Feykir


Feykir - 14.04.2011, Page 8

Feykir - 14.04.2011, Page 8
8 Feykir 15/2011 Söngvarakeppni Húnaþings vestra Hjón sungu til sigurs Söngvarakeppni Húna- þings vestra fór fram í Félagsheimilinu Hvamms- tanga sl. helgi en alls tóku 13 atriði þátt í keppn- inni en þemað í ár var „Uppáhaldslagið mitt.“ Eftir harða og jafnframt skemmtilega keppni voru það þau Ingunn Elsa Rafnsdóttir og Valdimar Gunnlaugsson sem báru sigur úr bítum með laginu Where the wild roses grow sem er þekktast í flutningi Nick Cave og Kylie Minogue. Í öðru sæti hafnaði Anna Elísabet Gestsdóttir sem söng lagið Nú brennur tú í mær sem er eftir Eivør Pálsdóttur. Það var svo Kristrún Kristjánsdóttir sem varð í þriðja sæti með lagið Forget you sem Cee Lo Green gerði vinsælt. Einnig var verðlaunað fyrir bestu sviðsframkomu og bestu búningana. Diskódísir fengu verðlaun fyrir sviðsframkomu og Tómas Örn Daníelsson fyrir búninga. Í hléi var síðan boðið upp á óvænt atriði er hljómsveitin Overdose kom saman eftir langt hlé en hljómsveiti var að sögn Norðanáttar bernskubrek hljómsveitarmeðlima. Feykir sló á þráðinn til Ingunnar Elsu og forvitnaðist um sigurvegarana.Í ljós kom að um par er að ræða en hingað til segir Ingunn Elsa að Valdimar hafi verið þekktari fyrir sönginn en hún. En hvað kom til að þau ákváðu að taka þátt? „Við höfum bæði tekið þátt áður, ég hef tvisvar tekið þátt með saumaklúbbnum Diskódísir fengu verðlaun fyrir bestu sviðsframkomu - Ljósm. Gurrý 3. sætið Kristrún Kristjánsdóttir - Ljósm. Gurrý 2. sætið Anna Elísabet Gestsdóttir - Ljósm. Gurrý ( ÁSKORENDAPENNINN ) „Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?“ er spurning sem allir kannast við að hafa bæði spurt og svarað. Þegar við erum yngri vefst ekki fyrir okkur að svara og draumarnir eru stórir. Eftir því sem við verðum eldri, þrengist sjóndeildarhringurinn óðum, við förum að hafa augastað á einhverju einu ákveðnu sem við ætlum að verða og gerum okkar besta til að ná því takmarki. Ég hef fyrir mitt leyti átt í mesta basli með þetta, þar sem ég get ómögulega ákveðið hvað ég ætla að verða þegar að ég verð stór. Ég ætlaði t.d. að verða tamningakona, læknir, kennari, fóstra og leikkona. Á tímabili hallaðist ég að því að verða bóndi líka og hugsanlega hárgreiðslukona, allt var inni í myndinni. Á leið minni um menntaveginn hélt ég fyrst að ég ætlaði að verða ferðaráðgjafi, svo kennari, þá upplýsinga- og kynningarfulltrúi og síðan framkvæmdastjóri (selamálaráðherra). Nú held ég að ég gæti kannski orðið vísindamaður (ég er samt ekki viss). Í millitíðinni uppgötvaði ég svo að ég er líka heilari, miðill og grasakona OG að í mér blunda rithöfundur, söngkona og listamaður. Ég get ekki valið, það er bara ekki hægt! Ég tók því um daginn, þá upplýstu ákvörðun að ég ætla EKKI að ákveða hvað ég ætla að verða þegar að ég verð stór. Í staðinn ætla ég að lifa lífinu eftir því sem hjartað segir mér og njóta hvers dags hvaða titil sem ég ber þann daginn. „Lærir meðan lifir“ var lífsmottó Gunnþórs afa míns, en hann einsetti sér að læra eitthvað nýtt á hverjum degi út lífið og stóð við það. Lífið er ævintýri! Tökum á móti því með bros á vör. Eyðum tíma í náttúrunni og uppgötvun heiminn sem opnast allt í kringum okkur. Veröldin er svo miklu stærri en við höldum og við þurfum ekkert annað en að opna hugann og nota innsæið okkar til að upplifa hversu frábært lífið getur verið. - - - - - Ég skora á Helgu Hinriksdóttur sem starfar hjá Virki þekkingarsetri að koma með næsta pistil úr Húnaþingi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir skrifar úr Húnaþingi Þegar ég verð stór mínum, The Bjútís og svo vann ég ásamt Huldu Signýju Jóhannesdóttur árið 2005 með lagi eftir Dixie Chicks. Valdi lenti í 3 sæti í fyrra með lagi eftir Vilhjálm Vilhjálmsson. Við höfum aldrei sungið saman áður en ákváðum að prófa og það tókst svona líka vel,“ segir Ingunn og Valdimar bætir við. „Þó svo að stressið geti alveg farið með mann rétt fyrir keppni þá er þetta samt alltaf jafn gaman. Fullur salur af fólki og stemningin frábær, það verður ekki betra en það.“ Lagið sem þau sungu til sigurs er eitt af þeirra uppáhalds lögum og segir Ingunn að þau hafi verið samstíga í því að velja lagið. En hvað skyldu þau gera þegar þau eru ekki að syngja. „Í daglega lífinu vinn ég á sambýlinu á hérna á Hvammstanga en er í fæðingarorlofi eins og er, og Valdi vinnur í Kaupfélaginu,“ svarar Ingunn að bragði. Mitt framlag til söngsins Söngvarakeppnin hefur verið haldin 11 sinnum en síðustu skipti hefur Sæunn Vigdís Sigvaldasóttir staðið ein að undirbúningi keppninnar. „Sjálf get ég ekki sungið fyrir mitt litla líf og er þetta því góð leið fyrir mig til þess að gera mitt þegar kemur að söngnum,“ segir Sæunn í spjalli við Feyki. Sæunn sér sjálf um að ráða og greiða tónlistarfólki og öðru starfsfólki í kringum kvöldið en hún segir að keppnin hafi vaxið frá upphafi og því hafi verið svo komið að fólk hafi ekki lengur treyst sér til að vinna að þessu í sjálfboðavinnu. „Ég gat ekki hugsað mér að þetta dytti upp fyrir og tók þetta því að mér. Það er svo bara happa og glappa hvort ég fæ eitthvað greitt fyrir mína vinnu. Það á eftir að koma í ljós hvernig árið í ár kom út en ég vona að ég þurfi alla vega ekki að borga með þessu,“ segir Sæunn að lokum. Sigurveigarar kvöldsinns Valdimar Gunnlaugsson og Ingunn Elsa Rafnsdóttir - Ljósm. Gurrý

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.