Feykir


Feykir - 11.04.2013, Qupperneq 9

Feykir - 11.04.2013, Qupperneq 9
14/2013 Feykir 9 ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Margeir Friðriksson / Kassagítar- og bassaleikari Er að rifja upp gamlan bræðing sem ég hef gaman af Friðrik Margeir Friðriksson er Skagfirðingur í húð og hár, býr á Sauðárkróki og af hinum eðalárgangi 1960. Margeir segist klæmast á kassagítar og basla við bassaleik og leikur hann núna í húsbandi Leikfélags Sauðárkróks en verið er að æfa nýtt leikrit sem samið er í kringum lög Geirmundar Valtýssonar. Margeir settist við tölvuna og svaraði nokkrum laufléttum spurningum í Tón- lystinni. Helstu tónlistarafrek: -Afrekin eru ekki mörg, en ég hef leikið í nokkrum hljómsveitum með afreksmönnum í gegnum tíðina s.s. Blueberry Jam, Jókó, Capital, Rót, Umrót, Týról. Einnig hef ég tekið þátt í ýmsum öðrum tónlistarviðburðum með Félagi harmonikkuunnenda í Skagafirði, Leikfélagi Sauðárkróks, V.S.O.T., Multi Musica og svo margt fleira sem ég veit um en man ekki eftir. Uppáhalds tónlistartímabil? -Það er óræð stærð, því ég flakka fram og aftur í tíma. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? -Ég er að rifja upp gamlan bræðing sem ég hef gaman af og er meðal annars að hlusta á fiðluleikara sem heitir Jean-Luc Ponty og Al Di Meola gítarleikara. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? -Það voru ekki til hljómflutningstæki sem dugðu, svo ég verð að segja að hlustað var á flest það sem heyrðist í ríkisútvarpinu (gömlu Gufunni) í þá daga. Hver var fyrsta platan/ diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? -The Road Goes On Forever með Allman Brothers Band. Hvaða græjur varstu þá með? -Technics samstæðu. Hvað syngur þú helst í sturtunni? -Ég syng ekki í sturtu. Bítlarnir eða Bob Dylan? -Bítlarnir Uppáhalds Júróvisjónlagið (erlent eða innlent eða bæði)? -Eitt lag enn. Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? -Ég myndi treysta á lög með Geirmundi Valtýssyni til að byrja með. Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? -Þjóðlegan fróðleik með tríói Guðmundar Ingólfssonar. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? -Ætli ég myndi ekki fara á tónleika á Flæðunum á Króknum með Lilla apa í Brúðubílnum og tæki Helga Frey son minn með að minnsta kosti. Hvaða tónlistarmann hefur þig dreymt um að vera? -Ég sjálfur með kostum og göllum, en ég lít upp margra sem ég geri ekki upp á milli. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? -Gling- Gló með Björk og Tríói Guðmundar Ingólfssonar. toppurinn Vinsælustu lögin á Playlistanum: Peppi (HAR KOMMER PIPPI LANGSTRUMP)/LENNI-KALLE TAIPALE TRIO Black Friday STEELY DAN Why does love got to be so sad? DEREK & THE DOMINOS Brúðkaupsvísur ÞURSAFLOKKURINN Early Autumn MEZZOFORTE Kristinn Karlsson skrifar frá Hvammstanga Ferðaþjónustan er mér hugleikin Ég er formaður ferðamálafélags Vestur- Húnavatnsýslu og er því ferðaþjónusta mér hugleikin og ætla ég að fjalla um það sem við erum að gera í ferðamálum hér í Húnaþingi-vestra. Í fyrra vetur var stofnaður stýrihópur til efla og auka ferðaþjónustu hér á svæðinu og var ákveðið að fara í þriggja ára átak. Fyrsta árið eða 2012 fór í að greina svæðið, kosti og veikleika og hvaða vörur við höfum. En við höfum ótrúlega mikið upp á að bjóða og má þar nefna Selasetur Íslands en þar er staðsett upplýsingamiðstöð fyrir svæðið. Selasiglingu þar sem ferðamönum er boðið upp á að sigla um Miðfjörðinn og skoða seli, Verslunarminjasafnið Bardúsu, ferðamannaverslunina KIDKA Wool factory shop. Þar getur fólk fengið að skoða verksmiðjuna en KIDKA framleiðir íslenskar ullarvörur. Handverkshópa, Grettistak, Héraðssafnið að Reykjum, hestaleigur, hestsýningar og fleira og fleira. Það sem er gull eggið okkar eru selirnir út á Vatnsnesi og náttúruperlur þess, t.d Hvítserkur, Borgarvirki, Kolugljúfur í Víðidal og Arnarvatnsheiðin. Það sem við áætlum að gera í ár eða 2013 og erum að vinna í er hvernig við bætum aðgengi að ferðamannastöðum og að það sé gert í sátt við bændur og heimamenn. Síðan verður farið í að markaðssetja svæðið en auðvitað er alltaf markaðssetning í gangi. Það er mjög mikilvægt að vanda til markaðssetningu og að varan sé tilbúin sem þú ætlar að bjóða upp á. Því er spáð að á næstu árum komi yfir 100 þúsund ferðamenn inn á okkar svæði því verða menn að spyrja sig hvernig tökum við á móti þessum ferðamönnum þannig að sómi sé af og þeir skilji einhverjar tekjur eftir sig inn í héraðið. Ég skora á Guðrúnu Hálfdánardóttir á Söndum í Húnaþingi-vestra að taka við pennanum. - Bestu ferða- og sumarkveðjur. ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN berglindth@feykir.is Karlakórinn Lóuþrælar úr Húnaþingi Halda tónleika í Seltjarnarneskirkju Karlakórinn Lóuþrælar úr Húnaþingi halda tónleika í Seltjarnarneskirkju, sunnu- daginn 14. apríl. Yfirskrift tónleikanna er „Vorvindar“ sem er eitt laga á söngskránni. Í fréttatilkynningu frá kórnum kemur fram að þetta starfsárið er kórinn með blandaða söngskrá, m.a. dægurlög, erlend og íslensk, samin af ýmsum þekktum höfundum og sum flutt af frægustu tónlistar- mönnum heims. Kórinn býr svo vel að eiga góða hljóðfæraleikara sem leika með kórnum, en þeir eru: Skúli Einarsson á trommur, Sveinn Óli Friðriksson á gítar, Páll Sigurður Björnsson á bassa og Elinborg Sigurgeirsdóttir píanó. Stjórnandi kórsins er Guðmundur St. Sigurðsson. Heimatónleikar kórsins verða á síðasta vetrardag, 24. apríl í Félagsheimili Hvammstanga. Lóuþrælar vinna að útgáfu á nýjum hljómdiski, en áður hefur kórinn gefið út fimm hljómdiska. Tónleikarnir á Seltjarnarnesi hefjast klukkan 17:00 og að- gangseyrir er kr. 2.500,- (ekki posi á staðnum). /BÞ Sjálfsbjörg í Skagafirði fimmtudaginn 25. apríl ILMUR AF SUMRI – PÖNNUKÖKUKAFFI! Í tilefni af sumardeginum fyrsta verða félagar Sjálfsbjargar með kaffisölu, tombólu og flóamarkað í Húsi frítímans við Sæmundargötu. Til skemmtunar verða tónlistaratriði. Tilgangurinn er að kynna starf félagsins og selja kaffi og með því, til styrktar félaginu. KLEINUR - MUFFINS - PÖNNUKÖKUR til sölu - 10 stk. í pk. Húsið er opnað kl. 14 og verður opið til 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.