Feykir - 19.05.2011, Page 8
8 Feykir 19/2011
Hugsað um barn
Foreldrar í
tvo sólarhringa
Nemendur í 9. bekk Árskóla
svo og nemendur í 8. -10.
bekk Höfðaskóla voru í
síðustu viku og um helgina
þátttakendur í verkefninu
hugsað um barn. Verkefnið
gengur út á það að
nemendurnir fá í hendurnar
raunveruleikabörn eða
dúkkur sem líkja eftir hegðun
þriggja mánaða ungabarna,
ekki bara á daginn heldur
allan sólahringinn. Feykir
fylgdist með verkefninu.
Áður en nemendur skólanna
fengu börnin afhent fengu
þau fræðslu frá Ólafi Grétari
Gunnarssyni sem ræddi við
börnin um þá alvöru sem fylgir
því að verða ungir foreldrar
auk fleiri vandamála sem geta
herjað á ungt fólk. Verkefnið
fellur vel að námskrá skólans
í lífsleikni og er talið efla
jafnréttisumræðu.
Á Sauðárkróki gekk verk-
efnið vel þó að einhverjar
dúkkur hafi bilað í miðju
verkefni. Krakkarnir sástu á
gangi um bæinn með „börnin“
sín í vögnum og burðarpokum
og tóku flest hinu nýja
hlutverki mjög alvarlega.
Stelpurnar gengu þó skrefinu
lengra klæddum börn sín vel
og vandlega og héldu á þeim
líkt og um alvöru ungabarn
væri að ræða.
Feykir kíkti við í dönsku-
tíma en samhliða því að læra
voru krakkarnir að gefa pela,
vagga, skipta á, nú eða gera
aðra hluti sem gera þarf þegar
hugsað er um kornabörn. Við
spurðum strákana hvernig
verkefnið væri? „Þetta er
eiginlega einum of raun-
verulegt. Við fengum að velja
hvort við tækjum barn eða
skrifuðum ritgerð. Eftir á að
hyggja hefði ritgerðin kannski
verið auðveldari,“ sögðu strák-
arnir sem margir hverjir höfðu
ekki fengið mikinn svefn.
Stelpurnar höfðu meira
gaman að verkefninu en
margar sem dags daglega eru
líkt og klipptar út úr tískublaði
mættu í jogginggallanum,
ómálaðar og ógreiddar, það er
jú ekki tími til þess að huga að
útlitinu þegar börnin kalla.
Aðspurð um hversu góð
getnaðarvörn dúkkan væri á
skalanum eitt til tíu hrópuðu
krakkarnir 11. Já líklega
virkaði þetta á Króknum.
Börnin fóru á
Skagaströnd
Eftir tveggja sólahringa dvöl
á Króknum héldu börnin
á Skagaströnd þar sem þau
dvöldust um helgina. Á
laugardagsmorgun bauð skól-
inn nýbökuðum foreldrum
upp á djús og kex í skólanum
og var haldinn foreldramorg-
un að fyrirmynd kirkjunnar.
Krakkarnir fóru að týnast
inn upp úr ellefu á laugar-
dagsmorgun og voru þau
misþreytt eftir nóttina, sumir
höfðu fengið að sofa meira og
minna alla nóttina á meðan
aðrir höfðu mátt vakna til
barna sinna á klukkutíma
fresti. Krakkarnir voru
engu að síður mjög jákvæð
fyrir verkefninu og fannst
skemmtilegt að fá að prófa
að annast alvöru barn. Að
sögn Hildar Ingólfsdóttur,
skólastjóra, höfðu krakkarnir
sum hver sett allt á annan
endann heima við í leit að
gömlum barnafötum til að
klæða börnin sín í. Það var
hugað að hverju smáatriði.
Strákarnir voru með það á
hreinu að verkefnið væri til
þess ætlað að þeir yrðu ekki
pabbar svona ungir en voru
engu að síður á þeirri skoðun
að verkefnið væri mjög
skemmtilegt. Einn þeirra
hafði sett ungbarnavöggu
upp við hliðina á rúminu
sínu til þess að gera verkefnið
raunverulegra.
Krakkarnir voru sam-
mála um forvarnagildi verk-
efnisins en hvað getnaðar-
varnastuðulinn varðaði voru
þau á því að þetta væri getn-
aðarvörn upp á svona sjö á
meðan krakkarnir á Króknum
voru með töluna 11 af 10
mögulegum.
Unga konan sem vaknaði á
klukkutíma fresti alla nóttina
sagði verkefnið hafa þveröfug
áhrif á sig. Sig væri bara farið
að langa í barn eftir nóttina.
Uppskar hún mikinn hlátur
fyrir þessi ummæli sín.
Krakkarnir voru sammála
um að fyrirlesturinn sem
þau fengu áður en þau fóru
af stað í verkefnið hafi virkað
vel á þau og sérstaklega hafði
áhrif á þau þegar þau fengið
að sjá dúkkubörn sem höfðu
orðið fyrir skaða vegna neyslu
móður á fíkniefnum og vegna
reykinga móður á meðgöngu.
Hildur skólastjóri Höfðaskóla
var gríðarlega ánægð með
verkefnið og sagði að það
væri örugglega komið til
þess að vera á þriggja ára
festi hjá þeim. „Miðað við
þann áhuga sem krakkarnir
í 7. bekk sýndu verkefninu
eigum við ekki eftir að geta
skorast undan þegar kemur
að þeim. Verkefnið er mjög
skemmtilegt og fróðlegt en
jafnframt mjög kostnaðarsamt
og erum við þakklát fyrir þá
velunnara skólans sem hafa
styrkt okkur svo hægt var að
fara út í verkefnið.“
Þegar tekin er niðurstaða
úr báðum skólunum kemur
í ljós að jafn foreldrar ungu
foreldranna, ungu foreldrarn-
ir, það er nemendurnir, svo og
skólastarfsfólk er gríðarlega
ánægt með verkefnið.
Börnin vilja alla þá athygli
sem venjuleg börn fá. Ekki er
hægt að losa af þeim eina bleiu
og setja hana aftur heldur þurfa
börnin að skipta alveg um
bleiu líkt og um raunveruleg
börn væri að ræða. Nemar eru
í börnunum sem skynja hvort
reynt er að rugga þau í ró gráti
þau. Eins verða foreldrarnir að
sinna barninu innan ákveðins
tíma því allt er vandlega skráð
í tölvukerfi barnsins og síðan
prentað út og gefin einkunn
eftir því að verkefni loknu.
Á Skagaströnd verður farið
í verkefnið á þriggja ára fresti
og þá allt unglingastigið í einu
en á Sauðárkróki er stefnt að
því að níundi bekkur fái barn
ár hvert.
Flott framtak þetta!
Á ég að hjálpa þér góurinn.
Krakkarnir á Skagaströnd þreytuleg eftir fyrstu nóttina. Á myndina vantar hluta foreldra.
Amman, pabbinn og föðursystirin. Öll svakalega spennt yfir hinum nýja hlutverki sínu.
Skagfirskir foreldrar.