Feykir - 14.04.2011, Page 2
2 Feykir 15/2011
Feykir.is
Hafðu samband - Síminn er 455 7176
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir – gudny@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 861 9842
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur: Karl Jónsson
Áskriftarverð: 317 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 350 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Feykir
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Mennta- og
menningarmálaráðuneytið
undirbýr nú skýrslu um
starf í leikskólum þar sem
sjónum er beint að
markvissu starfi tengdu
málörvun og þróun
lestrarnáms. Tíu leikskólar
sem hafa verið að vinna að
sérstökum verkefnum
þessu tengdu hafa verið
valdir í þetta verkefni og er
Leikskólinn Tröllaborg á
Hólum einn þeirra.
Sérfræðingar sem vinna
skýrsluna munu heimsækja
leikskólann til að afla frekari
upplýsinga og kynna sér
starfið. Í skýrslunni verður
gerð ítarleg grein fyrir starfi
leikskólans á sviði málörvunar
og lestrarnáms til upplýsinga
fyrir bæði leik- og
grunnskóla.
Hólar
Leikur og læsi
Yfir 65 lög bárust í
Dægurlagakeppni
Sauðárkróks sem fram fer
á Sæluviku Skagfirðinga
þann 6. maí nk. Nú hafa tíu
lög verið valin til þess að
keppa um Sæluvikulagið
2011og hafa lagahöfundar
þrjár vikur til að fullgera sín
lög.
Verkefnið snýr að því að
setjAð sögn Sigurpáls
Aðalsteinssonar eins
aðstandenda keppninnar,
bárust lög alls staðar að af
landinu og ljóst að um hörku
keppnin verður að ræða í
Sæluvikunni. –Við fórum af
stað með þá von að milli 30
og 40 lög myndu berast, svo
ég er gríðarlega ánægður með
þátttökuna, segir Sigurpáll
eða Siggi Doddi eins og hann
er oftast kallaður. Hljómsveit
Sigga Dodda,Von, mun spila
á balli eftir keppni en ekki er
búið að ákveða hvort
hljómsveit sjái um undirleik á
keppninni sjálfri eða hvort
leikið er af diski eins og gerist
í Júróvision. Samningar hafa
tekist við Exton um ljós- og
hljóðvinnslu á keppninni og
segir Siggi Doddi að búast má
við miklu ljósasjóvi.
Skagafjörður
Fjöldi laga
barst í Dægur-
lagakeppni
SauðárkróksBlönduós
Lögreglan stöðvaði
par við dópflutninga
JÍ síðustu viku stöðvaði
lögreglan á Blönduósi bifreið
á suðurleið í hefðbundnu
umferðareftirliti. Grunur
kviknaði strax á þá leið að
maður og kona er í bifreiðinni
voru, hefðu óhreint mjöl í
pokahorninu en þarna var um
að ræða þekkta afbrotamenn
af höfuðborgarsvæðinu.
Ökumaður bifreiðarinnar,
kona á fertugsaldri er grunuð
um að aka bifreiðinni undir
áhrifum ávana, – og fíkniefna.
Karlmaður sem með henni
var og einnig er á fertugsaldri
reyndi að losa sig við fíkniefni
í lögreglubifreiðinni. Um er
að ræða lítilræði af kannabis.
Leitað var í bifreið parsins, en
ekkert fannst í fyrstu. Þegar
Freyja fíkniefnahundur
lögreglunnar á Blönduósi var
látin leita í bifreiðinni gaf hún
til kynna að fíkniefni væru
falin í innréttingu
bifreiðarinnar. Eftir töluverða
leit og fyrirhöfn fannst ætlað
amfetamín í poka sem ætlað
er nokkur grömm. -Það kætir
okkur ávallt hér hjá lögreglunni
á Blönduósi þegar að Freyja
finnur fíkniefni sem ekki
hefðu fundist ella og sýnir
fram á nauðsyn þess að
lögreglan sé alltaf með góða
fíkniefnahunda í sinni
þjónustu, segir í tilkynningu
frá lögreglunni á Blönduósi.
Gyrðir Elíasson. Mynd: Kristján Kristjánsson
Ásmundur Einar Daðason
Ótrúleg vinnubrögð
Á Fésbókarsíðu Ásmundar
Einars Daðasonar, þingmanni
VG, kemur fram að hann er
ekki ánægður með framvindu
mála í sínum þingflokki.
Orðrétt segir hann; „Á fyrsta
fundi eftir fæðingarorlof er
Guðfríður Lilja sett af. Hún
hefur staðið sig vel í þessu
embætti, það var í það
minnsta ekki brottfall úr
þingflokknum á hennar vakt.
ÓTRÚLEG vinnubrögð!”
55 vinir hans kunna að meta
þessi ummæli og aðrir kjósa
að tjá sig og er fólk þungort í
garð flokksforystunnar.
Ummælin eru á þessa leið;
„Þetta heitir trúlega að skjóta
sig í fótinn.“ eða „Þetta er
virkilega lúalegt, var ekki kosið
um þetta í þingflokknum?
Mér finnst það þú, Guðfríður
og Ögmundur og Jón ættuð að
yfirgefa þessa sökkvandi skútu
og mynda bandalag með Lilju
M og Atla „ Eða „Nei
Ásmundur þetta eru ekki
ÓTRÚLEG vinnubrögð,
Steingrímur verður að hafa í
kring um sig fólk sem dansar
eftir hans hljóðpípu, svo að nú
er hann komin langleiðina
með að hreinsa út þá sem
fylgja stefnu og loforðum til
kjósenda . Nú eða „Er verið að
ganga af flokknum dauðum,
hvað kom fyrir þennan flokk?“
og að lokum „Er ekki ævintýrið
með VG búið spil, Ásmundur
? Af kynnum mínum af
flokkseigendafélgi VG þá
hættir það fólk aldrei fjandskap
sínum í garð þeirra
flokksmanna sem ekki eru
undirgefnir foringjum
flokkseigenda í einu og öllu“
Af þessu má sjá að ólgan er til
staðar og menn langt því frá
sáttir
Bókmenntir
Gyrðir Elíasson hlýtur
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs
Gyrðir Elíasson hlýtur
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 2011 fyrir
smásagnasafnið Milli trjánna
en í rökstuðningi dómnefndar
segir: „Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 2011 hlýtur
íslenski rithöfundurinn Gyrðir
Elíasson fyrir smásagnasafnið
„Milli trjánna”, stílhreint og
framúrskarandi skáldverk
sem lýsir innri og ytri átökum
og er í samræðu við
heimsbókmenntirnar.”
Gyrðir Elíasson sem lengi bjó á
Sauðárkróki gaf út sína fyrstu
bók árið 1983, Svarthvít
axlabönd. Eftir hann hafa
komið út fjölmargar smásagna-
og ljóðabækur og fimm skáld-
sögur. 13 rithöfundar frá
Norðurlöndunum og sjálf-
stjórnarsvæðunum voru að
þessu sinni tilnefndir til
verðlaunanna.
Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs nema 350.000
dönskum krónum, nær 7,5
milljónum íslenskra króna.
Gyrðir Elíasson mun veita
verðlaununum viðtöku á
Norðurlandaráðsþinginu 2.
nóvember 2011 í
Kaupmannahöfn.
Skagaströnd
BioPol í alþjóð-
legu verkefni
Sjávarlíftæknisetrið BioPol
ehf. á Skagaströnd var á
dögunum formlega boðið að
vera aðili að verkefninu NPP
WATER sem styrkt er af
Norðurslóðaáætlun ESB;
NPP (Northern Periphery
Programme). Verkefnið
miðar að því að minnka þau
neikvæðu áhrif sem blómi
eitraðra svifþörunga getur
haft á kræklingarækt og
fiskeldi á jaðarsvæðum.
Það var margt góðra gesta
hjá starfsfólki BioPol ehf. í
vikunni sem leið í tengslum
við þátttöku í verkefninu. Dr.
Robin Raine frá Martin Ryan
Institute National University
of Ireland, verkefnisstjóri NPP
WATER, og þeir Dr. Jean-
Pierre Lacaze og Guillaume
Hermann frá Marine Scotland
komu og héldu tveggja daga
námskeið. Farið var yfir
skjótvirkar mæliaðferðir á
þörungaeitri í skelfiski og
einnig fræðst um notkun
svokallaðra SPATT-poka sem
eru einskonar te-pokar sem
safna í sig þörungaeitri beint
úr sjó.
Meðal helstu markmiða
verkefnisins er að finna leiðir
til að minnka þá röskun sem
verður á uppskeru
kræklingaræktenda vegna
eiturþörungablóma með því
að ná betri stjórn á
framleiðslunni. Þeim
markmiðum er m.a hægt að
ná með áhrifaríkum
vöktunaraðferðum, nýrri
tækni við vöktun þörungaeiturs
í sjó og með notkun spálíkana.
Í kjölfarið er stefnt að því að
halda námskeið fyrir stofnanir
og fyrirtæki um notkun
fljótvirkra aðferða við
mælingar á þörungaeitri í
skelfiski og aðferðir þróaðar
svo hægt sé að mæla þessa
þætti með staðbundnari hætti
en áður hefur þekkst.