Feykir - 14.04.2011, Síða 7
15/2011 Feykir 7
Margt í deiglunni
Alexandra situr aldrei auðum
höndum og hefur mörg járn
í eldinum hverju sinni. Auk
þess að setja upp óperur
rekur hún söngskóla og stýrir
Stúlknakór Norðurlands vestra.
-Nemendur mínir hafa tekið
þátt í spennandi verkefnum hjá
skólanum, Óperu Skagafjarðar
og Draumaradda norðursins.
Vorið 2008 setti ég í samstarfi
við Guðrúnu Ásmundsdóttur
leik- og söngdagskrá um
Sigvalda Kaldalóns, við vorum
með þrjár sýningar í Villa
Nova á Sauðárkróki þar sem
ég var fyrst með aðsetur fyrir
skólann. Söngnemendur mínir
tóku síðan margir hverjir þátt í
uppfærslu Óperu Skagafjarðar
á La Traviata árið 2007-2008,
og á Rigoletto vorið 2009.
Draumaraddir norðursins sem
er stúlknakór fyrir stelpur 8-16
ára voru stofnaðar að mínu
frumkvæði haustið 2008 og er
samstarfsverkefni þriggja söng-
og tónlistarskóla á Norðurlandi
vestra . Það verkefnið hefur
gengið ágætlega og stelpurnar
fengið að taka þátt í mörgum
áhugaverðum verkefnum og
núna síðast uppfærslunni á
Óperudraugnum.
Söngskóli Alexöndru tekur þátt
í alþjóðlegu verkefni í vetur,
Nordplus og s.l. haust var farin
ferð til Danmerkur í heimsókn
til nema þar og framundan er
að nemendur frá Eistlandi og
Lettlandi komi hingað til lands
í maí. Það er því ekki ólíklegt
að sveitarfélagið sé þegar farið
að njóta nokkurra tekna af allri
þeirri starfsemi sem söngstarfi
Alexöndru fylgir.
Einnig eru í farvatninu tvö
önnur alþjóðleg verkefni fyrir
skólann á næsta vetri og núna er
söngskólinn, Ópera Skagafjarðar
og Draumaraddirnar að leggja
upp í stærsta verkefnið til þessa,
þ.e. uppsetningu og sýningu á
Óperudraugnum.
-Flestir nemendurnir mínir eru
börn og unglingar sem hafa
byrjað í grunnnámi en einnig
er ég með eldri nemendur
sem hafa klárað grunn- og
miðnám hjá mér. Nokkrar
stúlkur frá mér hafa tekið
þátt í söngkeppnum Samfés
og framhaldsskólakeppninni
og staðið sig mjög vel og náð
langt. Flestir nemendurnir
mínir hafa fengið að taka þátt
í fjölbreyttum og spennandi
verkefnum, upptöku á lögum,
myndbandagerð, tónleikum
Frostrósa og mínum tónleikum
þar sem ég söng með Kristjáni
Jóhannssyni.
Alexandra viðurkennir að
reksturinn geti verið þungur
í slíkum verkefnum en
söngskólinn hefur verið með
skólagjöld sem hafa dugað
fyrir rekstrarkostnaði s.s.
leigu, nótum, akstri o.fl. en því
miður hefur það ekki dugað
í fleira þ.m.t. til að greiða
Alexöndru laun í þau rúm þrjú
ár sem skólinn hefur starfað
og hefur hún því unnið þetta
starf kauplaust. Söngskólinn
hefur ekki notið neinna styrkja
fyrir utan eins sem hann fékk
vorið 2008 frá Sveitarfélaginu
Skagafirði. -Framtíð skólans er
mjög óljós núna því ljóst er að
ekki er hægt að vera í vinnu sem
greiðir engin laun til langframa,
segir Alexandra sem verið hefur
í þrjú ár án launa frá skólanum.
Frá því að skólinn fór af stað
hafa nemendur verið 30-35
í söng- og píanónámi auk
stúlknakórsins. Alexandra hefur
þurft að vísa frá nemendum
því hún er eini starfsmaður
skólans og miðað við þennan
nemendafjölda og umfang í
starfsemi þá er þetta um tvö
stöðugildi sem hún sinnir. Flestir
nemendur Alexöndru eru börn
og unglingar, þó eru nokkrir
fullorðnir. Það er ljóst að mikið
er umleikis hjá þessari glæsilegu
söngkonu sem lagt hefur sál
og líkama í þau miklu verkefni
sem fjallað hefur verið um hér
á undan og er hún kvödd með
þeim óskum að framtíð hennar
verði sem björtust með þessa
miklu menningarstarfsemi
sem hún hefur komið á hér í
Skagafirði og víðar.
KVENNATÖLT NORÐURLANDS
Háklassa töltkeppni
HÚNVETNSKU LIÐAKEPPNINNI LOKIÐ
Víðidalur vann
N1 EINN AF STÆRSTU STYRKTARAÐILUM LANDSMÓTS OG LH
Styrktu þitt félag
Kvennatölt Norðurlands fór
fram á laugardagskvöldið í
reiðhöllinni Svaðastöðum á
Sauðárkróki. Margar konur
mættu til leiks á mjög góðum
fákum. Var mál manna að
reiðmennska og hrossagæði
hafi verið í háklassa.
Mótið var í boði
Útflutningsþjónustu Eysteins
Leifssonar ehf. en hann er
tengdur Skagafirði sterkum
böndum. Úrslit mótsins eru hér
Á föstudagskvöldið fór fram lokakeppni
Sparisjóðs-liðakeppninnar á Hvammstanga er
keppt var í tölti. Gríðarleg stemmning var á
pöllunum og vilja margir meina að aldrei fyrr
hafi töltmótið verið jafnt sterkt en alls voru 104
keppendur skráðir til leiks.
Það var lið 3, Víðidalur, sem stóð uppi sem
sigurvegari Sparisjóðs-liðakeppninnar 2011
með yfirburðum og lauk keppni með 212,5 stig, í
2. sæti varð lið 2 með 173 stig, í 3. sæti varð lið 1
með 128 stig og lið 4 í 4. sæti með 87,5 stig.
Úrslit urðu eftirfarandi þar sem fyrri talan segir til
um einkunn í forkeppni en sú síðari í úrslitum:
1. flokkur
1 Ólafur Magnússon / Gáski frá Sveinsstöðum 7,57 / 8,22
2 Fanney Dögg Indriðadóttir / Grettir frá Grafarkoti 7,33 / 7,78
3 Elvar Einarsson / Lárus frá Syðra-Skörðugili 7,13 / 7,67
2. flokkur
1 Þóranna Másdóttir / Gátt frá Dalbæ 6,57 / 7,00
2 Vigdís Gunnarsdóttir / Freyðir frá Leysingjastöðum II 6,13 / 6,67
3 Herdís Rútsdóttir / Taktur frá Hestasýn 6,30 / 6,61
3. flokkur
1 Selma H Svavarsdóttir / Hátíð frá Blönduósi 5,93 / 6,39
2 Rúnar Örn Guðmundsson / Kasper frá Blönduósi 5,67 / 6,39
3 Jón Ragnar Gíslason / Bleikur frá Bjarnastaðahlíð 5,77 / 6,28
Unglingaflokkur
1 Ásdís Ósk Elvarsd. / Ópera frá Brautarholti 6,07 / 6,78
2 Helga Rún Jóhannsd. / Lávarður frá Þóreyjarnúpi 5,77 / 6,17
3 Guðmar Freyr Magnússon / Frami frá Íbishóli 5,37 / 6,00
EINSTAKLINGSKEPPNIN:
1. flokkur
1. sæti Tryggvi Björnsson með 26 stig
2. sæti Elvar Einarsson með 24 stig
3. sæti Reynir Aðalsteinsson með 23 stig
2. flokkur
1. sæti Vigdís Gunnarsdóttir með 17 stig
2. sæti Þóranna Másdóttir með 15 stig
3. sæti Halldór Pálsson með 14 stig
3. flokkur
1. sæti Selma Svavarsdóttir með 5,5 stig
2. sæti Ragnar Smári Helgason með 5,5 stig
3. sæti Sigrún Þórðardóttir með 3,5 stig
Unglingaflokkur
1. sæti Ásdís Ósk Elvarsdóttir með 13 stig
2. sæti Jóhannes Geir Gunnarsson með 8 stig
3. sæti Fríða Marý Halldórsdóttir með 5,5 stig
Hestaumfjöllun Feykis Sjá fleiri hestafréttir á www.feykir.is/hestar
A-úrslit minna vanar:
1. Anette Tiderman
Gnótt frá Grund 2 6,56
2. Malin Elisabeth Jonson
Verðandi frá Sauðárkróki 6,50
3. Herdís Rútsdóttir
Taktur frá Hestasýn 6,50
4. Cloria Kucel
Grímhildur frá Ytra-Skörðugili 6,00
5. Elínborg Bessadóttir
Blesi frá Litlu-Tungu 2 5,56
A-úrslit meira vanar:
1. Vigdís Matthíasdóttir
Stígur frá Halldórsstöðum 7,56
2. Barbara Wenzl
Ræll frá Vatnsleysu 7,00
3. Þórdís Jensdóttir
Gramur frá Gunnarsholti 6,83
4. Riikka Anniina
Djásn frá Hnjúki 6,67
5. Úlfhildur Sigurðardóttir
Sveifla frá Hóli 6,44
N1 er orðinn einn af stærstu
styrktaraðilum Landsmóts
og Landssambands hesta-
mannafélaga og stendur
nú öllum hestamönnum til
boða að fá N1 kortið með
sérkjörum og um leið geta
viðkomandi aðilar valið sitt
hestamannafélag til þess að
styrkja. Hálf króna af hverjum
seldum lítra rennur þá sem
fjáröflun til viðkomandi
félags.
Þeir aðilar sem nú þegar hafa
N1 kort geta sent tölvupóst
til LH á hm@landsmot.is eða
hringja í síma 514-4030 með
ósk um hvaða hestamannafélag
það vill að kortið sitt styrki
og mun sú ósk í engu breyta
um kjör viðkomandi hjá N1.
LH mun síðan koma þeim
skilaboðum áleiðis til N1.
Það er því hagur hestamanna-
félaganna að þeirra félagar
noti kortin frá N1 og er þetta
mjög góð fjáröflun fyrir fél-
ög innan Landssambands
hestamannafélaga. Aðildar-
félög LH og félagsmenn njóta
sérkjara með N1 kortinu og eru
sérstök tilboð í gangi á hverjum
tíma varðandi fjáröflunarvörur.
Hestamenn eru hvattir til að
nýta þetta góða tækifæri sem
getur verið góð tekjuöflun
næstu árin fyrir félögin og þess
má geta að hver N1 korthafi
fær 1000 króna afslátt af
hverjum miða inn á Landsmót
hestamanna 2011 og 2012.