Feykir - 14.04.2011, Síða 3
15/2011 Feykir 3
Úr verinu
Sæmilegt á grásleppunni
Ekki hefur blásið byrlega
undanfarna daga fyrir
smábátasjómenn en nú
stendur grásleppuvertíð
sem hæst. Hingað til hafa
grásleppusjómenn nær
eingöngu komið með
hrognin að landi en óvænt
opnaðist markaður fyrir
fiskinn til Asíu og verður
skylda að koma með hann
að landi á næstu vertíð.
-Það hefur gefið sæmilega.
Það hefur verið einhver bræla
en þetta gengur bara vel, sagði
Þorleifur Ingólfsson er þeir
feðgar hann og Guðmundur
Haukur voru að landa vænum
afla á Sauðárkrókshöfn fyrir
helgi. Aðspurður hvort það væri
mikið mál að koma með fiskinn
að landi sagði Þorleifur það ekki
vera. –Þetta er auðvitað aðeins
meiri vinna en 55 krónur fæst
fyrir fiskinn og það er aðeins
upp í olíukostnað. Við erum
komnir með eitthvað á áttunda
tonn.
Oft kemur meira í netin en
grásleppan ein og þá er
þorskurinn fyrirferðamikill og
aðspurður segir Þorleifur að
menn verði að eiga kvóta fyrir
meðaflanum. –Við höfum átt
kvóta í 30 ár, svo við erum í
góðu lagi en aðrir sem ekki eiga
kvóta verða bara að útvega sér
hann.
Guðmundur Þorleifsson með vænan þorsk sem fékkst í grásleppunetin.
Þorleifur og Guðmundur láta vel af sér á grásleppunni.
Af hug og hjarta þakkar fjölskyldan öll innilega fyrir hlýhug,
samúð og nærgætni sem okkur var sýnd
í veikindum og við andlát okkar ástkæru sambýliskonu,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu
Þórdísar Ingibjargar Sverrisdóttur
frá Dúki
Innilegar þakkir færum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki,
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og
Landspítala Háskólasjúkrahúss
fyrir góða umönnun, ástúð og hlýju.
Einar Jakobsson
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Þ A K K I R
Eggjakartöflusalat
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN
Þrír góðir kostir
til að ávaxta spariféð sitt
KS-bókin er með 3% vexti,bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu yfir 20 milljónir, 3,75% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu, óverðtryggð
og óbundin 3% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
KS INNLÁNSDEILD
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
Landsvirkjun auglýsir eftir
samstarfsaðilum að verkefninu
Margar hendur vinna létt verk
sumarið 2011.
Landsvirkjun hefur um áratugi
starf rækt sumarvinnuflokka ungs
fólks. Hóparnir sinna viðhaldi,
uppbyggingu og fegrun starfsstöðva
Landsvirkjunar og vinna jafnframt að
ýmsum samstarfsverkefnum víða um
land. Samvinna sumarvinnuflokka
Landsvirkjunar og félagasamtaka,
sveitarfélaga og stofnana hefur skilað
sér í auknum umhverfisgæðum
og betri aðstöðu til útivistar og
ferðamennsku.
Í boði er vinnuframlag sumarvinnu
flokka og flokksstjórn yfir þeim.
Verkefnin lúta að ræktun, hreinsun,
viðhaldi og öðrum umhverfisbótum
ásamt stígagerð og stikun gönguleiða.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar
leggi fram vel skilgreind verkefni.
Umsóknareyðublað með nánari
upplýsingum er að finna á vef
Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður
Ólafsdóttir, umhverfisstjóri
Landsvirkjunar, í síma 515 9000
ragnheidur@lv.is.
landsvirkjun@lv.is
Tel: +354 515 90 00
Fax: +354 515 90 07
Háaleitisbraut 68
103 Reykjavik - Iceland
landsvirkjun.is
Umsóknarfrestur rennur út 29. apríl.
Umsóknareyðublöð er að finna á www.landsvirkjun.is