Feykir - 21.11.2013, Síða 1
BLS. 6
BLS. 7
Hörður Ríkharðsson á
Blönduósi er penninn
Hugleiðing um
iðn-, verk- og
tæknimenntun
BLS. 6
Björg Eva Steinþórsdóttir er
íþróttagarpurinn
Frábær árangur
á fyrsta
bikarmótinu
Ingibjörg Rósa og Ragnar
eru matgæðingar vikunnar
Rjúpan ómissandi
á jólunum
44
TBL
21. nóvember 2013
33. árgangur : Stofnað 1981
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
Rætt verður um lokaða deild
Barnaverndarstofa vill áframhaldandi starfssemi á Háholti
Eygló Harðardóttir félags- og
húsnæðismálaráðherra vill að
Barnaverndarstofa hefji samninga-
viðræður við Hádranga um
endurnýjun samnings meðferðar-
heimilis að Háholti í Skagafirði og
hefur félaginu borist bréf frá
Barnaverndarstofu þess efnis.
Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar
formanns byggðarráðs Svf. Skagafjarðar
hefur mikil vinna farið fram við að snúa
dæminu við og skoða hvaða leiðir væru
færar eða hvort einhver grundvöllur sé til
að halda starfseminni áfram.
-Maður lítur björtum augum á þetta
ef niðurstaðan verður þessi. Þetta er
gríðarlega mikilvægt fyrir okkur, að verja
þessi þrettán störf og mögulega gæti þurft
að bæta við ef reksturinn breytist, segir
Stefán en ekki er útséð enn hvort
starfsemin verði í óbreyttri mynd eða
hvort unnið verði frekar að hugmyndum
sem uppi hafa verið um lokaða deild
eða nokkurs konar unglingafangelsi.
-Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra hefur lýst yfir áhuga á
lokaðri deild og munu viðræðurnar við
Barnaverndarstofu m.a. snúast um það,
segir Stefán Vagn og telur hér um jákvæð
tíðindi og skref í rétta átt að ræða. /PF
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
DELL In pir n 5521
Intel Core i3 · 4GB vinnsluminni · 500GB harður diskur ·
15.6“ HD WLED · Windows 8
JÓLAGL
EÐI
Um helgina fór fram útivistar- og sportsýning í reiðhöllinni
á Sauðárkróki þar sem mörg tækin og tólin voru sýnd.
Athygli vakti að öll tækin sem eru hvert öðru glæsilegra,
eru í eigu Skagfirðinga, einstaklinga eða félagasamtaka
fyrir utan þrjá bíla og eins fjórhjóls sem eru í eigu
Skagstrendinga. Kraftsportið er fyrirferðamikið hvort sem
litið er á rally, rallycross, sandspyrnu, motosport eða
venjulega mótorhjóla eða jeppamennsku.
Boðið var upp á glæsilega byssusýningu Skotfélagsins
Ósmanns þar sem mörg mismunandi vopn félagsmanna var
að finna ásamt því að framandi uppstoppuð dýr fengu að
njóta sín. Vöktu þrír birnir athygli, báðir hvítabirnirnir sem
felldir voru í Skagafirði og frændi þeirra úr Ameríku sem er í
eigu Tómasar Árdal á Sauðárkróki.
Eyþór Jónasson sýningastjóri segist vera ánægður með
hvernig til hafi tekist og þokkalega ánægður með ásóknina.
Frítt var inn á sýninguna og segir Eyþór það vera mögulegt
með góðri aðstoð fyrirtækja.
Hann segir svona sýningu þjappa klúbbunum saman sem
að þessu standa og í raun vera fína uppskeruhátíð fyrir þá. /PF
Glæsileg Kraftssýning að baki
Óteljandi hestöfl í reiðhöllinni
Þeir voru margir trukkarnir á Krafti og hér standa tvær blómarósir fyrir framan einn þeirra sem Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi hefur yfir að ráða.
HÓ-HÓ
-HÓ!
JÓLAVÖRU
RNAR FÆRÐ
U HJÁ OKK
UR