Feykir - 15.08.2013, Síða 9
30/2013 Feykir 9
Sextíu ár frá afhjúpun
Byggðasafn Skagfirðinga
Útskurður Bólu-Hjálm-
ars og faldbúningur
Sigurlaugar í Ási
Á Byggðasafni Skagfirð-
inga, sem á sér rúmlega
sextíu ára langa sögu, er
margt að skoða. Þar má
meðal annars sjá útskorna
gripi eftir Bólu-Hjálmar
og faldbúning sem
Sigurlaug Gunnarsdóttir
húsmóðir í Ási í Hegranesi
saumaði á árunum 1864-
1865.
Stafsmenn safnsins, sem
eru tólf talsins, fást við
mörg afar spennandi
verkefni og hitta áhugavert
fólk úr öllum heims-
hornum á hverjum degi.
Byggðasafn Skagfirðinga
var stofnað í maí árið 1948 og
er í eigu Akrahrepps og
Sveitarfélagsins Skagafjarðar,
sem eiga og reka safnið.
Safnstjóri er Sigríður
Sigurðardóttir, kennari og
sagnfræðingur. Safnið fékk
upphaflega inni fyrir
sýningahald í gamla bænum
í Glaumbæ og var fyrsta
sýningin opnuð í júní 1952. Í
dag eru starfsemi safnsins og
safngripir hýst í Minjahúsinu
á Sauðárkróki, í gamla
bænum í Glaumbæ og í
Áshúsinu, sem stendur við
bæjarhólinn í Glaumbæ.
Safnið er með sýningar í
þessum þremur húsum. Auk
þessara staða eru safngripir
í láni á sýningum Vestur-
farasetursins á Hofsósi og á
Sögusetri íslenska hestsins á
Hólum í Hjaltadal. Helstu
sýningahönnuðir eru Árni
Páll Jóhannsson, Jón
Þórisson og Sigríður Sigurð-
ardóttir.
Hlutverk Byggðasafns
Skagfirðinga er að safna,
varðveita og rannsaka muni
og minjar úr Skagafirði.
Áhersla er lögð á rannsóknir
og miðlun upplýsinga um
áþreifanlegar og
óáþreifanlegar heimildir um
menningararf Skagfirðinga,
einkum byggingaarf og
lífsháttabreytingar. Safnið á
marga merkilega gripi og má
í því sambandi m.a. benda á
útskorna gripi eftir Hjálmar
Jónsson (1796-1875) sem
kenndur er við Bólu og
faldbúning Sigurlaugar
Gunnarsdóttur (1828-1905)
húsmóður í Ási sem hún
saumaði 1864-1865.
Skrifstofur safnsins eru
opnar allt árið. Sýningarnar
eru opnar á mismunandi
tímum eftir staðsetningu.
Sýningar í Glaumbæ og
Áshúsi eru opnar frá 9-18
alla daga frá 1. júní til 10.
september og eftir sam-
komulagi utan þess tíma.
Sýningar í Minjahúsinu eru
opnar frá 13-19 alla daga frá
10. júní til 31. ágúst og eftir
samkomulagi utan þess tíma.
Gestafjöldi á síðasta ári var
alls 35.050 gestir. Þar af
gengu 32.813 gestir um
gamla bæinn í Glaumbæ og
2.237 gestir komu í
Minjahúsið á Sauðárkróki.
Hefur gestafjöldinn vaxið
jafnt og þétt undanfarin ár,
en árið 2006 var gestafjöldi
ársins í Glaumbæ um 25
þúsund.
Ég ólst upp í Lýdó eða
Lýtingsstaðarhreppi á
þeim tíma þegar hann
var sjálfstæður og
þurfti ekki á neinum
að halda líkt og Bjartur
í Sumarhúsum. Við
höfðum hreppstjóra,
oddvita, kvenfélag,
prest, skóla og búðina á
Varmalæk. Við þurftum
nánast aldrei að leita
utan hrepps eftir
nokkrum sköpuðum hlut
...nema eftir örfáum
nauðsynjavörum og þá
var skroppið út á Krók.
Þá fór ég iðulega á
kontórinn til Guttorms
í Gránu gömlu og tók
út lambapening til að
kaupa smá nammi.
Ég náði varla upp í lúguna
þar sem Guttormur sat
fyrir innan og taldi peninga
og ég veit ekki hvort hann
sá hver það var sem rétti
honum útfylltan seðilinn
með upphæðinni sem
ég ætlaði að taka út.
Peningarnir komu hins
vegar alltaf út um lúguna
og ég hélt í bæinn. Við
mamma fórum gjarnan
í vefnaðarvörubúðina en
þar réði Tommi ríkjum og
seldi stígvél, tvinna og
aðrar nauðsynjar. Það
sem fangaði ævinlega
athygli mína, fyrir utan
Tomma með málbandið
um hálsinn, var hinn litríki
rekki með tvinnakeflum.
Ég gerðist meira að segja
svo ófyrirleitin í eitt skiptið
að ég stakk nokkrum
tvinnakeflum í vasann án
þess að borga. Þetta er
í fyrsta sinn sem ég játa
þennan glæp og Þórólfi
Kaupfélagsstjóra er frjálst
að kæra mig fyrir þennan
stuld en ég hygg að þetta
sé fyrnt. Án þess að ég
sé að draga úr alvarleika
málsins hugsa ég að
það hafi verið framdir
stærri efnahagsglæpir en
þetta í gegnum tíðina.
Eftir að við mamma
höfðum lokið erindi okkar
í vefnaðarvörubúðinni
var gjarnan farið í
byggingavöruverslunina
með pabba (já
kynjahlutverkin voru á
hreinu í gamla daga)
sem var til húsa þar sem
Kaffi Krókur er núna.
Skrúfur, naglar, kengir
og fleira gagnlegt var
borið út úr þeirri búð og
samviskusamlega skrifað
á reikning foreldra minna í
Kaupfélaginu. Áður en lagt
var af stað heim í Lýdó var
síðan gjarnan komið við í
matvörubúðinni þar sem
Sveinn Guðmundsson
hestagúrú afgreiddi
kjötfars og fleira góðmeti
úr kjötborðinu. Já þetta var
svona dæmigerð Króksferð
fjölskyldunnar. Verslað
í Kaupfélagsbúðunum
sem voru dreifðar um
allan bæinn í þá tíð.
Kaupfélagið réði ríkjum í
þá daga og gerir víst enn
er mér sagt. „Obb bobb
bobb“, ég gleymdi einu.
Stundum var komið við
á pósthúsinu og leyst út
póstkrafa frá Siglufirði.
Pakkinn var ílangur
og gutlaði eitthvað í
innihaldinu. Þetta var nú
ekki oft því Lýtingar voru
gjarnan sjálfbærir með
gutlandi vörur í gamla
daga (og eru kannski
enn).
Eftir að ég hleypti
heimdraganum og
yfirgaf Skagafjörðinn
um tvítugt hef ég tvisvar
sinnum komið aftur
og búið þar um tíma
bæði á Sauðárkróki og
í Varmahlíð. Það er gott
að búa í Skagafirði en
einhvern veginn fór það
svo að ég flutti endanlega
á brott fyrir tólf árum
og bý í Mosfellsbænum
eins og svo margir aðrir
brottfluttir Skagfirðingar.
Ég hef þó hvergi nærri
yfirgefið Skagafjörðinn
og Skagafjörðurinn hefur
ekki yfirgefið mig. Fyrir
allmörgum árum fékk
maðurinn minn veiki sem
hann smitaði mig svo
hressilega af. Þetta er
Hofsósveikin. Hún lýsir
sér þannig að maður
verður ólýsanlega hrifinn
af Hofsósi og öllu því sem
þar er. Eina lyfið sem
dugir gegn þessari veiki
er að kaupa sér lítið hús,
helst í Kvosinni og gera
það upp. Síðan þarf að
eiga góða sjálfrennireið til
að fara ótt og títt á milli
Mosfellsbæjar og Hofsóss.
Við fjölskyldan eigum
sem sagt hús á hinum
ægifallega stað, Hofsósi
og reynum að koma heim
eins oft og við getum.
- - - - -
Ég skora á systurdóttur
mína Efemíu Hrönn
Björgvinsdóttur að taka
við pennanum.
Sólborg Alda Pétursdóttir, brottfluttur Skagfirðingur, skrifar
Minningabrot úr Skagafirði
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
Aflahornið 4. -10. ágúst 2013:
Klakkur á makrílveiðum
Í vikunni sem leið var landað rúmum 78
tonnum á Skagaströnd, sjö tonnum á Hófsósi,
21 tonni á Sauðárkróki og 6 tonnum á
Hvammstanga. Engum makríl er landað á
Sauðárkróki enn sem komið er, en Klakkur
SK-5 er að makrílveiðum vestan við landið og
landar á Grundarfirði og er aflanum ekið til
vinnslu hjá FISK-Seafood. Málmey SK-1 er
einnig á makrílveiðum en frystir aflann um
borð og Örvar SK-2 er á grálúðuveiðum og
frystir einnig aflann um borð. Röst SK-17 liggur
í höfn á Sauðárkróki og er beðið eftir hvort
rækjuveiði verði leyfð að nýju þegar nýtt kvótaár
hefst 1. september nk. /KSE
Brák HU 115 Handfæri 567
Óli HU 8 Handfæri 413
Harpa HU 4 Handfæri 5065
Alls á Hvammstanga: 6045 kg
Bergur sterki HU-17 Handfæri 776
Bjarmi HU-33 Handfæri 2.532
Bogga í Vík HU-6 Handfæri 2.405
Dagrún ST-12 Dragnót 2.141
Dúddi Gísla GK-48 Handfæri 7.429
Drífa EA-60 Handfæri 576
Eiður ÍS-126 Rækjutroll 2.415
Elín ÞH-82 Handfæri 2.128
Garpur HU-58 Handfæri 911
Greifinn SK-19 Handfæri 2.410
Guðmundur á Hópi Handfæri 6851
Guðrún Ragna BA-162 Handfæri 2.357
Hafrún HU-12 Dragnót 14.332
Húni HU-62 Handfæri 1.831
Hvítá MB-2 Handfæri 1.866
Kiddi Árna Hu-19 Handfæri 554
Muggur KE-57 Handfæri 8.062
Nonni HU-9 Handfæri 2.408
Ragnar Alfreðs GK-183 Handfæri 4.382
Snorri ST-24 Handfæri 2.178
Stella GK-23 Landb lína 6.372
Sveinbjörg HU-49 Handfæri 2.311
SETRIÐ MITT
UMSJÓN kristin@feykir.is
Sæborg SK-8 Handfæri 2.336
Sædís Bára GK-88 Handfæri 6.901
Víðir ÞH-210 Handfæri 2.238
Víkingur KE-10 Handfæri 1.586
Víxill II ST-24 Handfæri 2.318
Alls á Skagaströnd: 78.274
Berglind SH-574 Handfæri 2.057
Bliki SK-15 Handfæri 129
Hafey SK-10 Handfæri 3.052
Helga Guðm. SK-23 Handfæri 3.042
Kristín SK-77 Handfæri 2.404
Maró SK-33 Handfæri 3.150
Már SK-90 Handfæri 2.976
Óskar SK-13 Handfæri 2.158
Ríkey SK-111 Handfæri 529
Steini G SK-14 Handfæri 2.121
Vinur SK-22 Handfæri 2.629
Þytur SK-18 Handfæri 421
Ösp SK-135 Handfæri 2.652
Alls á Sauðárkróki: 21.162
Ásmundur SK-123 Landb lína 4.010
Hafbjörg SK-58 Handfæri 681
Skáley SK-32 Handfæri 2.372
Alls á Hofsósi 14.127 kg
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG