Feykir - 15.08.2013, Blaðsíða 5
30/2013 Feykir 5
( ÍÞRÓTTAGARPUR ) palli@feykir.is
Rúnar Sveinsson
Fótboltaferlinum lauk
áður en hann byrjaði
Rúnar Sveinsson er
íþróttagarpur Feykis að þessu
sinni en hann komst í fréttirnar
er hann kom fyrstur í mark
í Árnahlaupinu svokallaða
sem haldið var fyrr í sumar á
Sauðárkróki.
Þá tók Rúnar þátt í hinu erfiða
Laugarvegshlaupi sem fram
fór þann 13. júlí sl. en þá er
hlaupið frá Landmannalaugum
og endað í Húsadal en þá leið er
göngufólk að arka, þrjá til fjóra
daga. Rúnar er af árgangi 1981,
býr í Kópavoginum en er Króksari
í húð og hár, sonur Heiðrúnar
Friðiksdóttur og Sveins Rúnars
Sigfússonar.
Íþróttagrein: Hef stundað körfu-
bolta frá því ég var krakki. En
síðastliðið ár hefur körfuboltinn
verið víkjandi fyrir Crossfit og
hlaupum.
Íþróttafélag/félög: Er ávallt
í Tindastól inn við beinið en
sökum aðstæðna er ég skráður
í Ungmennafélagið Smárann í
Varmahlíð.
Helstu íþróttaafrek: Lauk ný-
verið við að hlaupa 55 km,
Laugvegurinn Ultra Maraþon
Skemmtilegasta augnablikið:
Körfuboltatímabilið 2011-1012
sem ég var með Tindastóli er
mjög eftirminnilegt og líklega var
skemmtilegasta augnblikið þegar
við spiluðum í bikarúrslitum í
Höllinni.
Neyðarlegasta atvikið: Kannski
ekki beint neyðarlegt en samt
svona lýsandi saga fyrir mig
þar sem ég er yfirleitt mjög
óákveðinn. Það var eitt sinn í
frímínútum í barnaskólanum
sem ég var fenginn til að vera
í marki í fótbolta. Ég hafði nú
aldrei æft fótbolta eins og flestir
bekkjafélagarnir en í þetta skipti
þá vantaði mann. Stóð ég mig
bara nokkuð vel að eigin áliti og
varð úr að þegar heim var komið
þá var allt sett á fullt að verða
sér út um markmannshanska,
því strákurinn ætlaði að byrja að
æfa. Svo var það nokkrum dögum
síðar að ég tók skólarútuna á
æfingu, en þegar ég var kominn
fyrir utan íþróttavöllinn þá var
áhuginn skyndilega horfinn og
ákvað ég því bara að fara aftur
heim með rútunni. Þar með lauk
fótboltaferlinum áður en hann
byrjaði.
Einhver sérviska eða hjátrú?
Nei ekkert sem ég man eftir.
Uppáhalds íþróttamaður?
Mikael Jordan var alltaf í miklu
uppáhaldi, svo hefur Lebron
James tekið við.
Ef þú mættir velja þér and-
stæðing, hver myndi það
vera og í hvaða grein mynduð
þið spreyta ykkur? Efemiu
Rún Sigurbjörnsdóttur (Effu) í
körfubolta
Hvernig myndir þú lýsa
rimmunni? Þar sem Effa er með
miklu meira keppnisskap en ég þá
yrði ekkert gefið eftir, en það er þó
ein óskrifuð regla sem er að ég má
ekki hoppa. Ætli ég yrði síðan ekki
að játa mig sigraðan að lokum.
Helsta afrek fyrir utan
íþróttirnar? Eignast yndislegan
strák árið 2011 sem fékk nafnið
Rúnar Magni
Lífsmottó: Bara að hafa gaman af
lífinu og láta drauma sína rætast.
Helsta fyrirmynd í lífinu: (og
af hverju). Það er hann pabbi
minn sem var einnig í körfubolta
á sínum yngri árum ásamt því að
vera mikill hlaupagarpur.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? Í dag starfa ég sem
tölvunarfræðingur hjá Betware
sem er hugbúnaðarfyrirtæki
staðsett í Kópavogi. Þess á milli
eyði ég tímanum með fjölskyldunni
ásamt því að reyna að hreyfa mig
reglulega.
Hvað er framundan?
Taka sér gott frí og byrja svo að
æfa fyrir einhverja nýja áskorun.
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport
Knattspyrna 1. deild karla: Tindastóll – Leiknir Reykjavík 4–3
Tindastólsmenn komnir í topp-
baráttuna í 1. deild
Tindastóll og Þróttur Reykjavík áttust við í 1.
deild karla í fótbolta á Sauðárkróksvelli
fimmtudagskvöldið 1. ágúst sl. og var
leikurinn mikilvægur báðum liðum.
Tindastólsmenn sýndu góðan leik og sigruðu
örugglega 3-0. Með sigrinum gátu Stólarnir
lyft sér örlítið upp fyrir liðin í fallbaráttunni.
Þann 8. ágúst sl. tók Tindastóll svo á móti liði
Grindavíkur á Sauðárkróksvelli. Stólunum hafði
gengið vel að undanförnu og með sigri hefðu
strákarnir komið sér í bullandi toppbaráttu.
Raunin varð hins vegar sú að gestirnir úr
Grindavík voru grimmari og unnu
verðskuldaðan 0-2 sigur.
Of margir leikmenn Tindastóls náðu sér ekki á
strik í leiknum og virtust sumir ekki tilbúnir í
slaginn sem gestirnir buðu upp á. Vonandi taka
menn sig saman í andlitinu því það eru engir
Árni Arnarsson
Leslie Briggs
Knattspyrna 1. deild kvenna
Jafntefli og tap hjá stelpunum
Meistaraflokkur kvenna hjá
Tindastóli mætti liðsmönnum
Fram í Reykjavík þann 29.
júlí sl. Bryndís Rún
Baldursdóttir kom Stólunum
yfir á 35. mínútu, en á 70.
mínútu jafnaði Dagmar Ýr
Arnardóttir metin fyrir
Framstúlkur. Lokatölur
leiksins 1 – 1. Þetta var
síðasti leikur Carolyn Polcari
með liði Tindastóls á þessu
tímabili, en hún var kölluð út
í viðtal vegna læknanáms
sem hún er að fara í.
Tindastóll tók svo á móti
Haukum í fyrstu deild kvenna á
Sauðárkróki föstudagskvöldið
9. ágúst sl. og var um spennandi
leik að ræða. Tindastóll komst
yfir með góðu marki Leslie
Briggs í fyrri hálfleik en
gestirnir voru heppnir í þeim
seinni þegar Stólarnir skoruðu
sjálfsmark eftir að boltinn fór í
varnarmann þeirra er
Haukarnir tóku aukaspyrnu
rétt utan vítateigs gestgjafanna
og hafnaði í markinu.
Haukarnir bættu svo marki við
er skammt var til leiksloka og
höfðu sigur.
léttir leikir eftir í 1. deildinni. Morin var slakur og
fátt gekk upp hjá Branco og Tsonis. Atli og
Beattie voru líflegir og sýndu góða takta og þá
voru Árni og Ingvi Hrannar baráttuglaðir.
Næsti leikur Stólanna er hér heima gegn
Selfyssingum föstudaginn 16. ágúst kl. 19:15.
/ÓAB
Stólarnir sitja sem fyrr í 6. sæti
með 13 stig en Haukarnir
komust sæti ofar með sigrinum
og eru nú með 19 stig í 4. sæti.
/PF
Ungmennasamband V-Hún. Unglingalandsmót UMFÍ
FrjálsarFjallaskokk USVH
16 verðlaun til UMSS
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ Hið árlega fjallaskokk
Ungmennasambands
Vestur-Húnvetninga fór fram
25. júlí síðastliðinn og voru
þátttakendur 43 talsins.
Alls voru 16 skráðir í
keppnishóp en 27 voru skráðir í
gönguhóp og kepptu því ekki til
verðlauna. Sigríður Klara
Böðvarsdóttir varð fljótust
kvenna en Egill Egilsson sigraði
í karlaflokki. /KSE
16. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Höfn í Hornafirði um
verslunarmannahelgina. Þrátt fyrir fremur kalda og
vindasama daga gekk mótið vel fyrir sig og þátttakendur
skemmtu sér vel.
Keppendur UMSS unnu til 16 verðlauna á mótinu, en einnig
unnu Skagfirðingar til verðlauna með öðrum félögum.
Verðlaunahafana er hægt að sjá á íþróttasíðu Feykis.is. /GSG
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var starfræktur á Sauðárkróki dagana
22. til 26. júlí sl. Tuttugu krakkar tóku þátt í skólanum að
þessu sinni. Þau komu víða að, flest frá Skagafirði en einnig
frá Hólmavík og Reykjavík. Þjálfarar skólans voru Árni Geir
Sigurbjörnsson og Gunnar Sigurðsson.
Krakkarnir æfðu tvisvar á dag og gerðu einnig margt skemmtilegt
þess á milli, m.a. fóru þau í klifur, sund og bátasiglingar. Á
fimmtudeginum 25. júlí sl. var svo haldið frjálsíþróttamót þar sem
krakkarnir kepptu bæði innbyrðis og við aðra og stóðu sig öll með
prýði. /GSG