Feykir


Feykir - 03.06.2010, Qupperneq 6

Feykir - 03.06.2010, Qupperneq 6
6 Feykir 21/2010 Verið Vísindagarðar hefur verið starfrækt í gamla Skjaldarhúsinu við höfnina á Sauðárkróki frá árinu 2007 og er nú svo komið að gamla húsnæðið er hvergi nærri nógu stórt og hefur Fisk Seafood því ákveðið að stækka húsið og reisa þar þriggja hæða hús sem mun gjörbreyta allri vinnuaðstöðu þeirra fjölmörgu sem hafa starfa í Verinu. Hin nýja bygging mun rísa hátt á Eyrinni og setja svipa á allt hafnarsvæðið en alls mun stækkunin á Verinu telja um 740 fm sem yrði það hrein viðbót við þá 1700 fm sem Verið hefur til umráða í dag. –Þetta húsnæði mun ger- breyta allri vinnuaðstöðu Hólamenn sækja sjóinn Verið verði 50-60 manna vinnustaður Versmanna og skapa um leið ný sóknarfæri, segir Gísli Svan framkvæmdastjóri Versins. -Við erum í dag sæmilega sett með rannsóknaraðstöðu en önnur vinnuaðstaða er orðin alltof lítil og óhentug. Hér hefur starfsfólki fjölgað og það má segja að það sé „lúxusvanda- mál“ að þetta húsnæði er í dag orðið alltof lítið bætir Gísli við. Það er Friðrik Jónsson ehf. sem sér um byggingu hins nýja húsnæði og er ráðgert að byggingu verði lokið næsta haust. Hönnun var í höndum verkfræðistofunnar Stoðar. Nú þegar starfa um 30 manns í Verinu við hin ýmsu rannsóknarstörf en í Skagafirði eru kjöraðstæður til að efla þekkingu, rannsóknir og nýsköpun á ýmsum sviðum. Hér eru rekin öflug fyrirtæki í matvælaiðnaði; fiskvinnslu, mjólkurvinnslu og kjötvinnslu og því teljum við að hér séu sóknarfæri í rannsóknum að nýsköpun í þessu mikla matvælahéraði sem Skagafjörður er. En hvaða rannsóknir eru það þá sem þið eruð helst að horfa til hvað matvælaiðnaðinn varðar? -Matís, og starfsfólk Matís í Líftæknismiðju Matís í Verinu, vinnur að fjölbreyttum verkefnum með matvælafyrirtækjunum hér á Norðurlandi vestra sem snúast um aukið verðmæti og vann m.a. ásamt Iceprotein að verkefni með Mjólkursamlagi KS að nýta betur mysu sem fellur til við framleiðslu á ostum. Síðan má nefna að líftæknirannsóknarstofu Matís sem greint var frá í nýlegum Vísindapistli í Feyki sem verður sennilega mikilvægur hlekkur í Rannsókna- og þróunarstarfi Matís hér á Norðurlandi vestra Gísli Svan Einarsson við vinnu sína Eins og sjá má verður húsið allt hið glæsilegasta. Hólamenn við vinnu sína

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.