Feykir - 20.04.2016, Blaðsíða 7
15/2016 7
Gísli Einarsson, frétta- og dagskrárgerðarmaður á RÚV
Afmæliskveðja til Feykis
Úr Feyki 1990.
Mín fyrstu viðvik fyrir fjölmiðla vann
ég fyrir hið ágæta blað Feyki. Það var
fyrir um aldarfjórðungi. Þá bjó ég í
tæpt ár á Hvammstanga og að beiðni
vinar míns, þáverandi ritstjóra Feykis,
Þórhalls Ásmundssonar þá skrifaði ég
fáeinar fréttir í blaðið úr Húnaþingi
vestra. Árinu áður hafði í fyrsta sinn
birst mynd af mér í fjölmiðli, svo mér
hafi verið kunnugt um. Það var meira
að segja á forsíðu! Á forsíðu Feykis
að sjálfsögðu.
Þetta var mynd sem fyrrnefndur
Þórhallur hafði náð af mér í æfingaferð
knattspyrnuliðs Neista í Færeyjum. Þetta
var ekki mynd af afrekum mínum á
íþróttavellinum heldur sýndi hún mig
sofandi með danskt Andrésblað í
fanginu. Svona er maður sjálfhverfur að
þegar maður ætlar að rita afmæliskveðju
til einhvers þá er það fyrsta sem manni
dettur í hug maður sjálfur.
Ég held reyndar að öll séum við
sjálfhverf á einhvern hátt þótt margir fari
betur með það en ég geri hér. Við höfum
mestan áhuga á því sem snertir okkur
sjálf og okkar nærumhverfi. Það er
einmitt þess vegna sem við þörfnumst,
og kunnum að meta okkar héraðs-
fréttablöð, á borð við Feyki. Og það er
náttúrulega af sömu ástæðu sem nánast
allir eru komnir með sinn eigin fjölmiðil
í formi svokallaðra samfélagsmiðla.
Flest okkar fylgjast að sjálfsögðu með
því sem er að gerast í heiminum.
Sérstaklega stórum viðburðum sem
varða velferð mannskyns. Líka ýmsu
skrítnu og skemmtilegu, já og líka miður
skemmtilegu, sem er að gerast þarna
langt, langt í burtu. Við fylgjumst samt
betur með því sem er að gerast á Íslandi
og þar er ýmislegt að gerast þessa dagana
og þess vegna höfum við kannski sjaldan
fylgst eins vel með fréttum á landsvísu.
Mesta athygli veitum við þó fréttum af
okkar nærumhverfi – úr okkar heima-
héraði – af okkar fólki. Það er líka mjög
eðlilegt og þannig á það að sjálfsögðu að
vera. Sama hversu miklir heimsborgarar
menn eru, vilja vera, eða þykjast vera, þá
kemur manns eigin hundaþúfa alltaf
fyrst. Það er líka margsannað mál að það
sigrar enginn heiminn nema að vera í
sátt við sitt nærumhverfi.
Héraðsmiðlar, með héraðsfréttablöð-
in í broddi fylkingar, eiga þannig stóran
þátt í að móta sjálfsmynd íbúanna á sínu
útbreiðslusvæði. Það sem við lesum um
okkur sjálf, heyrum – eða horfum á, það
hefur áhrif á það hvaða augum við lítum
okkur sjálf og okkar heimasveit.
Héraðsmiðlarnir eiga líka stóran þátt í
að móta ímynd viðkomandi svæðis
útávið. Það eru nefnilega ekki bara
Skagfirðingar og Húnvetningar sem lesa
Feyki, svo dæmi sé tekið. Það er fólk um
land allt, vítt og breitt um heiminn þess
vegna, sem hefur áhuga á því sem er að
gerast í þessum landshluta. Það hefur
líka fjölmiðlafólk á öðrum miðlum.
Sérstaklega á fjölmiðlum sem kalla má
landsdekkandi. Fréttir og umfjallanir í
héraðsfréttablöðum eru endalaus upp-
spretta frétta- og dagskrárefnis fyrir
miðla sem eru með útbreiðslu um allt
land. Margfeldisáhrif lítillar fréttar í
héraðsfréttablaði geta því verið umtals-
verð.
Hlutverk héraðsfréttablaða er ekki
lítið og sömuleiðis ábyrgð þeirra sem á
þeim starfa. Pressan er líka umtalsverð
og krafan um að skrifa „jákvæðar fréttir“
er ávallt til staðar. Í mínum huga er
hinsvegar óeðlilegt að skipta fréttum
upp í „jákvæðar“ og „neikvæðar“ fréttir
eins og mörgum er tamt. Það sem er
neikvætt fyrir einn getur verið jákvætt
fyrir annan. Ef við horfum á hlutina
útfrá samfélaginu þá getur það verið
mjög jákvætt fyrir samfélagið að benda á
neikvæða hluti. Að benda á eitthvað sem
er að því þá eru kannski líkur á að það
verði lagað. Sem er jákvætt!
Ég er ekki í vafa um gildi héraðs-
miðlanna og nauðsyn þess að þeir standi
áfram sína vakt. Mér þykir líka vænna
um héraðsfréttablöðin en flesta aðra
fjölmiðla. Og Feykir er að sjálfsögðu í
sérstöku uppáhaldi frá því hann var mitt
héraðsfréttablað sem íbúa á Norður-
landi vestra.
Og svo ég ljúki þessu á sömu sjálf-
hverfu nótunum og ég byrjaði, þá spillir
heldur ekki fyrir að litla systir mín, sem
ég er býsna stoltur af, er hluti af hinu
vaska Feykisliði.
Ég óska Feyki innilega til hamingju
með afmælið.
Gísli Einarsson, frétta- og
dagskrárgerðarmaður á RÚV
ÁLFTAGERÐISBRÆÐUR ÁSAMT
GÓÐUM GESTUM Í MIÐGARÐI
28. MAÍ NK. KL. 20:30
Í MIÐGARÐI
Það verður enginn svikinn af stórglæsilegum tónleikum
hinna söngelsku Álftagerðisbræðra, en þeir koma fram
í Miðgarði ásamt fríðu föruneyti þann 28. maí nk.
Spé- og söngfuglinn Örn Árnason mun verða þeim
til fulltingis ásamt hljómsveit.
Miðasala hefst föstudaginn 22. apríl
í Blóma- og gjafavörubúðinni Sauðárkróki og í KS Varmahlíð.
Verð 4.500,-
ATH! Eingöngu tekið við peningum sem greiðslumiðli
Gísli við tökur á Burður í beinni í fyrravor. MYND: KSE