Feykir - 11.04.2013, Síða 11
14/2013 Feykir 11
AÐALRÉTTUR
Kanínusteik
fyrir 4
1kg kanína frá Kanína ehf.
200 gr mangó
300 gr sætar kartöflur
100 gr sveppir
1 gult epli
4 hvítlauksgeirar
1 og ½ dl vatn
2 msk grænmetiskraftur
2 tsk karrý
½ tsk pipar
1 og ½ -2 tsk salt
½ msk púðursykur
Aðferð: Kanínan tekin og
bituð niður; læri, hryggur og
framlappir. Allir bitarnir af
kanínunni brúnaðir á pönnu
á öllum hliðum í smá olíu. Svo
er blandað saman kryddinu;
grænmetiskraftinum, karrý,
pipar, salt og púðursykurinn og
það sett í skál og kanínunni síðan
velt upp úr þessum kryddlegi.
Svo er tekin ofnpottur eða eldfast
mót og sett olía á botninn og
kanínubitunum raðað í botninn.
Skerið mangóið í bita (ekkert of
litla). Sætar kartöflur skornar í
teninga eða lengjur, sveppirnir
skornir í bita eða sneiðar, eplið
skorið í teninga, hvítlaukurinn
marinn og eða skorinn í smáa
bita. Þetta er sett út í formið
með kanínunni og ásamt 1 ½
dl af vatni. Lokið er svo sett á
ofnpottinn eða ef maður er með
eldfast mót þá verður að setja
álpappír vel yfir til að loka rakann
vel inni. Sett í ofninn í u.þ.b. 160-
170°C í um 1 ½ tíma. Soðið er
síað úr pottinum þegar þetta er
tilbúið og gerð sósa úr soðinu.
Meðlæti getur t.d verið
salatblanda, brúnaðar kartöflur,
gular baunir og gott er að hafa
líka smá rifsberjahlaup með eða
eitthvað annað berja hlaup.
EFTIRRÉTTUR
Það sem hugurinn
girnist
1-2 stk epli
1-2 stk harðar perur
½ stk stífar melónur, t.d.
kantalópa
¼ -⅓ ferskur ananas
vínber að eigin vali
1 askja jarðaber
hindber
4 kókósbollur
uppáhalds súkkulaðið
Aðferð: Þetta er svolítið bara
það sem manni langar í hverju
sinni og mun ég setja nokkrar
tegundir sem eru vinsælar hjá
fjölskyldunni. Magn ræðst
svolítið eftir hvað það eru settar
margar tegundir í réttinn en ég
mun gefa upp magn fyrir u.þ.b.
fjóra fullorðna.
Gott að velja uppáhalds
súkkulaðið sitt og brytja það með
og er þá gott að setja t.d Mars,
Snikers, Bounty eða annað gott
nammi. Öllu innihaldinu er svo
blandað saman í eldfast mót og
eru kókósbollurnar skornar í
tvennt endilangt og lagðar ofaná
alla ávextina í mótinu. Þetta
er svo sett í ofn við 170°C og
er þetta tilbúið þegar eplin eru
farin að linast og kókósbólurnar
farnar að taka lit. Gott er að bera
fram þeyttann rjóma eða ís með
þessum rétti.
Verði ykkur að góðu!
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
er ótrúlega magnaður.
Sudoku
Þegar Márþór Sær skreið seint og um síðir
á lappir skyldi hann ekkert í því af hverju
hann var kominn með hala og horn. Loksins
rann það upp fyrir honum að hann átti afmæli og hann
hafði fengið hinn hræðilega táningsaldur í afmælisgjöf frá
foreldrum sínum.
HINRIK MÁR JÓNSSON
Örlaga örsögur
Ótrúlegt en kannski satt
Hestar hafa skipt miklu máli í mótun
samgangna og vinnutækja í heiminum og segir
á Wikipedia að talið sé að hestur nútímans
hafi verið fyrst notaður til að auðvelda
manninum vinnu sína um 2000 f. Kr. Í dag
er hesturinn meira notaður sem húsdýr og
tómstundagaman en í þriðja heiminum er hann
enn mikið notaður við ýmis störf, sérstaklega í
landbúnaði.
Ótrúlegt en kannski satt þá geta hestar ekki ælt.
Feykir spyr...
Stundar þú
íþróttir?
[spurt á Sauðárkróki]
SIGURBJÖRN SVEINSSON
Já, fótbolta í skólanum, í
skólavali.
ELVAR INGI HJARTARSON
Ég stunda körfubolta
og golf.
DANÍEL ÍSAR GÍSLASON
Nei, ég stunda engar íþróttir.
MIKAEL SNÆR GÍSLASON
Nei, en ég er góður í
mörgum íþróttum.
HINRIK PÉTUR HELGASON
Ég stunda hestaíþróttir.
Auðunn kokkar
Kanínusteik og það
sem hugurinn girnist
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglindth@feykir.is
Matgæðingur Feykis þessa vikuna er Auðunn Jóhannes Guðmundur
Karlsson frá Hvammstanga. Hann skorar á Gísla Má Arnarsson og
Sesselju Anítu Ellertsdóttur að vera næstu matgæðingar.
Vertu áskrifandi
í síma 455 7176 eða sendu póst á feykir@feykir.is
...allir með!