Feykir - 19.05.2011, Blaðsíða 5
19/2011 Feykir 5
Íþróttafréttir Feykis ( MITT LIÐ )
Nafn: Aðalsteinn Arnarson.
Heimili: Tjarnargata 39, 101 Reykjavík.
Starf: Þjónustufulltrúi í Landsbankanum.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum og af
hverju? Manchester United er mitt lið. Ég man nú ekki
eftir mér öðruvísi en að halda með
þeim, þannig að ég gæti best trúað
því að á meðan ég var mjög ungur
hafi einhver lagt sig fram um að
gera mig að stuðningsmanni þeirra.
Væntanlega hefur þessi aðili haft það
fyrir augum að gera uppvaxtarárin
eins skemmtileg og hægt var, enda
hef ég fagnað mörgum sigrum með
mínu liði í gegnum árin.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar á
umræddu liði? Ekki beint deilum
kannski. En ég hef oft lent í því að þurfa
að skýra út fyrir stuðningsmönnum
annarra liða að Manchester United
séu bestir og eigi undantekningalaust
sigra sína fyllilega skilið, en aftur á
móti séu þeir yfirleitt beittir óréttlæti
í þau örfáu skipti sem tapa.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? Ég held að ég verði
að fá að nefna 3 leikmenn hér. Þá
Ryan Giggs, David Beckham og Paul Scholes. Allt saman
frábærir leikmenn sem hafa látið mikið að sér kveða í
rauða búningnum.
Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? Já ég hef farið
tvisvar sinnum í Leikhús draumanna. Fyrra skiptið var
árið 2000. Þá fékk ég ferð á leik í fermingargjöf þannig
að ég verð eiginlega að þakka guði fyrir það þó svo að
mamma og pabbi hafi lagt út fyrir þessu. Þá tóku mínir
menn á móti Chelsea og unnu 3-2 með tveimur mörkum
frá Dwight Yorke og einu frá Óla Gunnari Sólsker. Síðan
fór ég árið 2005 á leik gegn Tottenham. Þetta var down-
tímabil hjá United-liðinu og þeir enduðu ekki nema í 2.
sæti. Leikurinn fór 1-1 og skoraði Mikael Silvestre mark
United.
Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? Já, eitthvað á
ég af þeim. Helst eru það keppnistreyjur en einnig ýmsa
aðra hluti. Sá skemmtilegasti er líklega vekjaraklukka sem
pabbi fékk í afmælisgjöf þegar hann var fertugur en ég sló
eignarhaldi á gripinn. Þessi klukka vakti mig og aðra íbúa
götunnar í mörg ár með hinu geysivinsæla lagi ,,Glory,
Glory Man United“.
Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í
stuðningi við liðið? Það halda allir í fjölskyldunni með
Manchester United, það er skilyrði fyrir inngöngu. Viddi,
hundurinn á heimilinu, hefur þó haft miklar tilfinningar til
Wolves, en það er bara vegna þess að hann hefur lifað í
þeim misskilningi að hann sé úlfur. Kærastan er eitthvað
á villigötum ennþá en ég er að vinna í þessu.
Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag?
Nei, maður skiptir ekki út hlutum sem ekkert er hægt að
setja út á.
Uppáhalds málsháttur? Þetta er eiginlega meira
orðatiltæki sem stuðningsmenn Liverpool hafa verið
duglegir að grípa til þegar 3-5 leikir eru liðnir af hverju
tímabili í úrvalsdeildinni. Þetta hljómar einhvernvegin
svona: ,,Djöfull rústum við þessu á næsta tímabili!“
Einhver góð saga úr boltanum? Ég hef aldrei verið góður
í því að muna tölur. Hvort sem það eru símanúmer, ártöl
eða nákvæm úrslit leikja. Ég hef þó yfirleitt verið með
það á hreinu hvernig staðan er í þeim leikjum sem ég
spila sjálfur, alla vega á meðan leikurinn er í gangi. Þetta
klikkaði þó eitthvað í heimaleik í 2. deild fyrir nokkrum
árum síðan gegn Reyni Sandgerði. Þegar stutt var eftir af
leiknum skora Reynismenn og minnka muninn í eitt mark,
að ég hélt. Mér fannst mínir menn vera full kærulausir og
rólegir yfir þessu þannig að ég lét þá aðeins heyra það. Við
tökum í kjölfarið miðju og það er Halldór Jón Sigurðsson
(Donni) sem sér um það. Eitthvað fór hann vitlaust
að þessu og gaf dómarinn honum þá sitt annað
gula spjald og þar með rautt. Donni hló að
þessari vitleysu í dómaranum og tók þessu
ekki mjög alvarlega en rölti út af. Mér fannst
þetta alveg fáránlegt af Donna, að vera
láta reka sig út af fyrir eitthvað rugl þegar
munurinn var aðeins eitt mark og lítið
eftir af leiknum, þannig að í hita leiksins
hraunaði ég yfir hann fyrir að vera að þessari vitleysu.
Donni rölti samt bara út af hinn rólegasti. Leiknum lauk
síðan án þess að fleiri mörk hafi verið skoruð og við
fögnuðum sigri. Upp í klefa barst það síðan eitthvað í tal
af hverju ég hafi verið svona uppstökkur og æstur í lokin.
Ég útskýrði það að mér hafi fundist
menn vera allt of rólegir og kærulausir
þegar andstæðingurinn hafi minnkað
muninn í eitt mark. Þá kom það upp
úr krafsinu að þeir minnkuðu muninn
alls ekkert í eitt mark eins og ég hélt,
heldur í 5-3 þannig að ég hafði ekki
alveg verið með talninguna á hreinu
og lifað í mesta misskilningi lengst af
í leiknum.
Hefur Öddi Ragnars (pabbi þinn)
kennt þér einhver lymskubrögð
sem hægt er að nota í boltanum?
Kennt og ekki kennt... Hann hefur
nú aldrei tekið mig undir höndina og
farið í gegnum einhver fantabrögð
með mér, ef verið er að fiska eftir því.
Ég hef náttúrulega bara séð hann
spila með Old Boys. En þegar ég hef
heyrt einhverjar sögur af honum frá
því í denn og spurt hann út í þær þá
hefur það yfirleitt verið einhver annar
sem átti upptökin samkvæmt því
sem pabbi segir.
Ég sjálfur hef nú blessunarlega ekki gert mikið af því að
láta illa inni á vellinum, en í þau örfáu skipti sem það
hefur komið fyrir þá hef ég alltaf séð mikið eftir því. Sem
betur fer hef ég þó nánast aldrei þurft að afsaka þetta
mikið fyrir eldra fólki út í bæ. Því ef þetta ber á góma þá er
það er yfirleitt fyrra til en ég og segir eitthvað á þessa leið:
,,Iss, þetta er nú ekkert. Þú hefðir átt að sjá hann pabba/
frænda þinn hérna á vellinum í gamla daga.“
Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða
orðið fyrir? Það var í einum leik hérna um árið við Hamar
frá Hveragerði á Sauðárkróksvelli að títtnefndur faðir minn,
Örn Ragnarsson, var til taks á bekknum með sjúkratöskuna
eins og hann hefur stundum gert. Í leiknum gerist það að
leikmaður okkar, Stefán Arnar Ómarsson meiðist og liggur
óvígur eftir á vellinum. Pabbi er kallaður inn á völlinn til
þess að hlúa að honum og þetta tekur dálítinn tíma.
Hamarsmenn voru orðnir eitthvað pirraðir á þessu og fóru
að arga og garga að þessi læknir þyrfti bara að fara út
fyrir völlinn og hlúa að manninum þar. Dómarinn tók undir
þessar kvartanir með Hamarsmönnum og bað pabba að
fara útaf með manninn. Pabbi svaraði engu, lét sem hann
heyrði ekki í dómaranum og hélt bara áfram að tjasla
Stefáni saman. Hamarsmenn voru orðnir mjög pirraðir á
þessu og vildu fá leikinn í gang og dómarinn ítrekaði það
við pabba að koma manninum útaf. Þá greip ég inn í og
tilkynnti dómaranum og þessum allra æstustu leikmönn-
um Hamars að það þýddi ekkert að ræða við lækninn,
hann væri útlendingur og skildi ekki íslensku. Menn fóru
þá að spyrja að því hvort hann talaði ekki dönsku eða
ensku. Ég svaraði því um hæl neitandi og sagði að hann
væri pólskur og talaði ekkert nema pólsku, þannig að það
þýddi ekkert að reyna tala við hann. Úr því svo var fékk
pabbi að klára að hlúa að Stefáni inni á miðjum vellinum
og menn biðu á meðan. Hamarsmenn voru orðnir frekar
pirraðir þegar yfir lauk, eins og gefur að skilja.
Spurning frá Jóhanni Helgasyni. - Hversu oft hefur fjöl-
skyldan í Lerkihlíð 1 samtals fengið rauða spjaldið á
knattspyrnuvellinum?
Svar... Þau eru nú ekki mörg og ég man bara hreinlega
ekki eftir neinu. En til þess að geta svarað spurningunni
þá fór ég nú samt inn á heimasíðu Knattspyrnusambands
Íslands til þess að reyna finna upplýsingar um þetta. En
það er því miður greinilegt að kominn er einhver vírus í
gagnagrunninn hjá þeim því það var ekkert að marka það
sem þar var gefið upp.
Hvern viltu sjá svara þessum spurningum? Ég vil
endilega að Sigmundur Birgir Skúlason fái tækifæri til
að segja frá því sem honum liggur á hjarta.
Hvaða spurningu viltu lauma að viðkom-
andi? Nú ert þú Púllari Simmi. Og sem slíkur
þá hlýtur þú að vera löngu farinn að hugsa
um næsta tímabil. Hvernig leggst það í
þig?
Knattspyrna : 2. deild karla
Tindastóll/Hvöt laut
í gras fyrir Hetti
Tindastóll/Hvöt fór á
Egilsstaði á laugardaginn og
spilaði þar fyrsta leik
sumarsins. Lokatölur
leiksins urðu 1-0 fyrir Hött.
Leikurinn fór fram á
gervigrasvellinum í Fellabæ.
Leikurinn fór rólega á stað,
en Hattarmenn þó ívið sterkari
aðilinn, án þess þó að skapa sér
teljandi marktækifæri. Tinda-
stóll/Hvöt komst svo meira og
meira inn í leikinn, en tókst
ekki heldur að skapa sér hrein
marktækifæri. Þessi leikur var
frekar harður og eðlilega
svolítill vorbragur á leik
liðanna. Hattarmenn áttu
nokkur langskot í þessum leik
sem ógnuðu marki okkar
manna ekki mikið. Við áttum
hinsvegar nokkrar vel útfærðar
sóknir sem við náðum ekki að
binda endahnútinn á.
Nokkrar breytingar voru
gerðar á liði Tindastóls/Hvatar
frá síðasta leik. Fannar Örn
Kolbeinsson kom inní liðið
fyrir Arnar Skúla sem var að
taka út leikbann. Óskar Vignis
leysti síðan stöðu Ingva
Hrannars sem er meiddur frá
síðasta leik. Árni Einar kom
aftur inn í liðið eftir meiðsli og
bar fyrirliðabandið í leiknum
og stóð fyrir sínu.
Heilt yfir þá var leikur okkar
manna ágætur. Við gáfum lítil
færi á okkur en sóknarleikur-
inn gekk misjafnlega. Oft á
tíðum var of langt bil á milli
sóknar og miðju og stuðningur
við fremstu menn þar af
leiðandi ekki nægur.
Þegar rúmar 10 mínútur
voru eftir að leiknum fékk
leikmaður Hattar sendingu inn
fyrir vörn okkar og skoraði
sigurmark leiksins. Líklega
hefur leikmaðurinn verið rang-
stæður og því markið ólöglegt.
Í uppbótartíma átti Hilmar
Kárason skalla í þverslá en inn
vildi boltinn ekki.
Næsti leikur er heimaleikur
gegn Fjarðabyggð, laugardag-
inn 21. maí. Hann verður
spilaður á Blönduósi og byrjar
leikurinn kl: 14:00. Við hvetjum
alla til þess að skreppa yfir
fjallið í laugardagsbíltúr og
styðja strákana okkar nú eða
bara að skreppa út á völl og
leggja sitt að mörkum.
Heimild: Tindastóll.is
Körfuboltabúðir Tindastóls
Kunnir kappar ætla
að mæta á svæðið
Skráningar eru nú í
fullum gangi á
þjálfaranámskeið
sem körfuknatt-
leiksdeild Tindastóls
mun halda í júní í
tengslum við
körfuboltabúðir
félagsins..
Meðal kunnugra
kappa sem hafa boðað
komu sína á nám-
skeiðið eru Ingi Þór
Steinþórsson þjálfari
Snæfells og Benedikt
Rúnar Guðmundsson
þjálfari Þórs í
Þorlákshöfn. Einnig
ætla nýráðnir þjálfarar
Njarðvíkur, þeir Friðrik Ragnarsson og Einar Árni Jóhannsson
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið verður haldið 10. og 11. júní, í aðdraganda
körfuboltabúðanna. Um öflugt námskeið verður að ræða og fá
þjálfarar þátttökuna metna inn í fræðsluáætlun KKÍ.
Iss, þetta er nú ekkert