Feykir - 21.11.2013, Qupperneq 4
4 Feykir 44/2013
Aflahornið 10. - 16. nóvember 2013
Hátt í 1400 tonnum
landað í vikunni
Landað var um 43 tonnum á Hofsósi, tæpum
595 tonnum á Skagaströnd, rúmum 728
tonnum á Sauðárkróki og tæpum 10 tonnum
á Hvammstanga. Alls gera þetta rúmlega
1376 tonn á Norðurlandi vestra, sem er með
mesta móti. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Harpa HU-4 Dragnót 3.903
Steini Hu-45 Dragnót 5.801
Alls á Hvammstanga 9.704
Alda HU-112 Landb.lína 7.128
Ágúst GK-195 Lína 81.772
Guðmundur á Hópi Handfæri 14.953
Kristinn SH-812 Landb.lína 48.522
Sighvatur GK-57 Lína 84.086
Sturla GK-12 Lína 113.760
Tómas Þorv. GK-10 Lína 81.459
Valdimar GK-195 Lína 100.910
Alls á Skagaströnd: 594.768
Arney HU-36 Lína 2.522
Ásmundur SK-123 Landb.lína 2.321
Bíldsey SH-65 Lína 36.320
Þorgrímur SK-27 Landb.lína 2.327
Alls á Hofsósi 43.490
Klakkur SK-5 Botnvarpa 130.186
Málmey Sk-1 Botnvarpa 386.340
Már SK-90 Landb.lína 996
Óskar SK-13 Handfæri 896
Örvar SK-2 Botnvarpa 169.347
Örvar SK-2 Rækjuvarpa 40.341
Alls á Sauðárkróki 728.106
Rótarýklúbbur Sauðárkróks
ætlar að efna til ókeypis
jólahlaðborðs í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki 30. nóvember nk.
þar sem alls verður boðið
sjöhundruð manns til sætis.
Viðburðurinn er ætlaður sem
samfélags- og styrktarverkefni
en mörg fyrirtæki koma að
verkefninu og munu hlaðborð-
in svigna undan girnilegum
veitingum. Þá mun tónlistar-
fólk búa til fallega stemningu
til að gera stundina eftirminni-
lega. Feykir hafði samband og
forvitnaðist um málið.
Hver er hvatinn að því að setja
upp þennan viðburð?
-Rótarýhreyfingin hefur og
lætur gott af sér leiða um allan
heim. Rótarýklúbbarnir eru
margir hverjir með hin ýmsu
samfélagsverkefni, en þetta
verkefni sem við eru að fara í er
einstakt og í stærri kantinum.
Þessi hugmynd kom upp innan
klúbbsins og var samþykkt að
fara af stað í þetta verkefni, sem
vissulega er ærið. Það eru ekki
allir í okkar samfélagi sem
komast á jólahlaðborðin sem eru
haldin út um allan fjörð og fyrir
því eru margar ástæður. En að
þessu sinni sitja allir við sama
borð og við vonum svo
sannarlega að við fáum þversnið
af íbúum samfélagsins til að
mæta.
Þetta er ansi stórt í sniðum,
kom aldrei upp efi hvort þetta
væri í raun framkvæmanlegt?
-Jú vissulega, en þetta var rætt
fram og til baka í klúbbnum og
niðurstaðan varð sú að við
gætum þetta. En við höfum
farið út fyrir raðir klúbbsins til
að gera þetta mögulegt því mörg
góð fyrirtæki hafa lagt okkur lið
og létt verulega undir.
Hvernig gekk að fá fólk með í
verkefnið?
-Það verða fyrst og fremst Rótarý-
félagar sem munu standa vaktina í
þessu. Við munum sjá um að
koma miðunum út og síðan gera
okkar besta á hlaðborðinu sjálfu.
Okkur er ýmislegt til lista lagt
enda eru í klúbbnum frábærir
einstakl-ingar.
Hvað getið þið sagt mér um
Rótarý?
-Rótarýhreyfingin er alþjóða-
félagsskapur leiðandi manna
sem sameinast um þá ósk að
þjóna öðrum án tillits til trúar-
bragða, stjórnmála, kynþátta eða
þjóðernis.
Fyrsti klúbburinn var stofn-
aður í Bandaríkjunum árið 1905
en fyrsti klúbburinn á Íslandi var
stofnaður árið 1934. Rótarý-
klúbbur Sauðárkróks var stofn-
aður árið 1948 og við erum 26
félagar í klúbbnum. Við fundum
Í norðanvindi
og vestanblæ –
Nú er að koma út ljóðabókin Í
norðanvindi og vestanblæ
eftir Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd. Þetta er sjötta
kveðskaparbók Rúnars, en
auk þess hefur hann sent frá
sér smásagnasafnið Þar sem
ræturnar liggja og söguna
Hjartað slær til vinstri.
Rúnar yrkir sem fyrr á
hefðbundinn hátt og kemur
víða við í efnisvali. Íslenskt
mannlíf og saga situr þó jafnan í
öndvegi í ljóðum hans. Margt er
um persónulegar yrkingar í
þessari bók og ýmsum vinum
og samferðarmönnum er fylgt
úr hlaði þessa lífs með þökk og
virðingu.
Nærri áratugur er liðinn frá
því að síðast kom út kveð-
skaparbók eftir Rúnar og er það
von höfundar og útgefanda að
mörgum þyki mál til komið að
aukið sé þar nokkru við.
Vestfirska forlagið gefur
bókina út og er þetta þriðja
bókin sem það gefur út eftir
Rúnar. Ljóðaunnendum og
öðrum sem kunna að vilja
eignast þessa bók er bent á að
hafa samband við Vestfirska
forlagið eða höfundinn.
/Fréttatilkynning
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd gefur út ljóðabók
vikulega okkur til gagns og
gaman en tökum hinsvegar gott
sumarfrí. Við ræðum m.a.
samfélagsmál á fundunum og
fáum ekki ósjaldan utanað-
komandi aðila til að flytja erindi
og fræða okkur og upplýsa. En
síðast en ekki síst reynum við
allir að láta gott af okkur leiða.
Eitthvað sem þið viljið koma á
framfæri?
-Við vonum að allir taki
þessu framtaki vel og við náum
að fylla húsið. Miðar verða
afhentir á morgun, föstudag, í
bönkunum þremur á Króknum
og byrjum við á því kl. 12:15.
Líklega verður miðafjöldi á
hvern einstakling þó eitthvað
takmarkaður. Eins og komið
hefur fram er ókeypis á þetta en í
íþróttahúsinu verður hinsvegar
söfnunarkassi þar sem fólk getur
sett einhverja aura ef það getur
og vill. Allt sem safnast mun fara
til að hlúa enn betur að
skjólstæðingum á Heilbrigðis-
stofnuninni á Sauðárkróki.
Rótarýfélagar vonast til að sjá
sem flesta og þakka öllum sem
hafa komið að verkefninu og gert
það mögulegt. /PF
Ókeypis jólahlaðborð
Rótarýklúbbur Sauðárkróks heldur stórveislu
Ómar Bragi Stefánsson, Róbert Óttarsson og Heimir Þór Andrason fara yfir málin en í mörg horn er að líta áður en stórveislan hefst.
Vörukarfan lækkar
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í
flestum verslunarkeðjum frá
því í janúar 2013 (viku 5) þar
til nú í byrjun nóvember (viku
44), nema hjá Hagkaupum
og Kaupfélagi Vestur-
Húnvetninga þar sem hún
lækkar í verði á milli
mælinga. Mesta hækkunin
var hins vegar 6,4% hjá
Iceland.
Á vefsíðu ASÍ segir að á
tímabilinu megi sjá miklar
hækkanir á mjólkurvörum,
kjötvörum og sætindum.
Grænmeti og ávextir lækkuðu
hins vegar í verði hjá 10
verslunum af 15. Verð á
vörukörfu ASÍ hækkaði eins og
fyrr segir mest hjá Iceland um
6,4%, 5% hjá Víði, 4,2% hjá
Bónus, 4% hjá Nettó, 3,7% hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga og
3,4% hjá Samkaupum-Úrvali.
Hjá tveimur verslunum
lækkaði karfan á tímabilinu eða
um 2,8% hjá Kaupfélagi Vestur
Húnvetninga og um 1,2% hjá
Hagkaupum. Hjá Kaskó stóð
verðið nánast í stað. /PF
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
Nýr taxi
í bænum
Hef tekið að mér leiguakstur
á Sauðárkróki og í nágrenni
Björgvin Jónsson > Sími 699 7001