Feykir - 21.11.2013, Síða 3
44/2013 Feykir 3
Myndaalbúmið
Skyggnst í ljósmyndaalbúm Sigurðar Kr. Jónssonar á Blönduósi
Hér sést lambhúsið í Skrapatungu en jörðin fór í eyði árið 1985. Í bók Rósberg G. Snædals,
„Hrakfallabálkur. Slysfarir, harðindi og önnur ótíðindi í Húnavatnsþingi 1600-1850“, segir að
þann 26. febr. árið 1793 hafi Helga Einarsdóttir vinnukona í Skrapatungu á Laxárdal, 29 ára
ógift, andast úti í stríðum mannskaðahríðarbyl, þá hún vitjaði fjár og náði ei bænum aftur.
Nýr verslunarstjóri tekinn við
Ólafur Gísli Sigurjónsson hefur verið ráðinn
verslunarstjóri á Eyrinni á Sauðárkróki en
hann er fæddur Reykvíkingur og uppalinn
þar og í Mosfellsbæ.
Ólafur er kvæntur Lilju Guðbjartsdóttur
sem hefur starfað sem móttökuritari í
Domus Medica í Reykjavík og eiga þau
fjögur uppkomin börn og níu barnabörn.
Ólafur er menntaður kennari en hefur
einnig stundað nám í Rekstar- og
viðskiptafræði við Endurmenntun Háskóla
Íslands en einnig er hann lærður uppstoppari
og starfaði við það síðast að kenna þá iðn.
Ólafur segir að hann hafi séð starfið
auglýst og ákveðið að sækja um þótt hann
þekkti lítið til svæðisins fyrir utan tvo aðila
sem hér búa. Hann segir að það hafi komið
sér þægilega á óvart hve mikið sé af góðu
fólki sem hefur tekið afskaplega vel á móti
honum og er hann þakklátur fyrir það. Ekki
er búsetan í nýju húsnæði alveg örugg til
Verslunin Eyri
framtíðar því hann fékk einungis leigt fram í
apríl og þarf því að finna sér eitthvað eftir
þann tíma. -Lilja er ekki komin með starf hér
fyrir norðan ennþá en það kemur, segir
Ólafur sem á von á frúnni norður til sín öðru
hvoru megin við jólin. /PF
Ólafur verslunarstjóri í heimsókn í Nýprenti.
Nýr þjálfari ráðinn
Jón Stefán Jónsson hefur
verið ráðinn þjálfari m.fl.
karla hjá Tindastóli. Frá
þessu var gengið um helgina
segir í tilkynningu frá
knattspyrnudeild Tindastóls.
Jón Stefán eða Jónsi eins og
hann er kallaður er fæddur árið
1982 og sem leikmaður má
segja að hann hafi verið alinn
upp á Akureyri hjá Þór en
einnig lék hann með KA og
Tindastóli sem polli.
Lengst af lék Jónsi með Þór í
meistaraflokki en eftir
tímabilið 2006 ákvað hann að
einbeita sér fremur að þjálfun
en spilamennsku. Hann spilaði
þó nokkra leiki í neðri deildum
með hinum ýmsu liðum áður
en skórnir fóru endanlega á
hilluna árið 2011.
Jónsi, sem er með UEFA A
þjálfaragráðu frá árinu 2011,
hefur starfað sem þjálfari frá
árinu 2004 og þá lengst af í
yngri flokkum Þórs. Árið 2011
fór hann suður og gerðist
þjálfari hjá Haukum sem
aðalþjálfari m.fl. kvenna sl. tvö
ár.
Knattspyrnudeild Tinda-
stóls væntir mikils að sam-
starfinu við hann enda fara
hugmyndir og framtíðarsýn
beggja vel saman. PF
Meistaraflokkur Tindastóls karla
Jón Stefán Jónsson nýráðinn þjálfari
Tindastóls. Mynd. Fótbolti.net
Umsjónarmaður hjá
Textíllistamiðstöð
á Blönduósi
Auglýst er eftir starfsmanni
í 50% starf hjá Textíllistamiðstöð
í Kvennaskólanum á Blönduósi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Bakgrunnur í listum og/eða hönnun
• Góð almenna menntun
• Góð ensku og íslensku kunnátta bæði í tali og rituðu máli
Meðal verkefna eru:
• Sjá um bréfaskipti og skráningar fyrir listamiðstöðina
• Sjá um heimasíðu og facebook-ar síðu
• Kynna og markaðsetja listamiðstöðina
• Taka á móti listamönnum og aðstoða þá á meðan
þeir dvelja í listamiðstöðinni
• Undirbúa verkefni/sýningar og sækja um styrki
• Efla samstarf við skóla og aðrar listamiðstöðvar
Við leitum að jákvæðum, hugmyndaríkum einstaklingi til
að takast á við spennandi verkefni sem er í uppbyggingu.
Nauðsynlegt er að viðkomandi sér fær í mannlegum
samskiptum, hafi skipulagshæfileika og geti unnið
sjálfstætt. Stefnt er að því að auka starfið í 100%
þegar fram í sækir.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
og ætli sér að búa á svæðinu.
Umsóknarfrestur er til 29. nóvember 2013
Umsóknir skulu berast til Textilseturs Íslands á Blönduósi,
Árbraut 31, 540 Blönduós eða í tölvupósti til
textilsetur@simnet.is eða tsb@tsb.is
Svavar ráðinn varaslökkviliðsstjóri
Gengið hefur verið frá
ráðningu nýs varaslökkviliðs-
stjóra hjá Brunavörnum
Skagafjarðar þar sem Svavar
Atli Birgisson hefur verið
ráðinn í starfið frá og með
næstu áramótum.
Kári Gunnarsson mun láta
af störfum varaslökkviliðsstjóra
í næsta mánuði eftir áratuga
farsælan feril sem slökkviliðs-
og sjúkraflutningamaður þar af
sem varaslökkviliðsstjóri frá
haustinu 2004.
Brunavarnir Skagafjarðar
Að sögn Vernharðs Guðna-
sonar slökkviliðsstjóra hafa
útköll Slökkviliðsins að jafnaði
verið um tuttugu á ári undan-
farin ár. Það sem af er þessu ári
eru þau orðin tólf.
Hjá Brunavörnum Skaga-
fjarðar eru fjögur stöðugildi,
tuttugu og sjö eru hlutastarfandi
þar af eru níu menn löggildir
sjúkraflutningamenn. Starfs-
stöðvar eru þrjár, Sauðárkrókur,
Hofsós og Varmahlíð. /PF