Feykir


Feykir - 19.05.2011, Side 4

Feykir - 19.05.2011, Side 4
4 Feykir 19/2011 Leikmannakynning Guðný Þóra Guðnadóttir Laufey Rún Harðardóttir Sunna Björk Atladóttr Pétur Björnsson aðstoðarþjálfari Brynhildur Ólafsdóttir Harpa Sif Jónsdóttir Rakel Svala Gísladóttir Svava Rún Ingimarsdóttir Elísabet Haraldsdóttir Hrafnhildur Guðnadóttir Sandra Hilmarsdóttir Svava Stefanía Sævarsdóttr Erla Björk Björnsdóttir Kristín Halla Eiríksdóttir Sigurbjörg Þ. Marteinsdóttir Þóra Rut Jónsdóttir Fríða Rún Jónsdóttir Kristveig Anna Jónsdóttir Snæbjört Pálsdóttir Bjarki Már Árnason þjálfari Tindastóll – mfl. kvenna Meistaraflokkur kvenna leikur í B- riðli 1. deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu í sumar ásamt sex öðrum liðum. Mikill og góður stígandi hefur verið í liðinu undanfarin ár og er mikill metnaður hjá Tindastóli að því gangi sem best. Fyrsti leikurinn hjá stelpunum er nk. sunnudag þegar Fjölnir Reykjavík fær þær í heimsókn en fyrsti heimaleikur verður föstudaginn 27. maí er Draupnir frá Akureyri mætir á svæðið. Nýlega var gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara en það er Pétur Björnsson margreyndur fót- boltakappi af Vestfjörðum. Aðalþjálfari er Bjarki Már Árnason sem einnig þjálfaði liðið í fyrra. „Það er mikil tilhlökkun í stúlkunum að Íslandsmótið sé loksins að byrja og eru þær gríðarlega ákveðnar í að standa sig vel í sumar. Og er ég ekki nokkrum vafa um að sumarið verði gott, því getan er klárlega til staðar til að ná flottum úrslitum.“ segir Bjarki. ( ÁSKORENDAPENNINN ) Ég ætla fyrst og fremst að beina orðum mínum til sauðfjárbænda og langar að deila með þeim reynslu okkar af því að vera með lífrænan sauðfjárbúskap. Það er útbreiddur misskilningur að það sé flókið fyrirbæri. Við meðhöndlum sauðkindina svipað og forfeður okkar gerðu áður en innfluttur áburður kom til sögunnar. Hér er fjárhúsum sjaldan lokað því ærnar ráða því hvort þær eru úti eða inni. Hefur það sýnt sig að þær kjósa að vera utan dyra í flestum tilfellum. Það er einungis ef hvasst er eða mikið vatnsveður sem þær Helga Þórðardóttir skrifar úr Lýtó Hinn íslenski fóðurbætir kjósa að liggja inni. Nokkur umræða hefur verið að undanförnu um meðferð á dýrum. Ég tel ástæðu til að sauðfjárbændur líti í eigin barm og velti fyrir sér hvort sauðkindinni hugnist að vera lokuð inni í illa loftræstum fjárhúsum marga mánuði á ári. Við notum eingöngu laust þurrhey sem við geymum í hlöðum eða fúlgum. Það er að sjálfsögðu meiri vinna að vera með laust hey en á móti kemur að nýting heyjanna er mun betri en þegar heilu rúllurnar eru gefnar úti. Það er líka mikið ódýrara en að kaupa plast utanum allan heyforðann. Svo er maður laus við að útsvína nágrennið með fjúkandi plasti og hefur ekki samviskubit vegna gjaldeyriseyðslu. Einnig sparast olía því ekki er ástæða til að eiga dýrar og eyðslufrekar dráttarvélar. Það er reyndar "hinn íslenski fóðurbætir" sem mig langar að benda sauðfjárbændum á hvort sem þeir eru með lífræna framleiðslu eða ekki. Við höfum gefið fénu fiskúrgang í nokkur ár með afar góðum árangri. Þetta eru bein og roð og annar afskurður sem til fellur í fiskvinnslunni. Við hökkum úrganginn og söltum hann. Hann er síðan gefinn í stampa sem féð hefur frjálsan aðgang að. Heilsufar er afar gott hjá fénu og þökkum við það ekki síst fiskúrganginum. Þó getur vel verið að það tengist því að við notum ekki innfluttan áburð. Það er undarleg ráðstöfun, finnst mér, að flytja fiskúrgang úr landi til að ala dönsk loðdýr en flytja inn í stórum stíl fóðurbæti og áburð til að framleiða "íslenskt lambakjöt". Er ekki þarna leið til að spara gjaldeyri ? Lítum okkur nær og notum það sem íslensk náttúra gefur okkur og hættum að henda verðmætum í sjóinn. - - - - - - Ég skora á Magneu Guðmundsdóttur á Varmalæk að verða næst til að munda pennann. Háskóli unga fólksins á Skagaströnd Í lok vikunnar Háskólalestin verður á Skagaströnd á tímabilinu 20. -21. maí nk. Í tilefni aldarafmælis HÍ 2011 verður starfsemi HUF með hátíðarsniði og skólinn á faraldsfæti. Þar ber hæst ferð Háskóla unga fólksins með svokallaðri Háskólalest sem heimsækir níu áfangastaði á landinu í samstarfi við Rannsóknarsetur HÍ á landsbyggðinni, grunnskóla, sveitarfélög o.fl. Frá og með 29. apríl til 28. ágúst 2011 verða valin námskeið HUF, ætluð börnum frá 12 til 16 ára, haldin víðs vegar um landið undir for- merkjum Háskólalestarinnar. Til viðbótar við námskeið fyrir unga fólkið verður fjöl- þætt dagskrá fyrir alla aldurs- hópa á hverjum áfangastað, viðburðir, uppákomur, örfyrir- lestrar og margt fleira. Háskólalestin er skipulögð í nánu samstarfi við Vísindavef Háskóla Íslands en á vefnum verður sérstakur „brautar- pallur“ lestarinnar. Á Vísinda- vefnum verður m.a. fróðleikur um hvern áfangastað lest- arinnar, tekinn saman með virkri þátttöku grunnskóla- nemenda og Rannsóknasetra HÍ. Nemendur vinna jafnt spurningar og svör á vefinn ásamt öðru efni, svo sem myndböndum og hlaðvarpi. Blönduós Betri afkoma en búist var við Rekstrartekjur Blönduóss- bæjar námu á árinu 2010 alls um 620 millj. kr. samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta sem er nokkuð hærra en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði var neikvæð um 4,9 milljónir kr. Rekstrarniðurstaða sveitar- félagsins samkvæmt sama- teknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var neikvæð um 41 milljón kr. og er 12 milljónum kr. betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Skuldir og skuldbindingar samtals eru 1.180.172 þús. kr. árið 2010 en voru 865.389 þús. kr. árið á undan. Tekin ný langtímalán eru 250 milljónir kr. Afborganir langtímalána ársins 2010 voru 78 milljónir kr. Þetta kemur fram í bókun sem lögð var fram fundi Bæjarstjórnar í síðustu viku en þar kemur einnig fram að árið 2010 var mikið framkvæmdaár og námu eignfærðar fram- kvæmdir ársins um 327 milljónum kr. Lokið var við framkvæmdir við sundlaugina á Blönduósi og talsverðar framkvæmdir voru á vegum byggðasamlaga sem Blönduós á aðild að og má nefna miklar endurbætur sem voru gerðar á Kvennaskólanum á Blönduósi og endurbætur á íbúðum eldri borgara í Hnitbjörgum.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.