Feykir


Feykir - 21.02.2013, Síða 9

Feykir - 21.02.2013, Síða 9
07/2013 Feykir 9 Heilir og sælir lesendur góðir. Friðbjörn Björnsson sem kenndur var við Staðartungu í Hörgárdal var kunnur hagyrðingur á fyrri hluta síðustu aldar. Eftir hann er þessi ágæta vetrarvísa. Litlu hrósi safnar sér svakafenginn vetur. Þó að rós á gluggagler grafi enginn betur. Til að gera nú ekki upp á milli árstíðanna sem kannski eiga að vera með sterkustu pólana, kemur hér falleg hringhenda, eftir Friðbjörn. Upp um hlíðar, út við sjá ómar líða af kæti. Blómin víða vekja þá vorsins blíðulæti. Það er Ágúst Guðbrandsson sem skrifar svo fallega í gestabók heimilisins eftir að hafa þegið góðar veitingar. Gott er að vera í glöðum klið og gleyma heimsins rosta. Hér hefur margur fengið frið fyrir hungri og þorsta. Draumavísa kemur hér næst eftir Ágúst. Skipum lagt, og festum fest framar lífs á vegi. Núna finnst mér bjarma best birta af nýjum degi. Á ferðalagi hér í Húnaþingi yrkir Ágúst. Held ég yfir Blöndu-brú blasa við mér skörðin. En aðra leið ég ætla nú inn í Skagafjörðinn. Það mun hafa verið Kristján Stefánsson frá Gilhaga sem orti einhverju sinni í febrúarlokin svo. Hefðin mótar mannskapinn margra rótar geði. Fer að þrjóta í þetta sinn þorrablótagleði. Kristján veltir fyrir sér hvað taki svo við. Og verða þær hugleiðingar tilefni annarar hringhendu. Árið líður. Eftir tvo enn er hríðardagur. Eitthvað síðar upphefst svo árshátíða slagur. Enn um sinn mun trúlega þessi vísa Einars Sigtryggssonar á Sauðárkróki verða í fullu gildi. Þroskahefta þjóðfélag þarf að virkja hverja sál. Eiturneysla er í dag okkar stærsta vandamál. Vísnaþáttur 588 Er deilt var um hvort byggja ætti upp stóriðju í Skagafirði orti Einar. Á Skollanesi í Skagafirði Skagfirðingar heimta ál. Landið er þeim lítils virði lákúra í þjóðarsál. Þrátt fyrir að undirritaður sé aðeins farinn að renna augum til vorsins, sem kannski helfrystir blómin í maí, er rétt að halda sig við þann tíma enn um stund sem eðlilegt er að þau féllu frá. Held að það hafi verið Einar B. Björnsson bóndi í Eyjum í Breiðdal sem orti þessa. Heiðló þagnar, hrímar jörð haustið brýst til valda. Vænta má að veðrin hörð vilji rétti halda. Baldvin Jónsson, sem kallaður var skáldi, er trúlega kominn lengra fram á veturinn er hann yrkir þessa. Fölnar smái fífillinn fegurð sá er rúinn. Öll eru stráin stálfreðin stakki gráum búin. Minnir að Indriði Þorkelsson bóndi á Ytrafjalli hafi ort þessa staðreynd. Sé til lengdar barnlaus bær breyskjast hjartarætur, þungt, ef vantar þann, sem hlær, þyngra hinn, er grætur. Enn dynur á okkur umræða um erfiðleika og ógreidda reikninga margra landsins barna. Það mun vera Böðvar Guðlaugsson sem gerir slíkum hugrenningum svo góð skil í næstu limru. Armæddur ber ég augum ógreidda reikninga í haugum og spurningin er hvenær yfrum ég fer bæði á tékkhefti og taugum. Minnir að sá snjalli Böðvar hafi hughreyst sjálfan sig með annarri limru. Þó ástand sé ótryggt og valt engu þú kvíða skalt. Með gengisfellingu og góðri kellingu bjargast yfirleitt allt. Þá kemur aftur, góðu vinir, í hugann þessi freisting að fara að hugsa til vorsins. Gerum það með þessari fallegu hringhendu Ágústs Guðbrandssonar. Léttist gangan, lifnar þor liðkast vangi kalinn. Eftir langan vetur, vor vefur í fangi dalinn. Verið þar með sæl að sinni. / Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) Sigríður Tryggvadóttir skrifar frá Hvammstanga Þorrablótin Mig langar til að skrifa um þær samkomur sem nú eru haldnar víða um land og kallaðar eru þorrablót. Hér í Húnaþingi vestra eru haldin nokkur þorrablót, bæði á vegum hinna ýmsu félagasamtaka og síðan hafa hinir fornu sveitahreppar haldið þeim sið að vera með sín eigin þorrablót. Það eru þau sem ég vil fjalla um hér. Mismunandi reglur eru um það hvernig skipað er í þorrablótsnefnd hvert ár. Í mínum gamla hrepp er sú regla viðhöfð að þorrablótsnefndina skipa aðilar (íbúar) eftir fyrirfram ákveðinni bæjarröð. (Gamalli boðleið). Að því sem ég best veit var fyrsta þorrablótið haldið í Víðihlíð 195?. Fyrst var það þannig að nefndin varð að gera allt, s.s. ákveða dagsetningar, auglýsa atburðinn, ráða hljómsveit, undirbúa samkomuhúsið, elda matinn, framreiða hann og þrífa á eftir, þ.e.a.s. sjá um alla framkvæmd. Allt þetta var mikil vinna sem krafðist óeigingjarns framlags íbúanna. Margt af þessu er enn óbreytt en þó má nefna að í dag er því þannig farið að maturinn kemur tilbúinn frá viðurkenndum veitingasölum. Eitt er það sem allir bíða eftir og hefur haldist óbreytt frá upphafi. Það er skemmtidagskráin. Hún er það sem allir bíða eftir og aldrei bregst. Sú venja er að allir í nefndinni taka þátt þó þeim kæmi ekki til hugar að stíga í pontu eða á svið á öðrum tímum eða á öðrum samkomum. Enginn skorast undan á þorrablóti, hvorki við að semja og flytja efni. Oft koma í ljós ýmsir ÁSKORENDAPENNINN UMSJ berglindth@feykir.is duldir hæfileikar, algjörlega laglaust fólk fer t.a.m. að syngja og ólíklegustu persónur reynast hinir bestu leikarar og eftirhermur. Allir fá einhver skot, góðlátlegt grín er gert af fólki og atburðum liðins árs. Stundum dettur manni meira segja í hug að þeir sem ekkert er minnst á fari svolítið sárir heim og hugsi „var ég svona H...... litlaus að enginn man eftir mér (ég verð að bæta mig í því)“. Ljóst er að þorrablótsdagarnir eru ómissandi partur af vetrardagsskránni. Fólk bíður eftir þorrablótinu og fer oftar en ekki á fleiri en eitt hvert ár. Þá klæðir það sig upp í sitt fínasta púss, borðar þorramat, hlustar og horfir á skemmtiatriði og dansar gömlu dansana. Ég myndi því telja þessar samkomur menningarviðburð hverrar sveitar sem mikill missir væri af ef af legðust. - - - - - Ég skora á Gudrun Kloes atvinnuráðgjafa hjá SSNV að skrifa næsta pistil. Fimm milljón króna styrkur til endurbygg- ingar Riishúss Borðeyri Fimm milljónir króna af söluverði fasteignar- innar Brekkubæjar á Borðeyri munu renna sem fjárstyrkur til Félags áhugamanna um endur- byggingu Riishúss á Borðeyri. Sveitastjórn Húnaþings vestra samþykkti þetta á fundi sínum sl. föstudag. Í fundargerð segir að þess er vænst að með fjárframlagi þessu megi takast að ljúka endurbótum á neðri hæð húss- ins. Samþykkt þessi er gerð með fyrirvara um að sala fasteignar- innar Brekkubæjar gangi eftir. Riishús er eitt elsta húsið við Húnaflóa og var byggt árið 1862 í kjölfar þess að fyrsti verslunar- stjórinn kom til Borðeyrar. Samkvæmt heimildum Vísindavefsins var Riishúsið upphaflega kallað Faktorshús upp á dönsku því þar bjó verslunarstjóri Borðeyrar á hverjum tíma en faktor þýðir verslunar- stjóri. Um 1880 komst verslun á Borðeyri í hendur Hans A. Clausen en árið 1890 keypti Richard Peter Riis verslunina. Síðan hefur húsið verið kennt við hann. /BÞ Riishús á Borðeyri. Mynd: Vestfirdir.is

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.