Feykir - 21.11.2013, Qupperneq 7
44/2013 Feykir 7
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir Sudoku þrautina
er algjör nörd.
Tilvitnun vikunnar
Vonin er draumur vakandi manns.
- Aristóteles
Sudoku
ÓTRÚLEGT EN KANNSKI SATT
Móna Lísa
Móna Lísa er olíumálverk á asparfjöl eftir Leonardo
da Vinci. Það er í eigu franska ríkisins og er til sýnis
á Louvre-safninu í París samkv. Wikipedia. Myndin
sýnir konu sem brosir „torræðu“ brosi, sem sumir
telja dularfyllsta bros heimsins. Ótrúlegt en kannski
satt þá er málverkið af sjálfum Leonardo Da Vinci
sem konu.
Skarpgrímur Herliði hefur hafið mótmælastöðu fyrir utan
höfuðstöðvar KSÍ og það ekki af litlu tilefni. Þrátt fyrir að
Skarpgrímur Herliði hafi 10 ár í röð verið valinn leikmaður
ársins hjá boltafélagi Súðavíkur hefur hann aldrei verið valinn í
landsliðið, ekki boðaður á eina æfingu hvað þá boðinn miði á leik. Dapurlegast er
þó auðvitað að landsliðið þarf að líða fyrir að fá ekki að njóta krafta Skarpgríms
Herliða því að hans mati og flestra Súðvíkinga er hann akkúrat rétti maðurinn til
að lumbra á Króötum og þess háttar fólki.
HINRIK MÁR JÓNSSON
Örlaga örsögur
HEIÐAR ÖRN SIGURFINNSSON
-2-1 fyrir Króata.
ANNA LÓA
GUÐMUNDSDÓTTIR
-1-1. Klárt mál!
BJÖRN MAGNÚS ÁRNASON
-Hann fer 1-1. Við potum einu,
þeir jafna á 88. eftir að hafa verið
í sókn allan leikinn. Vörnin verður
meðetta!
ELFA BJÖRK
SIGURJÓNSDÓTTIR
-Ég ætla að vera bara bjartsýn og
segja 1-1 eins og svo margir aðrir.
Svo þurfum við bara að safna
fyrir fargjaldinu til Brasilíu...
Feykir spyr...
[SPURT Á FÉSBÓKINNI
FYRIR LEIK ÍSLANDS
OG KRÓATÍU]
Hvernig fer
leikurinn?
Ingibjörg Rósa og Ragnar eru matgæðingar vikunnar
Aðfangadagskvöld
óhugsandi án rjúpna
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir
og Ragnar Pálmason á Kollsá
II í Hrútafirði eru matgæð-
ingar vikunnar.
„Við erum sauðfjárbændur,
Ragnar er einnig smiður og ég
er líka í nemi í ferðamálafræði
við Háskólann á Hólum og
stefni á útskrift (BA) þaðan
næsta vor. Er sem sagt að skrifa
lokaritgerðina mína um þessar
mundir, segir Ingibjörg Rósa,
eða Inga eins og hún er oftast
kölluð. „Einnig rek gistiheimilið
Tangahús á Borðeyri ásamt
tengdamóður minni, Ásdísi
Guðmundsdóttur. Börnin eru
fjögur, ein tíu ára dama enn
heima, þrír strákar farnir að
heiman,“ segir Inga.
Matseldin er yfirleitt á
höndum Ingu en Ragnar "kann"
á öll tæki í eldhúsinu og hann
hellir uppá frábært kaffi á
morgnana, að sögn Ingu.
„Rjúpur eru í sérstöku uppá-
haldi hjá okkur. Ég kom með
þann sið með mér inn í okkar
hjúskap. Ragnar hafði aldrei
bragðað rjúpu fyrr en þá. Á
Best með brúnuðum kartöflum og
fersku salati.
EFTIRRÉTTUR
Ísréttur
Alveg fyrir 8-10 manns
Múslí
100 gr. smjör
2 og ¼ dl. púðursykur
4,5 dl. haframjöl
2 og ¼ dl kókosmjöl
2 og ¼ dl kornflex
2 og ¼ dl rice crispies
4,5 dl Nóa kropp
Aðferð: Allt ristað á pönnu við
vægan hita og kælt um stund(nema
Nóa kropp, það er sett í síðast, þ.e.
eftir kælingu svo það bráðni ekki
utan af þeim súkkulaðið).
Krem:
6 eggjarauður
8 msk flórsykur
100 gr súkkulaði
½ lítri rjómi
Aðferð: Rjóminn þeyttur og settu í
skál. Eggjarauður og flórsykur
þeytt vel saman. Súkkulaði brætt
og kælt og bætt út í eggjablönduna
ásamt rjómanum. Sett í form sem
má frysta. Múslí og krem sett til
skiptis, athugið að byrja og enda á
kremi. Að lokum er rétturinn
frystur. Best að taka hann fram um
15 mín. áður en hans er neytt.
Verði ykkur að góðu!
heimaslóðum mínum,
Marðarnúpi í Vatnsdal A-Hún
var óhugsandi að annað væri á
borðum á aðfangadagskvöld,“
segir Inga að lokum.
Við skorum á Sigríði
Hallgrímsdóttur (Sirrý á Mark-
höfða).Hún hefur haft atvinnu
af matartilbúningi í mörg ár og
lumar eflaust á fínum upp-
skriftum.
AÐALRÉTTUR
Svínakótilettur í
bananasósu
Uppskriftin er fyrir u.þ.b. 4
6 stk. nýjar svínakótilettur (óbarð-
ar), þerraðar, brúnaðar í smjöri/
olíu á pönnu beggja vegna. Salt+
pipar beggja vegna. Teknar af og
settar í smurt eldfast mót. 3-4
bananar stappaðir m/gaffli, settir á
pönnuna (sem kjötið var steikt á/
ekki þvo hana á milli), svo sett gott
karrý 2-3 tsk. Blanda vel saman við
bananamaukið. Látið létt brúnast,
hrært vel í á meðan. Þynnt með
matreiðslurjóma. Smakkað til.
Bananasósunni svo hellt yfir
kótiletturnar, bakað í ofni þar til
gul-brún húð er komin ofaná
réttinn. Ca. 40 mínútur við 180
gráður.