Feykir - 21.11.2013, Side 2
2 Feykir 44/2013
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Batnandi mönnum
er best að lifa
Nú eru liðin fimm ár frá hinu „svokallaða hruni“ eins og
einhverjir hafa nefnt það fall sem varð á mörgum sviðum
íslensks samfélags en það var ekki einungis fjármálakerfið sem
hrundi heldur margt annað. Traust almennings til stjórnmála-
manna fór undir frostmark, þingmenn stóðu með reidda
atgeira og hjuggu á báða bóga, andstæðinga sem samherja,
„sérstakur“ hefur glímt við fjármálavíkinga og glímir enn og
reynir að sýna fram á sekt þeirra sem gerendur í mesta fjár-
glæpamáli Íslandssögunnar og svo mætti lengi telja. Samfélags-
miðlarnir hafa verið fullir af neikvæðum ummælum og oft á
tíðum hatursfullum pistlum sem hafa eitrað ótrúlega mikið út
frá sér en nú finnst mér vera orðin nokkur breyting á. Fólk er
orðið þreytt á neikvæðninni og nennir ekki lengur að skoða
fréttir um hvort þessi eða hinn sé kominn í réttarsal og fólk er
óþreytandi að gagnrýna kommentakerfi DV. Samúðin og
samhugurinn er aftur farinn að kræla á sér sem veldur því að
fólk áttar sig á að þegar öllu er á botninn hvolft þá eru allir
mannlegir og með sína breyskleika. Tvær stúlkur í tékknesku
fangelsi eiga alla samúð landans þrátt fyrir að bera eiturlyf milli
heimsálfa sem og Sigfús Sigurðsson handboltakappi sem seldi
Ólympíusilfrið sitt vegna fjármálaóreiðu. Hvað er svo hægt að
segja um helsta son Íslands, Hemma Gunn, sem blekkti þjóðina
rækilega með bjórþambi sínu á Tælandi til að valda henni ekki
vonbrigðum og nú eftir leik Íslands og Króatíu grét þjóðin með
Eiði Smára í beinni útsendingu þegar hann var spurður um
framtíð hans í landsliðinu.
Já, batnandi mönnum er best að lifa og bið ég þig lesandi góður
vel að lifa og megi Guð halda áfram að blessa Ísland.
Páll Friðriksson
Gaf kirkjunni flygil
Á laugardaginn fyrir viku voru
haldnir tónleikar í
Hólaneskirkju þar sem fram
komu stórtenórinn Kristján
Jóhannsson, píanóleikarinn
Jónas Þórir og fiðluleikarinn
Matthías Stefánsson. Fluttu
þeir margar gullfallegar
íslenskar sem erlendar
söngperlur fyrir fullu húsi
áheyrenda.
Greint er frá því í Morgun-
blaðinu að listamennirnir hafi
farið á kostum fyrir fullu húsi
áheyrenda, sem kunnu vel að
meta það sem þeir höfðu fram
að færa.
Tónleikarnir voru í boði
Minningarsjóðsins um hjónin
frá Garði og Vindhæli sem
Lárus Ægir Guðmundsson
stofnaði fyrir nokkrum árum til
minningar um afa sína og
ömmur sem bjuggu á Garði. Á
tónleikunum bætti Lárus Ægir
um betur er hann gaf Hóla-
neskirkju nýjan K.KAWAI-
flygil til minningar um móður
sína, Soffíu Lárusdóttur. Var
það alnafna hennar, dóttir
Lárusar Ægis, sem afhenti
Steindóri Haraldssyni, safn-
aðarfulltrúa og meðhjálpara,
gjafabréf vegna flygilsins.
Nýi flygillinn lifnaði svo við í
höndum Jónasar Þóris er hann
spilaði „Adagio“ úr Tunglskins-
sónötu Beethovens. /KSE
Tónleikar í Hólaneskirkju
Fjölskylduvænasta
sveitarfélag landsins
Í ljósi viðsnúnings og
jákvæðrar þróunar í rekstri
Svf. Skagafjarðar hefur
meirihluti Framsóknar og
Vinstri grænna í sveitarstjórn
ákveðið að leggja til að ekki
verði farið í gjaldskrár-
hækkanir fyrir árið 2014 er
snúa aðallega að börnum,
barnafólki og eldri borgurum.
Lagt var til á sveitarstjórnar-
fundi í gær að eftirfarandi
gjaldskrár verði ekki
hækkaðar frá fyrra ári þrátt
fyrir verðlagshækkanir:
Sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar
Leikskólagjöld, skólamáltíðir
í leik-og grunnskólum, skóla-
dagvist, tónlistarnám, hljóð-
færaleiga aðgangseyrir í sund-
laugar, (áfram verði frítt í sund
fyrir börn og eldri borgara með
lögheimili í sveitarfélaginu),
dagvist aldraðra, heimaþjón-
usta og tómstundastarf barna á
vegum sveitarfélagsins.
Með þessum aðgerðum vill
sveitarstjórn leggja sitt lóð á
vogarskálarnar til að stuðla að
stöðugleika, halda aftur af
verðbólgu á komandi ári og að
kaupmáttur íbúanna aukist í
raun.
-Það er mikilvægt að
ávinningur af hagræðingu í
rekstri sveitarfélagsins skili sér
beint til þeirra sem helst ættu að
njóta hans, barna, fjölskyldu-
fólks og eldri borgara sem sækja
og þurfa að greiða fyrir margs-
konar þjónustu hjá sveitar-
félaginu. Þá viljum við undir-
strika að Skagafjörður er eitt
fjölskylduvænasta sveitarfélag
landsins, segir Bjarni Jónsson
formaður sveitarstjórnar. /PF
Jólasjóður Rauða krossins
Hjálpumst
að um jólin
Rauði krossinn á Blönduósi
hefur stofnað jólasjóð í
samvinnu við
Félagsþjónustu A-Hún. og
verður hann notaður til að
aðstoða fjölskyldur eða
einstaklinga sem á þurfa að
halda á Blönduósi og
nágrenni um jólin.
Þeir sem vilja leggja þessu
verkefni lið er bent á
reikningsnúmer jólasjóðsins
0307-13-169179, kt. 690179-
0329.
Í tilkynningu frá Rauða
krossinum segir að margt
smátt geri eitt stórt. Nánari
upplýsingar er hægt að fá hjá
Önnu Kr. Davíðsdóttur í
síma 691 7256 og hjá Auði
Sigurðardóttir félagsmála-
stjóra í síma 455 4170. /PF
Aukinn gagna-
flutningshraði
Í síðustu viku hóf fyrir-
tækið Míla við að setja
upp búnað fyrir Ljósveitu í
símstöðinni á Hvamms-
tanga. Með því að tengjast
Ljósveitu Mílu fá íbúar
möguleika á allt að
50Mb/s til heimila og
25Mb/s frá heimilum.
Aukinn gagnaflutnings-
hraði Ljósveitu Mílu býður
upp á móttöku á allt að fimm
háskerpusjónvarpsstöðv-
um. Hraði og öryggi teng-
ingarinnar skapar kjör-
aðstæður til fjarvinnu,
afþreyingar og samskipta.
Til að flýta fyrir lagningu
á landsbyggðinni er í fyrsta
áfanga settur upp búnaður
fyrir Ljósveitu í símstöðvar
og geta íbúar sem búa í
innan við 1000 metra
línulengd frá símstöðinni
tengst fljótt og vel. Hafa
íbúar möguleika á að nálgast
háhraðaþjónustu um Ljós-
veitu Mílu hjá sínu
fjarskiptafyrirtæki.
/KSE
Ljósnetið á Hvammstanga
Fimmta bindi um
Norðurland vestra
Út eru komin 4. og 5. bindi af
ritinu Eyðibýli á Íslandi en þau
fjalla um Vestfirði og
Norðurland vestra.
Markmið verkefnisins
Eyðibýli á Íslandi er að rann-
saka og skrá eyðibýli og önnur
yfirgefin íbúðarhús í sveitum
landsins.
Fyrstu skref rannsóknar-
innar voru tekin sumarið 2011
á Suðurlandi en sumarið 2012
náði rannsóknin til Norður-
lands eystra og Vesturlands og
í ár til Vestfjarða og Norður-
lands vestra.
Ritið er 170 bls. að stærð og
fjallar um 127 hús. /PF
Eyðibýli á Íslandi
Lumar þú á efni?
Auglýst
eftir efni í
Húna
Ritnefnd Húna auglýsir í
nýjasta Sjónaukanum eftir
efni til birtingar í Húna,
tímariti USVH, í næsta riti
sem kemur út í vor eða
síðar. Margskonar efni sem
tengist Húnaþingi vestra
kemur til greina svo sem
sögur, frásagnir,
kveðskapur og fleira.
Þeir sem luma á efni til
birtingar snúi sér til formanns
ritnefndar, Jónínu Sigurðar-
dóttur, á netfangið pila@
simnet.is eða í síma 895 2564.
/KSE