Feykir - 19.05.2011, Page 3
við Heilbrigðisstofnunina Sauðárkróki
Laust starf við aðhlynningu aldraðra á hjúkrunardeild
á Heilbrigðsstofnuninni Sauðárkróki.
Um er að ræða 100% starf, unnin önnur hver helgi,
vaktavinna. Hægt er að semja um minna starfshlutfall.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Starfið er laust frá og með 22. maí til ágústloka
eða eftir samkomulagi.
Einnig eru lausar kvöldvaktir á hjúkrunardeild,
vinnutími 18:00-22:00
Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Klausen framkvæmdastjóri
hjúkrunar í síma 455 4011,
netfang: herdis@hskrokur.is Hægt er að sækja um
rafrænt á heimasíðuu HS: www.hskrokur.is
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2011.
Öllum umsóknum verður svarað.
www.hskrokur.is
19/2011 Feykir 3
Sumarafleysing
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKINorðurland vestra
Ölvuðum vísað frá flugi
og enduðu utan vegar
Mennirnir sem veltu bíl rétt hjá Blönduósi
á þriðjudaginn höfðu áður verið til
nokkurra vandræða á Sauðárkróki þaðan
sem þeir stálu bíl. Um morguninn höfðu
þeir bókað sig inn í áætlunarflug með
flugfélaginu Erni en þegar farþegar gerðu
athugasemd við ástand þeirra var þeim
vísað frá flugi.
Þaðan héldu mennirnir aftur inn á Sauðár-
krók þar sem þeir gengu á milli bíla í leit að
verðmætum auk þess sem þeir fóru inn í
íþróttahúsið á Sauðárkróki í sama tilgangi. Ekki
höfðu þeir mikið upp úr krafsinu nema hvað að
þeir náðu að stela bíl og ætluðu að freista þess að
fara landleiðina suður þar sem flugleiðin var
þeim klárlega ófær. Á flugvellinum höfðu
mennirnir á orði að þeir væru á leið í meðferð.
Ekki er vitað hvar mennirnir eru niður-
komnir þessa stundina en gera má ráð fyrir að
þeir séu á Sauðárkróki.
Í samtalið við Feyki.is áréttar Stefán Vagn
Stefánsson, yfirlögregluþjónn, að alltaf eigi að
læsa hýbýlum sínum og bifreiðum og eigi það
við nú líkt og áður.
Jón Bjarnason
Vill efla kornrækt á landinu
Jón Bjarnason sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra
hefur kynnt í ríkisstjórn
skýrslu um eflingu
kornræktar. Ráðherra lagði
þar til að stuðningur hins
opinbera við kornrækt hér á
landi yrði sambærilegur því
sem er í Danmörku.
Kornrækt á Íslandi nemur
nú um 15 þúsund tonnum og
hefur farið ört vaxandi síðustu
ár. Miðað við núverandi
rekstrarforsendur er þó talið
að hægja muni á þessari
aukningu.
En það er mat skýrslu-
höfunda að með þreföldun
íslenskrar kornræktar megi
spara þjóðarbúinu 200 mill-
jónir í gjaldeyri og fullnægja
byggþörf í íslenskum land-
búnaði. Þar með má efla
hagvarnir og fæðuöryggi
þjóðarinnar, stuðla að stöð-
ugra rekstrarumhverfi í land-
búnaði og auka fjölbreytni í
Skagaströnd og Skagafjörður
Biskup Íslands í heimsókn
Biskupinn yfir Íslandi, herra
Karl Sigurbjörnsson, kom
fyrr í vikunni í stutta
heimsókn á Skagaströnd.
Var biskup í ferð með
starfsfólki biskupsstofu og
lá leið þeirra að Löngumýri í
Skagafirði með viðkomu á
Skagaströnd.
Á Skagaströnd tóku þau
Lárus Ægir Guðmundsson,
formaður sóknarnefndar, og
Úrsúla Árnadóttir, sóknar-
prestur, á móti hópnum og
buðu honum til kirkju.
Lárus sagði frá kirkju á
Spákonufelli frá upphafi kristni
og til kirkju á Skagaströnd á
vorum dögum. Hann sagðist
hafa ræðuna stutta en ekki væri
víst að hún hefði verið jafn stutt
ef meðhjálparinn, Steindór R.
Haraldsson, hefði haft tök á því
að mæta og flytja ræðu, en
hann var í Reykjavík.
Úrsúla sagði frá sóknarstarf-
inu og þar með æskulýðsstarfi
sem er í miklum blóma.
Biskup þakkaði fyrir mót-
tökurnar og sagði það ávallt
ánægjulegt að koma á Skaga-
strönd. Að þessu loknu leiddi
Magnús B. Jónsson, sveitar-
stjóri, hópinn í skoðunarferð
um Skagaströnd. Ferðinni var
svo framhaldið og ók hópurinn
fyrir Skaga og inn í Skagafjörð.
Ástkær dóttir okkar, móðir og systir
Þóra Elín Þorvaldsdóttir
lést fimmtudaginn 12. maí.
Jarðarförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
mánudaginn 23. maí 2011 kl. 14:00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
Þóru Elínar er bent á Framtíðarreikning Jóhanns Einars
sonar hennar í Sparisjóði Skagafjarðar
númer 1125-18-560510 kt. 051008-3080.
Kristín Snorradóttir Þorvaldur Einar Þorvaldsson
Jóhann Einar Axelsson
Jón Þór Þorvaldsson
Einar Logi Þorvaldsson
A N D L Á T
atvinnulífi hinna dreifðu
byggða.
Styrkir til kornræktar á
Íslandi eru í dag aðeins brot af
því sem tíðkast í nágranna-
löndunum. Þannig eru þeir
þrefalt hærri í Danmörku en
hér á landi og ef mið er tekið
af Finnlandi er munurinn
sexfaldur.
Í minnisblaði ráðherra
kemur fram að á næstunni
verði hafnar viðræður við
Bændasamtök Íslands um
mögulegar breytingar á bú-
vörusamningi sem miði að
auknum styrkjum til korn-
ræktar. Sömuleiðis verður
ráðist í úttekt á stöðu fæðu-
öryggis í landinu.
Myndin var tekin þegar starfshópurinn skilaði af sér til ráðherra en á henni eru nefndarmenn
ásamt ráðherra, ráðuneytisstjóra og aðstoðarmanni ráðherra, f.v. talið Sveinn Ingvarsson, Torfi
Jóhannesson, Jón Bjarnason, Þorsteinn Tómasson formaður hópsins, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir,
Eyjólfur Sigurðsson, Áslaug Helgadóttir, Sigurgeir Þorgeirsson og Hörður Harðarson. Á myndina vantar
tvo nefndarmenn, þau Bergþóru Þorkelsdóttur og Ólaf Eggertsson.
Hópurinn í Hólaneskirkju. Mynd Skagaströnd.is