Feykir


Feykir - 19.05.2011, Page 10

Feykir - 19.05.2011, Page 10
10 Feykir 19/2011 Sönglög í Sæluviku Menningarhúsið Miðgarður í Varmahlíð Sæluvikan hófst með látum þegar blásið var til tónlistarveislu í Miðgarði föstudagskvöldið 29. apríl sl. Mun þetta vera þriðja árið í röð sem tónleikar sem bera yfirskriftina „Sönglög í Sæluviku“ eru haldnir og er þetta vonandi orðinn fastur liður í sæluvikudagskránni. Fullt var út úr dyrum og stemningin í salnum gríðargóð. Þarna leiddu saman hesta sína frábærir tónlistarmenn, með reynsluboltann Stefán R. Gíslason í broddi fylkingar. Söngvararnir komu úr ýmsum áttum en þar ber fyrst að nefna Eyþór Inga Gunnlaugsson og Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur júróvisionstjörnu sem skiluðu sínu af stakri snilld eins og þeim er von og vísa til. Heimafólkið stóð sig ekki síður vel. Einkar gaman var að sjá unga fólkið spreyta sig en bæði Sigvaldi Helgi Gunnarsson og Ása Svanhildur Ægisdóttir sýndu að þau eiga mikla framtíð fyrir sér á tónlistarsviðinu. Blönduhlíðarskvísurnar Kolla, Lína og Íris sungu af hjartans list sem og Silla. Dúi átti góða takta og Gunni og Jón Hallur skemmtu bæði sér og öðrum. Efniskráin var úr ýmsum áttum og tekin voru fyrir bæði íslensk og erlend lög. Segja má með sanni að þarna hafi farið fram stórkostleg skemmtun og greinilegt var að mikil vinna og metnaður hefur verið lagður í. Texti Helga Rós Sigfúsdóttir. Hópurinn saman kominn á sviðinu. Kvikmyndasmiðju lokið Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra Sl. föstudag luku átta þátttakendur úr hópi atvinnuleitanda kvikmyndanámi hjá Skottufilm. Námið var að frumkvæði Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra sem lagði til að sett væri upp tímabundið kvikmyndasmiðja á Sauðárkróki fyrir atvinnuleitendur. Vinnumarkaðsráð lagði fjármagn til verkefnisins og sá síðan Farskól- inn um að skipuleggja námskeiðið, en það kom síðan í hlut Árna Gunnarssonar hjá Skottufilm að sjá um framkvæmdina. Kvikmyndasmiðjan stóð yfir í tvo mánuði og var 150 klukkustundir að lengd. Þátttakendur lögðu á sig mikla vinnu í smiðjunni og tóku upp efni bæði á kvöldin og um helgar. Helstu námsþættir voru; inngang- ur að gerð kvikmynda og stuttmynda. Hljóð og mynd, uppbygging, samspil og framsetning. Uppbygging á myndrænni frásögn, grundvallaratriði við gerð kvikmyndahandrits. Þátttakendur lærðu á ,,alvöru" kvik- myndatökuvél; lýsingu og hljóð, bæði inni og úti og um klippingu og frágang. Föstudaginn 13. maí var Kvik- myndasmiðjunni slitið formlega með því að þátttakendur frumsýndu fjórar stuttmyndir sem allar tengdust Gretti Ásmundarsyni með einhverjum hætti. Myndirnar voru jafn ólíkar og þær voru margar en báru stimpil Grettis hvað varðaði blóð og nálægðina við dauðann. Jóhanna Guðrún syngur af innlifun. Heimafólk á sviði. Eyþór rokkaður að flottur.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.