er hrifin
af íslensku ullinni og segir
sauðalitina heilla sig mest.
„Þetta er uppáhalds efnivið-
urinn minn,“ segir hún um leið
og hún sýnir blaðamanni mis-
munandi eiginleika garnsins
sem hún hefur spunnið, og þar
er ullin uppistaða en hún
blandar hana þó með öðrum
hráefnum.
Á sýningunni í Bílskúrs
gallerí voru afar fjölbreytt verk,
eins og myndirnar bera með
sér, en þær tók blaðamaður
Feykis meðan verið var að setja
upp sýninguna.
Maxime Noilou frá Frakklandi Anna Taylor frá Kanada
Alicia Gray Frá Bandaríkjunum
Guðný Ragnarsdóttir frá Sauða-
nesi í A-Hún með keramik
Varð Evrópumeistari
í Qi-gong
Herdís Ólína Hjörvarsdóttir
Herdís Ólína Hjörvarsdóttir á
Sauðárkróki varð á dögunum
Evrópumeistari í Qi-gong
2016. Qi-gong (borið fram
tsí-gong) er kínversk
heilsuíþrótt byggð á 5000
ára heimildum og hefð-
bundnum kínverskum
lækningaaðferðum.
Þetta er í þriðja sinn sem
Herdís fer út á Qi-gong mót og
hefur hún unnið til gull-
verðlauna í öll skiptin.
Keppnin sjálf fer þannig fram
að tólf dómarar gefa einkunn
fyrir frammistöðu á formi,
helmingur gildir fyrir tækni
og helmingur útgeislun.
Feykir hafði samband við
Herdísi og forvitnaðist um
þessa framandi íþrótt.
Herdís Ólína Hjörvarsdóttir er
líffræðingur sem starfar sem
rannsóknarmaður hjá fyrir-
tækinu Iceprotein ehf. rann-
sókna- og frumkvöðlafyrirtæki
á Sauðárkróki. Hún flutti til
Sauðárkróks fyrir rúmu ári
síðan en er uppalin í Garðabæ.
Aðspurð um hvað Qi-gong
standi fyrir segir hún það vera
kínverska heilsuíþrótt byggða
á 5000 ára heimildum og
hefðbundnum kínverskum
lækningaaðferðum. „Til eru
níu mismunandi form sem
byggja á jöfnum hlutföllum af
hreyfingu, öndun og hug-
leiðslu. Formin fela í sér hægar
VIÐTAL
palli@feykir.is
styrkjandi og teygjandi
æfingar og hægt að stunda í
hóp eða einn og er fyrir alla
aldurshópa,“ segir Herdís.
Hún er nýkomin frá Rouen í
Frakklandi úr sinni þriðju
keppnisferð en hún hefur í öll
skiptin unnið til gull verð-
launa. „Keppnin sjálf fer
þannig fram að tólf dómarar
gefa einkunn fyrir frammi-
stöðu á formi. Helmingur
gildir fyrir tækni og helm-
ingur útgeislun. Bæði hópa-
og kynjaskiptar einstaklings
keppnir eru á mótinu. Í ár fór
fimm manna hópur Íslend-
inga á Evrópumótið í Rouen í
Frakklandi þar sem allir
stóðu sig með prýði. Mótið
byggir á að fólk sem stundar
íþróttina komi saman og deili
þekkingu sinni. Þar af leið-
andi fá fimm hæstu einkunn-
irnar gull verðlaun, átta næstu
silfur og tólf næstu brons.“
frh. á baksíðu
Fjólubláir eru íslenska liðið sem fékk gullbikar. Herdís við vinnu sína í Iceprotein.