Feykir


Feykir - 11.04.2013, Blaðsíða 2

Feykir - 11.04.2013, Blaðsíða 2
2 Feykir 14/2013 Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842 Blaðamenn: Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199 Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum Skagabyggð Breyting á aðalskipulagi Nú er unnið að gerð aðalskipulagsbreytingar vegna breyttrar legu á hitaveituleiðslu frá Laxá í Refasveit til Skagastrandar. Sveitarfélagið Skagabyggð hefur lagt fram til kynningar lýsingu á skipulags- verkefninu og liggur hún frammi hjá oddvita. Tillagan er til sýnis á heimasíðunni www.hafnir.is Þeim sem vilja koma ábendingum til sveitarstjórnar er bent á að senda þær til oddvita Skagabyggðar, eða í tölvupósti (hafnir@simnet.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Ábendingar þurfa að berast fyrir 17. apríl 2013. /PF LEIÐARI Hvað brennur á kjósendum? Rás 2 sendi morgunþátt sinn út frá Sauðárkróki í gær og fengu þeir Ægir Þór Eysteinsson og Guðmundur Pálsson umsjónarmenn þáttarins til sín gesti í hljóðstofu. Vildu þeir m.a. vita hvað það væri sem helst brynni á Skagfirðingum í aðdraganda kosninganna. Stórt spurt, en kannski helst hægt að draga saman að það vanti fleiri og betri störf. Þar er þá helst verið að horfa á störf fyrir unga fólkið sem flytur burt til að mennta sig og á ekki afturkvæmt, ef svo má að orði komast. Flestir hugsa til heimahagana og er það tilfinning mín að stærsti hluti þess fólks myndi koma til baka ef störf við hæfi væru í boði. Þetta á við um fleiri staði eins og Skagaströnd, Blönduós og Hvammstanga. En hvað þarf til að þetta gæti gengið eftir. Að mínu mati þarf alvöru byggðastefnu þar sem jarðvegurinn er undirbúinn af stjórnvöldum þannig að atvinnurekendur vilji kjósa það að hafa eða hefja starfsemi úti á landi. Meiri pening mætti veita inn á svæðið eða kannski má segja að stærri hlutur þess fjármagns sem verður til á svæðinu mætti verða eftir. Þekking, þor og dugur er til staðar hjá fólki sem kennir sig við Norðurland vestra en eins og svo oft er bent á eru það peningarnir sem öllu ráða og stjórna. „Betri bíla, yngri konur, eldra viskí, meiri pening,“ söng Rúnni Júl. hér um árið og geri ég orð hans að lokaorðum mínum í þessum pistli. Páll Friðriksson, ritstjóri Pioneer Bay siglir til Sauðárkróks Strandsiglingar hefjast á ný Í síðustu viku lagðist að bryggju á Sauðárkróki flutn- ingaskipið Pioneer Bay og hófust með því ákveðin þátta- skil á Sauðárkróki en þangað kom síðast gámaskip í reglu- legum strandflutningum, í nóvember 2004. Skipið er á vegum Samskipa sem nýlega hófu sjóflutninga af lands- byggðinni. Siglt er frá Vestfjörðum og Norðurlandi og beint til Bretlands og meginlands Evrópu og verður Sauðár- krókshöfn hluti af þjónustuneti þeirra. Að sögn Gunnars Steingrímssonar hafnarvarðar á Sauðárkróki er skipið væntanlegt á hálfs mánaðar fresti en það mun þjónusta Fisk Seafood með útflutning og jafnvel fleiri fyrirtæki þegar fram líða stundir. Gunnar segir að skipið skilji eftir sig á annað hundrað þúsund krónur í hafnargjöld með hverri komu og munar um minna. /PF Blönduskóli tekur nú þátt í Comeníusarverkefni ásamt átta skólum í sjö öðrum Evrópulöndum auk Tyrklands. Verkefnið er styrkt af menntaáætlun Evrópusambandsins og fékk skólinn myndarlegan styrk sem ætlaður er í ferðir en frá einn slíkri er sagt á vef skólans. Þar segir að í mars hafi fyrstu tveir hóparnir farið til Bretlands á vegum verkefnisins. Annar hópurinn, þrír nemendur ásamt kennara, fór til Coventry þar sem nemendur fjölluðu um rafmagn og eitt og annað tengt því. Þeir tóku með sér glærukynningu um Blöndu og Blönduvirkjun og bækling sem unglingadeildin vann um eigin rafmagnsnotkun, rafmagns- notkun skólans og áætlaða raf- magnsnotkun íbúa á Blönduósi. Hinn hópurinn, fjórir nem- endur ásamt kennara, fór til Manchester þar sem nemendur voru að kynna skólana sína, tóku með sér glærukynningu og stuttmynd sem unglingadeildin vann. Í maílok mun svo þriðji hópurinn fara til Fatíma í Portúgal og munu íbúar Blönduós sennilega verða varir við nemendur á ferð um bæinn á næstunni þar sem þeir eru að gera stuttmynd um Blönduós en nánar er frá þessu sagt á blonduskoli.is. /PF Draumaliðið sigurvegarar Englandsferðir nemenda og kennara Heldur tónleika á Skagaströnd Komið í undanúrslit Húnvetnska liðakeppnin Blönduskóli tekur þátt í Comeníusarverkefni Kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Skagfirðinga í Útsvari Draumaliðið, eða lið 1, sigraði í Húnvetnsku liðakeppninni í ár með 282,5 stig en lokamót keppninnar fór fram í Þytsheimum á Hvamms- tanga sl. föstudagskvöld. Í öðru sæti varð lið 2, 2Good, með 256,5 stig og í þriðja sæti varð lið 3, Víðidalur, með 155 stig. Bæjarkeppnina vann liðið FLESK með 87,5 stig og í 2. sæti varð Grafarkot með 82 stig og í 3. sæti varð Lindarberg með 58,5 stig. Sigurvegarar í einstaklings- keppnum voru: 1. flokkur 1. sæti Líney María Hjálmarsdóttir 46 stig 2. flokkur 1. sæti Gréta B. Karlsdóttir 26 stig 3. flokkur 1. sæti Stine Kragh 13 stig Unglingaflokkur 1. sæti Sigurð- ur Bjarni Aadnegard 12,5 stig Nánar má sjá um keppnina í hestaumfjöllun á Feyki.is./BÞ Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 13. apríl, kl. 17. Kórinn, sem skipaður er um 80 manns, er undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur en hún hefur stjórnað honum frá upphafi. Þorgerður hlaut nýlega heiðursverðlaun við afhendingu hinna árlegu íslensku tónlistarverðlauna. Á efnisskrá kórsins eru íslensk og erlend tónverk og eru verkin mjög fjölbreytt að gerð og uppbyggingu og gefa kórnum tækifæri til margvíslegrar túlkunar. Enginn aðgangseyrir er tekinn af tónleikagestum og eru allir velkomnir til að hlusta á þennan frábæra kór sem getið hefur sér gott orð, bæði hér á landi og erlendis, enda eftirsóttur á tónleikahátíðir víða um heim. /Fréttatilkynning Lið Skagafjarðar bar sigur úr býtum í viðureign sinni við lið Snæfellsbæjar í Útsvari sl. föstudagskvöld og tryggði sér þar með sæti í undan- úrslitum í spurningaþætt- inum. Lokatölur voru 77-51. Lið Skagafjarðar náði strax í upphafi öruggri forystu sem það hélt út keppnina. Staðan var eftir fyrsta hluta 18-09 fyrir Skagafjörð. Orðaleikur- inn var með þemað „evrópsk ríki“ og náði Skagafjörður 21 stigi og Snæfellsbær 24 stigum. Þegar kom að síðasta hluta þáttarins var staðan 62 – 41 fyrir Skagafjörð. Bæði lið svöruðu einni stórri spurningu rétt, lokatölur voru 77-51. Lið Skagafjarðar etur kappi við lið Fjarðabyggðar í fjórðungs- úrslitum þann 19. apríl. / BÞ Pioneer Bay í Sauðárkrókshöfn. Mynd: Gunnar Steingrímsson. Lagning hitaveitu í Hegranes Steypustöðin með lægsta boð Miðvikudaginn 3. apríl sl. voru opnuð tilboð í verkið „Hegranes vinnuútboð 2013, strenglögn og hitaveita“ á skrifstofu Skagafjarðarveitna að Borgarteig á Sauðárkróki. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 99.359.500,- m/ vsk. en hún samanstendur af lagningu hitaveitu í Hegranesi og Hofsstaðaplássi austan Vatna, ásamt strenglögn í Hegranesi fyrir RARIK. Tvö tilboð bárust í verkið, það lægra frá Steypustöð Skaga- fjarðar ehf. að upphæð 85.429.890 sem er 86,0% af kostnaðaráætlun og hitt frá Vinnuvélum Símonar Skarp- héðinssonar ehf. sem var litlu hærra eða að upphæð kr. 87.277.400,- sem er 87,8% af kostnaðaráætlun. Að sögn Indriða Þórs Einarssonar sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs gera áætlanir ráð fyrir að lagningu hitaveitu í Hegranesi verði lokið í ár. Stefnt er að því að leggja í Hofsstaðaplássið í beinu framhaldi, jafnvel á næsta ári, en ákvörðun þar að lútandi liggur ekki fyrir að svo stöddu. / PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.