Feykir


Feykir - 07.02.2013, Qupperneq 4

Feykir - 07.02.2013, Qupperneq 4
4 Feykir 05/2013 Ingibjörg Arnheiður Halldórsdóttir er brottfluttur Skagfirðingur Ætlar að heimsækja allar sundlaugar landsins Mér er eftirminnilegt samtal við bekkjarsystur mína þegar við vorum í 1. bekk Grunnskólans á Hofsósi. Í frímínútum virtum við fyrir okkur teikningar af sundlaug og íþróttahúsi sem fyrirhugað var að byggja. Við vorum spenntar yfir þessu og reiknuðum út að mannvirkin myndu rísa áður en við útskrifuðumst úr skólanum. Ég sagði uppveðruð: „Við getum farið í sund í hverri viku!“ Þetta voru dásamleg tíðindi en ég hafði fyrr um haustið uppgötvað sund þegar ég fór í skólasund á Sólgörðum í Fljótum. Árin liðu og ekkert bólaði á sundlauginni. Ég fór í skólasund á haustin, tvær vikur í senn og fyrstu dagarnir fóru í að rifja upp sundtökin frá fyrra ári. Árið 2010 var loks tekin í notkun sundlaug á Hofsósi en þá var ég hætt í grunnskóla, sem betur fer því að annað hefði verið vandræðalegt. Flestir þekkja söguna um sundlaugina enda hefur hún vakið verðskuldaða athygli. Hún var sannarlega biðarinnar virði. Það er óhætt að segja að þessi sundlaug hefur tilfinningalegt gildi fyrir mig og er uppáhaldssundlaugin mín. Þegar ég fer heim á æskustöðvarnar er frábært að fara í sund og eiga skemmtilegt pottaspjall ásamt því að synda og slaka á umvafin Skagafirði. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim góðu konum sem gáfu sundlaugina til samfélagsins og einnig sveitarfélaginu sem sér um allan rekstur. Árið 2011 setti ég mér það markmið að heimsækja allar sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu og þegar því markmiði var náð þá setti ég mér langtímamarkmið og það er að fara í allar sundlaugar landsins, samkvæmt lista á www. sundlaug.is eru þær 127 talsins. Sumum finnst þetta furðuleg árátta enda fórnuðu foreldrar mínir höndum þegar ég sagðist ætla í sund í Lýtingsstaðarhreppi, þá í fyrsta sinn á ævinni. „En þú ert með bestu sundlaug landsins í næsta nágrenni!“ Ég var tvístígandi og hugsaði með mér að auðvitað væri það hálf kjánalegt að eyða bensíni í sundferð í Lýdó. En ég hafði sett mér markmið. Ég bauð með mér þremur skemmtilegum ferðafélögum, veðrið var svo yndislegt að þvotturinn blakti ekki á snúrunni á Steinsstöðum. Kvöldsólin skein, Mælifellshnjúkurinn var fegurri en nokkru sinni fyrr og á heimleiðinni var keyptur ís í Varmahlíð. Úr varð ótrúlega skemmtilegt kvöld og þau eru mörg sniðugu atvikin sem ég hef upplifað af því að ég „þarf“ að prufa nýja sundlaug. Stundum er nefnilega pínu mál að stíga út fyrir þægindahringinn, nenna ekki. Það er oft vesen að breyta til og og þá er auðvelt að segja „ég geri þetta seinna“. Ég tók þennan áhuga svo einu skrefi lengra og kom af stað sundlaugakeppni í vinnunni minni. Þetta var stigakeppni sem heppnaðist vel. Oftar en ekki var keppnin kveikjan að nýjum umræðum í kaffitímanum og gjarnan skipst á skemmtilegum sögum úr sundferðum. Gæti svona sundlaugakeppni slegið í gegn á þínum vinnustað eða verið tilvalin fyrir fjölskylduna og/eða vinahópinn? Ég vona það. Sjáumst í sundi ... ég á ekki nema 83 sundlaugar eftir! - - - - - Ég ætla að skora á fyrrnefnda bekkjarsystur og æskuvinkonu, Sonju Sif Jóhannsdóttur, að skrifa næsta pistil en hún bíður sjálfsagt enn eftir íþróttahúsinu sem var á teikniborðinu í gamla daga. ÁSKORENDAPENNINN UmSj berglindth@feykir.is Blöndulína 3 ( 220 kV ) frá Blöndustöð til Akureyrar Mat á umhverfisáhrifum - álit Skipulagsstofnunar Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Skipulagsstofnun telur að neikvæðustu áhrif Blöndulínu 3 verði sjónræns eðlis og áhrif á landslag og þar með einnig á útivist og ferðaþjónustu og að heildaráhrif fyrirhugaðra framkvæmda m.t.t. þessara umhverfisþátta verði talsvert neikvæð. Þá telur Skipulagsstofnun að Blöndulína 3 muni hafa neikvæð áhrif á landnotkun þar sem hún mun liggja um landbúnaðarhéruð og raska ræktuðu landi og beitarlandi auk takmarkana á landnýtingu vegna byggingarbannssvæðis. Skipulagsstofnun telur að þar sem ekki hefur verið unnt að leggja mat á áhrif efnistöku á hina ýmsu umhverfisþætti þurfi að setja eftirfarandi skilyrði áður en til leyfisveitinga komi: Áður en viðkomandi sveitarfélag veitir framkvæmdaleyfi til byggingar Blöndulínu 3 innan síns sveitarfélags, þurfa að liggja fyrir niðurstöður málsmeðferðar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum vegna efnistöku úr þeim námum sem notaðar verða. Ennfremur telur Skipulagsstofnun að við leyfiveitingar þurfi að setja eftirfarandi skilyrði: 1. Landsnet þarf að endurheimta jafn stórt votlendi og tapast við fyrirhugaðar framkvæmdir í samráði við Umhverfisstofnun og viðkomandi sveitarstjórnir og að ljóst sé á hvaða svæðum endurheimt eigi að fara fram. 2. Landsnet þarf að leggja fram áætlun um vöktun á áflugi fugla á raflínur þar sem skýrt komi fram hvaða svæði eru skilgreind sem vöktunarsvæði og að jafnframt komi fram til hvaða sérfræðiaðila Landsnet hafi leitað til að skilgreina þessi svæði og hverjir framkvæmi vöktunina. Í áætluninni þarf að koma fram að niðurstöður vöktunar verði bornar undir Umhverfisstofnun með mótvægisaðgerðir í huga. 3. Landsnet þarf að hafa samráð við Minjastofnun Íslands um mótvægisaðgerðir m.a. hvaða fornleifar nauðsynlegt sé að merkja og með hvaða hætti það verði gert og að skrá þurfi fornleifar á þeim jörðum þar sem ekki hefur fengist leyfi landeigenda til skráningar. Álitið í heild liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Álit Skipulagsstofnunar og matsskýrsla Landsnets er einnig að finna á heimasíðu stofnunarinnar: www.skipulagsstofnun.is Húshitunarkostnaður á landinu Lægstur í Skagafirði Byggðastofnun fékk Orku- stofnun til að reikna út kostnað við raforkunotkun og húsahitun á sömu fasteign- inni á nokkrum þéttbýlisstöð- um á landinu á ársgrundvelli þar sem viðmiðunareignin var 161,1 m2 einbýlishús og 351m3. Lægsti húshitunar- kostnaðurinn reyndist vera á Sauðárkróki kr. 68.707 en hæsta húshitunarverð er 216% hærra. Af þeim stöðum sem skoð- aðir voru reyndist rafmagnsverð hæst hjá notendum RARIK í dreifbýli kr. 103.059. Í þéttbýli er rafmagnsverð hæst á orku- veitusvæði RARIK kr. 77.533. Lægst er rafmagnsverðið á Akureyri kr. 66.278. Hæsta verð er rúmlega 55% hærra en lægsta verð. Í þéttbýli er hæsta verð 17% hærra en lægsta verð. Þegar kemur að húshitunar- kostnaðinum verða skilin skar- pari segir í Byggkorninu, frétta- bréfi Byggðastofnunar. Þar kemur fram að hæsti kyndingar- kostnaðurinn á orkuveitusvæði RARIK í dreifbýli sé kr. 217.063. Í þéttbýli er kostnaðurinn hæstur á Grundarfirði, Nes- kaupstað og Vopnafirði kr. 187.133. Þess ber að geta að á nokkrum öðrum þéttbýlis- stöðum er húshitunarkostnaður hærri en hér kemur fram fyrir þá íbúa sem ekki eiga kost á hitaveitu eða fjarvarmaveitu. Lægsti húshitunarkostnaðurinn er á Sauðárkróki kr. 68.707. Hæsta verð er 216% hærra en lægsta verð. Í þéttbýli er hæsta verð 172% hærra en lægsta verð. Ef horft er til heildarkostn- aðar þá er kostnaðurinn hæstur í dreifbýli á orkuveitusvæði RARIK kr. 320.123. Heildar- kostnaður í þéttbýli er hæstur á Grundarfirði, Neskaupstað og Vopnafirði kr. 264.686. Lægstur er heildarkostnaðurinn á Sauðárkróki kr. 146.260. Hæsta verð er því 119% hærra en lægsta verð. Í þéttbýli er hæsta verð 81% hærra en lægsta verð. Í Byggkorninu segir, eins og að framan greinir þá eru aðstæður þannig á nokkrum þéttbýlisstöðum að ekki eiga allir húsráðendur kost á hitaveitu eða fjarvarmaveitu. Húshitunar- kostnaður þessara aðila er hærri en fram kemur í súluritinu en sést aftur á móti í samanburðar- töflunni. Þá ber og að hafa í huga að á nokkrum stöðum er veittur afsláttur af gjaldskrá hitaveitu þar sem ekki er hægt að tryggja lágmarkshita vatns til notanda. Einar Gíslason fyrrverandi stjórnarformaður Skagafjarðar- veitna segir að sama orkuverð sé á öllum hitaveitum í Skagafirði þannig að í samanburðinum væri rétt að tala um hitaveitur Skagafjarðarveitna í Skagafirði og skiptir engu máli hvort talað er um dreifbýli eða þéttbýli. -Ánægjulegt er að við komum svona vel úr úr samanburðinum þrátt fyrir miklar framkvæmdir í veitumálum í Skagafirði á liðnum áratug, segir Einar. /PF

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.