Feykir


Feykir - 20.04.2016, Blaðsíða 6

Feykir - 20.04.2016, Blaðsíða 6
6 15/2016 Baldur Hafstað var fyrsti ritstjóri Feykis, frá árinu 1981-1982. Það var að mörgu að huga upphafsár Feykis þegar blaðið var sent í prentun til Akureyrar í öllum veðrum og svo þurfti að bera það út til áskrifenda. Það sem Baldur segir einna minnisstæðast frá þessum tíma er hve margt fólk var reiðubúið að hjálpa til við útgáfu blaðsins. -Þegar ég tók að mér ritstjórastarfið haustið 1981 kenndi ég við Fjölbrautaskólann. Þetta var því aukastarf og ég sinnti því bara einn vetur. Tvö tölublöð höfðu komið út um sumarið ef ég man rétt, en nú „Sæll og blessaður, það er Baldur hérna Hafstað“ Fyrrum ritstjórar rifja upp Feykisárin Baldur Hafstað ritstjóri 1981-1982 UMFJÖLLUN Berglind Þorsteinsdóttir ÁN MSG Kjarnafæði framleiðir flestar þær afurðir úr íslensku gæðakjöti sem í boði eru á íslenskum neytendamarkaði. Höfuðáherslur Kjarnafæðis eru á vöruvöndun og gæði framleiðslunnar og því er markvisst stefnt að aukinni hollustu, unnið að fækkun aukefna og ofnæmisvalda. Kjötiðnaðarmeistarar fyrirtækisins hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir færni sína. Kjarnafæði hf. 601 Akureyri Sími 460 7400 kjarnafaedi.is Hollara og betra álegg - hagstæðari kaup! Áleggið frá Kjarnafæði er sannkallað gæðaálegg og því bera margar tegundanna græna skráargatið. Svo má ekki gleyma gullinu sem pepperóníið og spægipylsan státa af. Álegginu er nú pakkað í léttari einingar sem stuðlar að minni matarsóun og hagstæðari kaupum. Veldu gæði, veldu Kjarnafæði. vildu menn koma reglu á útgáfuna. Við gátum þó ekki gert Feyki að vikublaði strax, urðum að láta okkur nægja aðra hverja viku. Jón Hjartarson skólameistari var höfuðpaurinn. Hann hafði, alveg frá því að skólinn var stofnaður 1979, rætt við mig og aðra um nauðsyn þess að halda úti blaði í kjördæminu. Jón var ýtinn, og ég minni á það afrek hans að koma bóknámshúsinu upp á þessum fyrstu árum sínum í starfi, auðvitað með stuðningi margra góðra manna. Það var ekki hægt annað en að taka áskorun Jóns Hjartar- sonar þótt aðstæður væru frumstæðar. Það þurfti að prenta blaðið á Akureyri; ég sendi handritið eldsnemma að morgni hvers útgáfudags með flutningabíl, fór síðan sjálfur seinni part dagsins til að lesa prófarkirnar og kom svo með blaðið heim um kvöldið (fór einu sinni út af í blindbyl í Öxnadal). Svo bárum við Finna Birna, konan mín, blaðið út morguninn eftir með hjálp nokkurra unglinga og fórum á pósthúsið með bunka; já, það var mikil vinna að merkja póstinn. Kannski er það minnis- stæðast hvað margt fólk var reiðubúið að leggja okkur lið: Kári Jónsson á pósthúsinu, Helgi Rafn kaupfélagsstjóri o.s.frv. En það vantaði peninga, og frekar illa gekk að safna auglýsingum; og bókhaldið var rassvasabókhald. Sjálfur var ég næstum því kauplaus og fannst það reyndar mjög eðlilegt af því að ég var í fastri vinnu annars staðar. Það eru bara góðar minn- ingar frá þessum vetri. Ég kynntist fjölda manns um allt kjördæmið, aðallega í gegnum síma, og Finna segist helst muna eftir mér þennan vetur að taka símanúmer og segja síðan: „Sæll og blessaður, það er Baldur hérna Hafstað.“ Baldur Hafstað við það að fara af stað í hjólatúr. MYND: ÚR EINKASAFNI

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.