Feykir


Feykir - 21.11.2013, Qupperneq 8

Feykir - 21.11.2013, Qupperneq 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 44 TBL 21. nóvember 2013 33. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Anna Friðriksdóttir á Sauðárkróki Saumar úr efnum frá ömmu sinni HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM? UMSJÓN kristin@feykir.is -Ég hef gert allskonar handavinnu í gegnum tíðina en fyrir svona tíu árum fór ég út í bútasauminn nánast eingöngu. Það byrjaði með því að mér áskotnuðust birgðir af allskonar efnum úr fórum ömmu minnar, sem rak litla vefnaðarvöruverslun. Heildsalarnir sem hún skipti við sendu henni reglulega efnaprufur sem hún svo pantaði eftir, segir Anna Friðriksdóttir á Sauðárkróki, sem segir lesendum frá handavinnu sinni. -Amma safnaði þessu saman í gegnum árin og þetta ásamt afgangslagernum úr búðinni endaði hjá mér eftir hennar dag. Mörg efnin eru dásamlega falleg og ég bara varð að gera eitthvað úr þessu. Þessi efni eru mörg uppistaðan í því sem ég hef verið að gera. Af allri þeirri sauma- tækni sem hægt er að nota í bútasaumi, finnst mér skemmti- legast að „applikera“ og nota það mikið, bætir Anna við. -Uppáhalds teppið mitt er ekki margbrotið eða flókið, en það er fyrsta verkefnið mitt og gert úr efnunum hennar ömmu - kúruteppi sem ég læt ekki frá mér. Ég er yfirleitt með nokkur verkefni í gangi af ýmsum ástæðum – stundum þarf ég einfaldlega bara að hvíla mig á þeim, eða mig vantar efni því enginn selur bútasaumsefni á Króknum í dag. Ég hef sjálf flutt inn smávegis af efnum og snið- um, en bara fyrir mig og mína. Svo kemur fyrir að mig vantar hugmyndir og þá er að leita eftir ráði og hugmyndum hjá ein- hverri góðri bútasaumskonu en þær eru margar í Skagafirði. Ég er aldrei verkefnalaus því ef ég er stopp í einhverju þá byrja ég bara á einhverju öðru - Af nógu er að taka. Verst að sólar- hringurinn er bara 24 tímar, mér endist örugglega ekki ævin til að gera öll þau verkefni sem ég hef sankað að mér. Árlega förum við nokkrar á bútasaumsnámskeið að Löngu- mýri og söfnum í sarpinn, þær uppákomur eru alveg ómetan- legar. Við hittum konur allstaðar að af landinu með sameiginleg áhugamál, og sömuleiðis er árlegur hittingur í Húnavatns- sýslunni með bútasaumskonum þar. Ég kláraði nýlega teppi handa næst yngsta barnabarn- inu, sem á að fá það í jólagjöf. Og er að gera teppi handa því yngsta sem fær það í jólagjöf að ári. Ég er líka með tvö önnur verkefni í gangi en þar sem það eru gjafir má ég ekki segja nánar frá því. Ef einhver hefur áhuga á að skoða það sem við (Búskurnar) höfum verið að gera, þá læt ég fylga með slóð að síðunni sem Búskurnar (bútasaumarar í Skagafirði) halda úti www. buskur.blogspot.com. Þar eru myndir af mörgum þeim verkefnum sem við höfum verið að gera síðustu árin. Við komum saman í Tjarnarbæ (félagheimili hestamanna) hálfsmánaðarlega og saumum. Þetta er öllum opið og allir sem hafa áhuga eru velkomnir - - - - - Ég vil síðan benda á Ebbu Kristjánsdóttur í Kvistholti fyrir næsta prjónaþátt. Anna Friðriksdóttir. Aplikeraður dúkur á borðinu sem heitir Vorvöndur. Fyrsta teppið – ómissandi kúruteppi.Barnateppi. Viðburðarík vika í Árskóla Dansmaraþon og sögusýning um skólahald á Sauðárkróki Síðasta vika var viðburðarík í Árskóla á Sauðárkróki. Á þriðjudag og miðvikudag voru þemadagar þar sem nemendur undirbjuggu og settu upp sýningu um sögu skólans, þar sem mátti sjá kunnuglegar kennslubækur og ýmislegt sem minnti á tíðaranda liðinna áratuga. Á fimmtudag og föstudag var svo opið hús í skólanum og árlegt dansmaraþon 10. bekkinga. Skólinn á um þessar mundir 15 ára afmæli sem sameinaður skóli og komst í haust undir eitt þak. Á fimmtudaginn var farin skrúð- ganga frá Barnaskólahúsi, eftir að gamli skólinn hafði verið kvaddur. Seinnipartinn fór svo fram formleg vígsla nýja skólans, að viðstöddu fjölmenni. /KSE Einbeitingin leyndi sér ekki í dansmaraþoninu og voru tekin allmörg létt spor, sem hinn kunni danskennari Logi Vígþórsson hafði lagt inn. Ætla má að sýningargestir hafi horfið nokkur ár, ef ekki áratugi, aftur í tímann þegar sýning um skólahald var skoðuð. Svona má ætla að tískan hafi verið á fyrstu árum barnaskólahalds á Sauðárkróki.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.