Feykir - 14.04.2011, Blaðsíða 11
15/2011 Feykir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Steingrímur og Halldóra kokka
Sannkallaðir
veisluréttir
6-8 kjúklingabringur
Ca. 1 dl. hveiti
Salt og svartur pipar
Olía til steikingar
1 stk. sítróna
Karrýsósa:
2 msk. smjör
1 msk. ólífuolía
Karrý eftir smekk
1 stk. gult epli kjarnhreinsað
og afhýtt
1 stk. laukur saxaður í bita
1½ stk. rauð paprika
söxuð í bita
100 gr. nýir sveppir
skornir í sneiðar
250 gr. frosin
grænmetisblanda
2 dl. kjúklingasoð vatn
+ kjúklingakraftur
1 dós Campell‘s kjúklingasúpa
(má sleppa setja þá aðeins
meira vatn og kraft)
1 dl. rjómi (ef rjómi er ekki til
er mjög gott að nota 2-3
msk. af uppáhalds smurost-
inum og mjólk í staðinn)
Salt og pipar ef þarf
Þerrið kjúklingabringurnar,
veltið upp úr hveiti og brúnið
á pönnu, setjið í eldfast mót.
Kryddið með salti og pipar og
kreistið safann úr sítrónunni yfir
kjúklinginn.
Karrýsósa:
Setjið smjör og olíu á pönnuna
og gljáið laukinn, paprikuna,
sveppina og grænmetisblönduna,
látið steikjast um stund. Bætið
þá eplinu, kjúklingasoðinu og
karrýinu út í og kryddið með
salti og pipar eftir smekk. Látið
krauma í um 1 mínútu. Hellið þá
rjómanum og kjúklingasúpunni
út í og látið samlagast vel. Hellið
sósunni yfir kjúklinginn og bakið
í ofni í 40 mín. við 170°.
Það eru sannkallaðir
veisluréttir sem þau
Steingrímur Ingvarsson og
Halldóra Gestsdóttir
Litlu-Ásgeirsá í Austur-
Húnavatnssýslu bjóða upp á
þessa vikuna. Humar í skel
með ostabráð í forrétt,
kjúklingur með indversku
ívafi í aðalrétt og í eftirrétt
eru ferskir ávextir í melónu
með líkjör.
-Við skorum á þau mætu
hjón og matgæðinga Jóhönnu
Erlu Pálmadóttur og Gunnar
Rúnar Kristjánsson frá Akri að
koma með uppskriftir í Feyki.
Þau geta áreiðanlega galdrað
eitthvað gómsætt upp úr sínum
nýju ágætu pottum.
FORRÉTTUR
Humar í skel
með ostabráð
Fyrir 6
1,2 kg. stór humar í skel
150 gr. hvítlaukssmurostur
200 gr. smjör
4 stk. hvítlauksgeirar,
fínt saxaðir
½ búnt fínt söxuð steinselja
(ef til er )
Safi úr 1sítrónu
Salt og pipar
Kljúfið humarinn hálffrosinn
eftir endilöngu og fjarlægið
svörtu röndina, görnina (gott að
nota flísatöng). Setjið í ofnskúffu
og geymið (helst í frysti) meðan
ostabráðin er löguð.
Bræðið saman ost og smjör
og bætið hvítlauk, steinselju,
kryddi og sítrónusafa saman
við. Hrærið vel saman. Þekið
humarinn með ostabráðinni
með matskeið. Setjið undir grill
í ofni í 4 – 5 mín. Eða þar til
humarkjötið losnar aðeins frá
skelinni (þetta verður að grillast
við algjöra gjörgæslu).
Berið fram strax með
snittubrauði og smjörinu úr
ofnskúffunni.
AÐALRÉTTUR
Kjúklingur með
indversku ívafi
Fyrir 6
Meðlæti:
1 poki Tilda Basmati soðinn
samkvæmt leiðbeiningum .
Tilbreyting - Mjög gott er
að steikja á pönnu rauðlauk
og strengjabaunir og setja út í
hrísgrjónin.
Hafa með þessu svo gott
ferskt salat .
EFTIRRÉTTUR
Ferskir ávextir í
melónu með líkjör
1 stk. vatnsmelóna
250 gr. jarðaber
1 stk. banani
2 stk. kíví
1 stk. epli
1 appelsína
2 dl. líkjör
eða góður ávaxtasafi
Búið til körfu úr melónunni,
skerið undan henni þannig að
hún standi vel, mótið handfang
og látið listagyðjuna aðstoða
ykkur. Skerið ávextina niður,
ekki of smátt. Blandið vel saman,
setjið í körfuna og hellið líkjör
yfir. Skreytið með rifsberjum og
bláberjum. Góðir líkjörar eru
til dæmis Amaretto og Grand
Marnier.
Verði ykkur að góðu!
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er góður vinur þáttarins í Skagafirði
sem á fyrstu vísurnar að þessu sinni. Ekki
vill hann að gefið sé upp hans rétta nafn,
en kýs að yrkja undir dulnefninu X9.
Hann segir svo. Nokkrar konur tóku sig
saman og fengu bíl til að aka sér norður í
Hörgárdal til þess að sjá sjónleikinn Með
fullri reisn. Heimkomnar munu þær hafa
glatt bændur sína með þeim tíðindum að
þeir stæðust fyllilega samanburð við þau
tól sem birtust þar.
Okkur fannst það ekkert skrítið
öll var förin eintómt spjað,
því undir þeim var ósköp lítið
og ekkert hægt að nota það.
Til glöggvunar lesendum skal bent á að
orðið spjað kemur fyrir í passíusálmunum
og skilst mér að þar eigi það að merkja
spé. Áfram heldur bréfritari og segist ekki
skilja hvers vegna Hörgdælingar fóru nú á
stað með þessa sýningu þegar Páll Arason
í Bug er nýlátinn og búið að senda hans
skrautmuni á safnið á Húsavík, þar sem
það trónir í hillu við hlið steypireyða tóla,
og sýnishorna af öðrum spendýrum.
Ó Hörgárdalur við hörmung kenndur
hér er getan engu lík.
Því eini sem að upprétt stendur
er austur á safni á Húsavík.
Fyrir margt löngu var fræg frásögn af
rjúpnaskyttu í Mývatnssveit sem varð
fyrir því happi að skjóta hænu í stað rjúpu.
Um þá frétt orti gárunginn Jóhannes
Benjamínsson, svo.
Aðgát rænir rjúpna leit
ráðin kænu þjóðin veit.
Skytta væn er skónum sleit
skaut sér hænu í Mývatnssveit.
Fuglasafn ef fyrir er
freisting dafna virðist mér.
Natni jafna nota ber.
Næst má hrafninn gá að sér.
Næstu vísu fann ég í drasli mínu og er
hún þar talin eftir Sigríði Hjálmarsdóttur
í Holtastaðakoti. Veit ekki hver hún hefur
verið en mun hafa látist 1907.
Eins er hér og eyðisker
ekkert ber til gleði.
Kríuger og hrafnaher
helst er mér að geði.
Glöggur lesandi þáttarins hafði samband
og benti mér á að næsta vísa væri birt
á fyrirbæri sem kallast vísnavefur
Skagfirðinga. Væri höfundur hennar þar
talin Sigríður Jónsdóttir frá Marðanúpi í
Vatnsdal. Dregur hann þennan sannleika
í efa og geri ég það líka án þess að muna
nú fyrir víst eftir hvern hún er. Bið
Vísnaþáttur 544
lesendur að gefa mér upplýsingar þar
um, ef þeir vita, en veit fyrir víst að vísan
er eftir konu.
Veit ég beinn minn vegur er
verður neinn ei skaðinn.
Kemur einn þá annar fer
ungur sveinn í staðinn.
Vor hlýtur að hafa verið á næsta leiti
þegar Sigríður Sigfúsdóttir í Forsæludal
orti svo fallega.
Glóey náttar sig nú senn
sígur brátt að gríma.
Hér er kátt, við eigum enn
engan háttatíma.
Það er Húnvetningurinn Rögnvaldur
Rögnvaldsson sem yrkir svo fallega til
vísunnar.
Heima vakir hjá mér ein
hún sem kvakar þetta.
Bræðir klaka, bætir mein
blessuð stakan létta.
Önnur ágæt hringhenda kemur hér eftir
Rögnvald.
Hýsum amann ekki lengi
óðinn tama kveðum vér.
Ljóða saman stillum strengi
stutt því gaman lífið er.
Gaman að fá eina hringhendu í viðbót
frá Rögnvaldi, þar sem segir frá gleðskap
hjá nágranna.
Granninn átti gómsætt vín
gamanþátt svo kíminn.
Langra nátta geymist grín
gleymdist háttatíminn.
Óskaplega þykir undirrituðum vænt um
þá hugsun sem fram kemur í næstu vísu
Rögnvaldar.
Það er eins og ýmsir sjá
algengt fyrirbæri,
að lenda í villu þeirri að þrá
þrýstin konulæri.
Finnst gott og gilt að leita til Rögnvaldar
með lokavísuna. Þar mun hann vera að
glettast við samferðakonu á lífsins leið.
Lengi mun í minnum haft
og mörgum þykja gaman.
Að Freyja á þann koparkjaft
sem kemur aldrei saman.
Mun þá ekki komist mikið lengra með
úrval vísna í þessum þætti. Bið lesendur
að vera sæla að sinni.
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154