Feykir


Feykir - 03.06.2010, Side 2

Feykir - 03.06.2010, Side 2
Feykir Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur Blaðstjórn: Árni Gunnarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Herdís Sæmundardóttir, Ólafur Sigmarsson og Páll Dagbjartsson. Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Guðný Jóhannesdóttir gudny@feykir.is & 455 7176 Blaðamenn: Páll Friðriksson palli@feykir.is & 861 9842 Óli Arnar Brynjarsson oli@feykir.is Lausapenni: Örn Þórarinsson. Prófarkalestur: Karl Jónsson Áskriftarverð: 284 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 325 krónur með vsk. Áskrift og dreifing Nýprent ehf. Sími 455 7171 Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum 2 Feykir 21/2010 Leiðari Sýnum starfi sjómannsins þá virðingu sem það á skilið -Æi hann vildi ekki fara í skóla og fór bara á sjó, eða –Ég held að það sé best að senda hann bara á sjó hann er óalandi og óferjandi hvort eð er. Mér finnst ég í gegnum tíðina of oft hafa heyrt setningar á borð við þessar sem hér á undan fara. Staðreyndin er hins vegar sú að úti á sjó vinna menn við erfiðar aðstæður, erfiða vinnu sem skapar þjóðarbúinu mikil verðmæti. Sjómenn eru oft á tíðum meiri hluta árs úti á sjó og geta á meðan ekki sinnt uppeldi barna sinna, eða notið eðlilegs fjölskyldulífs. Sjálf er ég landkrabbi, hef ekki migið í saltan sjó og hef í raun sorglega litla þekkingu á lífi sjómannsins. En ég veit engu að síður að án sjómanna vildum við ekki vera og nú á krepputímum eru gjaldeyristekjur sjávarútvegsins mikilvægari en nokkru sinni, jafnvel einn af farmiðum okkar út úr kreppunni. Mín ósk er því sú að fólk hætti að tala um starf sjómannsins sem bara eitthvað og sýni því þá virðingu sem þessar hetjur hafsins eiga skilið. Sjómenn takk fyrir að standa vaktina fyrir okkur hin og færa okkur björg í bú. Þið eigið alla mína virðingu. Njótið Sjómannadagsins í faðmi fjölskyldunnar. Guðný Jóhannesdóttir ritstjóri Feykis Blönduós Stórleikur í upp- siglingu Þann 17. júní nk. verður haldinn á Blönduósi athyglisverður fótboltaleikur eða leikur ársins þegar Brunavarnir A-Hún og meistaraflokkur Hvatar leiða saman hesta sína. Brunavarnirnar skoruðu á Hvatarliðið sem nú hefur tekið áskorunni og vilja spila á 17. júní. Á undanförnum vikum og mánuðum hefur slökkvi- lið Brunavarna Austur- Húnavatnssýslu farið í mikla liðsuppbyggingu. Til að sýna íbúum og öðrum hversu öflugt slökkviliðið er, skorar slökkvilið á meistaraflokk Hvatar í fótbolta. Íslandsmótið hefur verið tekið af forgangslista Hvatar og mun þessi leikur fá alla þeirra orku. Blönduós Tískuráð- stefna á laugardag Laugardaginn 5. júní verður haldin ráðstefna í Félagsheimilinu á Blönduósi með yfirskriftinni Tíska, fatahönnun, fyrirtæki og fræði. Ráðstefnan hefst kl. 13.30. Dagskrá: Bergþóra Guðna- dóttir hönnuður og annar eigandi Farmers Market: Hráefni og hugmyndir úr bakgarðinum heima. Birna Kristjánsdóttir sérfræðing- ur við Háskólasetur á Blönduósi og kennari við Háskólann á Hólum: Textíll í víðum römmum II : tíska og textíll. Gunnar Hilmarsson hönnuður og annar eigandi Andersen og Lauth: Upp- bygging vörumerkis / reynslusaga frá 101 Reykja- vík. Karl Aspelund kennari við University of Rhode Island og höfundur bókanna The Design Process og Fashioning Society Siggi séní, Chanel og Iggy Pop: Hátískuöldin og átökin um vestræna þjóðfélagsímynd Verkefni Vegagerðarinnar 2010 Minna viðhald og minni þjónusta Í dreifibréfi sem nýlega var sent á starfsfólk Vegagerð- arinnar kemur fram að á árunum 2011 og 2012 muni fjárframlag til viðhalds og þjónustu einungis duga fyrir um 65% af áætlaðri þörf til verksins. Þá kemur fram að þar sem fjármagn til viðhalds og þjón- ustu vegakerfisins verði töluvert minna en á síðustu árum sé óhjákvæmilegt annað en að draga úr viðhaldi og sumar- þjónustu í ár. Miðað við þær upphæðir sem er að finna í samgönguáætlun, sem er enn í meðförum Alþingis, verða framlög til viðhalds og þjónustu í ár um 10% lægri í krónum talið en í fyrra. Fjárveitingar höfðu þá lækkað bæði árin 2008 og 2009. Áætlað hefur verið að raunlækkun á framlagi til viðhalds og þjónustu frá árinu 2007 sé um 28%, að teknu tilliti til verðlags. Vegagerðin áætlar að fjárveitingar árin 2011 og 2012, í þeirri samgönguáætlun sem lögð hefur verið fram, nægi aðeins fyrir um 65% af áætlaðri þörf. Á malarvegum verður því minna heflað í sumar, ryk- binding og mölburður verður minni. Í viðhaldi bundinna slitlaga verður í meira mæli gert við hluta vegar, (hjól- farafyllingar, blettaviðgerðir og kantlagfæringar), í stað heilla yfirlagninga svo dæmi séu tekin. Leiðir til þess að halda uppi þjónustustigi eru m.a. að forgangsraða verkefnum enn frekar og efla alla áætlanagerð og kostnaðareftirlit í tengslum við hana. Þá segir jafnframt að vegfarendur muni því miður í auknum mæli verða varir við versnandi ástand vega. Í niðurlagi bréfsins segir; -Það segir sig sjálft að á næstu árum mun minna viðhald koma fram í verra ástandi veg- yfirborðs (slitlaga), yfirborð vega verður ósléttara og bundin slitlög munu verða sprungnari, sem þýðir að vatn mun eiga greiðari leið niður í berandi hluta vegarins sem leiðir af sér minna burðarþol. Á malarvegum mun ganga enn frekar á unnið efni malarslitalagsins en heflun er of víða komin niður í sjálft burðarlagið, sem þýðir skert burðarþol og grófara vegyfirborð. Sauðárkrókur Grána í upprunalegt horf Þórólfur Gíslason, kaup- félagsstjóri, hefur sótt um leyfi til ýmissa framkvæmda sem miða að því að koma gömlu Gránu í upprunalegt horf. Er hugmyndin að rífa skúr- byggingu sem er áföst gamla verslunarhúsinu (Gránu) sem stendur á lóðinni nr. 21 við Aðalgötu. Einnig óskar hann heimildar til að rífa hluta gömlu mjólkurstöðvarinnar, lágbyggingu sem kemur upp að gamla verslunarhúsinu (Gránu) að sunnanverðu. Með þessu skapast aðstæður til að færa Gránu í upprunalegt horf að utan. Skipulags- og bygginganefnd Skagafjarðar heimilar niðurrif húsanna, en bendir á þær reglur sem gilda um gatnagerðargjöld í sveitarfélaginu. Landsmót hestamanna Landsmót slegið af Á fundi hagsmunaaðila í hrossarækt sl. mánudag var ákveðið að fresta Landsmóti hestamanna sem vera átti á Vindheimamelum í sumar vegna hrossapestarinnar sem herjað hefur á íslenska hrossastofninn. Haraldur Þórarinsson, formaður stjórnar Landsmóts- ins, sagði á RÚV að þetta hafi verið erfið en nauðsynleg ákvörðun. Ekki hafi verið forsvaranlegt að stefna saman hestum af öllu landinu vegna þeirrar stöðu sem upp hafi komið vegna veikinnar. Ljóst er að miklar tekjur munu tapast vegna þessarar ákvörðunar en forsvarsmenn ferðaþjónustu tala um tugi eða jafnvel hundruð milljóna. Húnavatnssýslur Nýir meirihlutar en engar viðræður Það er ljóst að ekki þarf að fara í neinar meirihluta- viðræður í Húnavatnssýslum að loknum sveitarstjórnar- kosningum en nýir meirihlutar munu engu að síður líta dagsins ljós. Á Skagaströnd kom einungis fram einn listi og telst hann því sjálfkjörinn. Á Blönduósi þar sem allir flokkar höfðu farið með völd komu fram tvö framboð. S-listi Samfylkingar og L-lista fólksins sem hafði sigur með fjóra menn kjörna á móti þremur mönnum S-lista. Ljóst er að L-listi mun áfram óska starfskrafta Arnar Þórs Sævarssonar, bæjarstjóra. Í Húnavatnshreppi vann E-listinn sigur og hlaut 4 sveitarstjórnarfulltrúa á móti þremur hjá A-lista það er því ljóst að Björn Magnússon mun ekki halda oddvitasæti sínu. Ekki er vitað um stefnu E-lista varðandi sveitarstjóra. Í Húnaþingi vestra hlaut D-listi 4 menn kjörna og náði þar með hreinum meirihluta. B-listi hlaut 2 menn og S-listi 1. Áður voru D- og B-listi í meiri- hluta í Húnaþingi vestra. Það er því ljóst að einhverjar brey- tingar verða á. Ekki liggur fyrir hvort Skúli Þórðarson verði endurráðinn sveitarstjóri.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.