Feykir - 20.04.2016, Síða 9
15/2016 9
Óskum blaðinu til hamingju
með aldurinn
Music Festival
MIÐASALA ER HAFIN Á MIÐI.IS
– ÞAR SEM VEGURINN ENDAR
úlfur
úlfur
retro
stefson
sverrir
bergmann
REYKJUM Á REYKJASTRÖND Í SKAGAFIRÐI 25. JÚNÍ 2016
ný
pr
en
t e
hf
/
0
42
01
6
„Hefur góða stöðu til að
takast á við ný verkefni“
Velta KS eykst um 5 milljarða milli ára
Aðalfundur Kaupfélags
Skagfirðinga var haldinn í
Selinu á Sauðárkróki þann
16. apríl síðastliðinn. Fram
kom að velta félagsins hafi
verið um 32,2 milljarðar
króna á síðasta ári og hefði
aukist um 5 milljarða milli
ára. Samkvæmt upplýsingum
frá KS komu Steinullarverk-
smiðjan á Sauðárkróki ásamt
Kjötbankanum í Hafnarfirði
og Sláturhúsinu á Hellu ný inn
í samstæðuuppgjör félagsins
að þessu sinni.
Hagnaður samstæðunnar var
rúmur 1,8 milljarður á móti 2,1
milljörðum árið 2014. Veltufé
frá rekstri samstæðunnar nam
3,3 milljörðum á móti 3,5
milljörðum árið á undan. Eigið
fé var 25,4 milljarðar um síðustu
áramót samanborið við 23,7
milljarða árið á undan.
Í inngangsorðum Þórólfs
Gíslasonar kaupfélagsstjóra, í
ársskýrslu kaupfélagsins, kemur
fram að stærstu verkefni og
fjárfestingarnar hjá samstæð-
unni hafi verið breytingar á
landvinnslu FISK-Seafood á
Sauðárkróki, fjárfestingar hjá
kjötafurðastöð og mjólkursam-
lagi ásamt kaupum á hlutafé í
Steinull hf. Hann segir að
markaði fyrir sjávarafurðir hafi
verið nokkuð góðir á árinu, ef
frá er talin sala á þurrkuðum
sjávarafurðum til Nigeríu.
Vegna verðfalls á hráolíu féll
kaupmáttur í Nigeríu og skortur
varð á gjaldeyri. Þá segir hann
markaði fyrir kjöt og kjötafurðir
erlendis vægast sagt hafa verið
mjög erfiða á árinu 2015. Í raun
hafi markaður fyrir gærur
Bjarni Maronsson, stjórnarformaður Kaupfélags Skagfirðinga, tók til máls á fundinum.
MYND: ÓS
Færum Feyki héraðsfréttablaði
á Norðurlandi vestra
bestu framtíðaróskir í tilefni 35 áranna
hrunið og óseldar birgðir
hrannast upp. Það sem öðru
fremur hafði áhrif var að Kína
tók upp strangt eftirlit með
innflutningi og Íslendingar
gerðust aðilar að viðskipta-
þvingunum gagnvart Rússlandi.
Hann segir vonir standa til að
fríverslunarsamningur milli
Kína og Íslands verði virkur
fyrir árslok.
Þórólfur ræðir jafnframt um
virkjunarmál í inngangsorðum
sínum þar sem hann segir með
öllu óviðunandi að fámennur
ráðgjafahópur umhverfisráðu-
neytis geti komið í veg fyrir að
komandi virkjun í Héraðsvötn-
um. „Ekki má útiloka Skag-
firðinga frá því að geta á
komandi árum eða áratugum
notað orku Héraðsvatna til
vistvænnar raforkuframleiðslu.
Það er með öllu óviðunandi að
fámennur ráðgjafahópur um-
hverfisráðuneytis geti komið í
veg fyrir að komandi kynslóðir
íbúa Skagafjarðar geti nýtt
auðlindir héraðsins með sam-
bærilegum hætti og gert er í
öðrum héruðum til atvinnu-
uppbyggingar og verðmæta-
sköpunar,“ segir hann.
Loks segir hann efnahag
samstæðunnar góðan og að
reksturinn hafi verið að skila
nokkuð góðum árangri síðustu
ár. „Kaupfélag Skagfirðinga
hefur því góða stöðu til að takast
á við ný verkefni, samhliða því
sem tækjakosti og búnaði er vel
við haldið. Lögð er sem áður
áhersla á mikilvægi þess að í
héraðinu sé stunduð öflug
framleiðsla, hvort sem horft er
til landbúnaðar eða sjávarútvegs.
Sérstaklega ber að undirstrika
mikilvægi þess að sjávarútvegi
sé af hálfu stjórn-valda skipaður
traustur rekstrar-grundvöllur er
byggi á því kvótakerfi sem sett
hefur íslenskan sjávarútveg í
fremstu röð á heimsvísu, hvað
hagkvæmni og sjálfbærni
varðar.“
Framleiðsla Mjólku/
Vogabæjar flytur til
Sauðárkróks
Tæplega 900 manns unnu hjá
Kaupfélagssamstæðunni á síð-
asta ári og námu launagreiðslur
félagsins um 7 milljörðum
króna. Fram kom á aðalfund-
inum að stærstu verkefnin
framundan hjá samstæðunni
væru kaup á nýjum ísfisktogara
sem er væntanlegur í upphafi
næsta árs og uppbygging
landvinnslu hjá Fisk Seafood
ásamt undirbúningi fyrir
mjólkurpróteinframleiðslu og
flutningi á framleiðslu Mjólku/
Vogabæjar til Sauðárkróks. /BÞ