Feykir - 20.04.2016, Qupperneq 11
15/2016 11
„Vakna tekur von í bæ
vetur greikkar sporið.
Kemur yfir sunnan sæ
sólar hlýja vorið.“
Þegar kemur fram í mars
apríl þá fyllist hugurinn þrá
eftir vori og sumri þegar
veður lætur blítt eins og
núna hefur gerst, þó maður
viti af fenginni reynslu að
vorið kemur sjaldan á einum
degi, oftast koma hret inn á
milli, en um að gera að njóta
góðu dagana. En hvað er það
sem gerir góðviðrisdaga á
vori svo dásamlega?
Í mínum huga er það þegar
maður heyrir fuglasönginn
hljóma, hittir vinkonur sínar
maríerlurnar sem gefa sér
stundum tíma í smá spjall
fyrstu dagana eftir að þær
koma, þar sem þær gerðu
sér hreiður síðasta vor. Síðan
tekur hreiðurgerð við hjá
þeim, sem þær klæða innst
með ull. Þá er sauðburðurinn
alltaf skemmtilegur þegar vel
gengur, hjálpa kind við burð
og koma lífi í lamb sem er
vanmáttugt. En mér finnst
að sauðburður hafi verið
skemmtilegri þegar maður fór
til kinda kvölds og morgna út
í hagann. Helsta vandamálið
var ef eitthvað bar út af, þá
þurfti annað hvort að ná
kindinni úti eða reka hana
heim í hús sem kom þó ekki
oft fyrir.
Eins gleður það augað þegar
fyrstu stráin fara að koma
upp, sóleyjarnar og fíflarnir.
Það er gaman að vera úti um
vornótt þegar fuglarnir þagna
um miðnættið allir sem einn
en byrja svo sinn söng aftur
þegar nokkur tími er liðinn.
Það er gaman að fara út í
hagann og setjast á þúfu og
horfa á köngulóna baslast
áfram á milli stráanna sem eru
fyrir þeim sem frumskógur og
þúfurnar sem hæstu fjöll og
horfa svo upp í endalausan
himininn og uppgötva
hvað maður er agnarsmár í
alheiminum, samt getur maður
verið að rífa kjaft og gera sig
breiðan.
Sumt þykir mér hafa farið aftur
úti í náttúrunni frá þeim tíma
sem ég var að alast upp. Lóu
og spóa hefur fækkað verulega
og rjúpunni, sem er allt að
því í útrýmingarhættu. Allt eru
þetta fallegir fuglar sem gera
engum mein og þarna er tófan
stór áhrifavaldur. Henni hefur
stórfjölgað nú síðustu ár og
hefur hún flutt sitt búsvæði
heim í heimalönd sem eru
aðalvarplönd þessara fugla.
Áður fyrr sáust tófur sjaldan
nema fram til heiða og upp
til fjalla, enda nær daglegur
umgangur um heimalönd og
þá var hundur gjarnan með
í för. Nú skjóta bændur tófur
út um fjárhúsdyrnar og greni
finnast við túnjaðarinn, enda
sjaldan farið um heimalönd.
Svo er þessi dæmalausa
ráðstöfun að friða tófuna á
Hornströndum sem flæðir svo
yfir allt vestanvert landið.
Ef ég mætti nokkru ráða þá
mundi ég fækka fólki við
tölvurnar hjá Umhverfisstofnun
og ráða góða veiðimenn
til þess að fækka tófu á
friðlandinu. Ég mundi banna
alla fuglaveiði í þjóðlendum.
Þá fengi rjúpan griðland
og ekki væri verið að keyra
vegaslóða sem þola ekki
umferð á viðkvæmum tímum.
Bændur gætu leyft skotveiði
í sínum heimalöndum ef þeir
vildu og haft nokkrar tekjur
af. Eins mættu bændur og
veiðimenn, með leyfi bænda,
skjóta álft og gæs á túnum og
ökrum eftir að varpfuglinn er
komin á sínar varpstöðvar en
þessum fuglum hefur fjölgað
mjög á síðustu árum.
Skil stundum ekki
stangveiðimenn sem sleppa
laxi sem þeir eru búnir að
landa og þykjast hafa gert
ánni mikið gott með þessu, þó
vitað sé að á vorin klekjast út
víðast hvar margfalt fleiri seiði
en áin getur fóðrað og hýst, en
svo eru þeir sömu að ganga
sig upp að hnjám við að eltast
við að drepa þessar fáu rjúpur
sem eftir eru.
Óska öllum sem þetta lesa
gleði og gæfu á komandi vori
og sumri.
- - - - -
Ragnar skorar á Ragnar
Braga Ægisson, Jörfa, að
rita næsta pistil.
Ragnar Gunnlaugsson á Hvammstanga skrifar
Vorið
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
SÆLUVIKUTILBOÐ
ACER ASPIRE ES1-521-634W
• AMD A6-6310 Quad Core 2.4GHz Turbo
• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni
• 1TB SATA3 Ultra Fast harðdiskur
• 15.6’’ HD LED AntiGlare 1366x768
• 2GB AMD R4 128GCN DX12 skjákjarni
• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum
VERÐ KR. 79.990
RAFVERKTAKAR, TÖLVUÞJÓNUSTA & GRÆJUBÚÐ
Tengill ehf. Hesteyri 2 www.tengillehf.is 455 9200
Frábær fartölva í
skólann og heima
frá Acer með 4ra
kjarna örgjörva, enn
nákvæmari precision
touchpad og glæsilegri
rifflaðri áferð á baki.
Nýjasta kynslóð fartölva
með 4ra kjarna Carrizo
örgjörva, öflugra
þráðlausu neti, enn
hraðari SSHD harðdisk og
TrueHarmony
hljóðkerfi.
Glæsileg,
öflug og létt
14“ fartölva.
Einstök hönnun sameinar
fartölvu og spjaldtölvu
með Windows 10
stýrikerfi.
Glæsileg þráðlaus
heyrnatól frá Sony
með innbyggðum
hljóðnema fyrir
símann.
Mögnuð hljómtæki
fyrir snjallsímann
og fleira.
Frábær
hljómgæði.
ACER ASPIRE E5-552-T055
• AMD A10-8700P Quad Core 3.2GHz Turbo
• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni
• 500GB SSHD og 8GB SSD Hybrid diskur
• 15.6’’ FHD LED Anti-Glare 1920x1080
• 8GB AMD R6 Carrizo DX12 skjákjarni
• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum
VERÐ KR. 119.990
HEYRNATÓL SONY BLUETOOTH MIC
• 30mm hátalarar tryggja hárfín hljómgæði
• Þráðlaus með Bluetooth
• NFC snertitenging
• Tíðnisvið 20-20.000Hz
VERÐ KR. 17.990
HLJÓMTÆKI SONY BLUETOOTH
NFC BLK SRSX55
• Frábær bassahljómur
• Clear Audio+
• 30W magnari
• NFC snertitenging og Bluetooth
VERÐ KR. 26.990
LENOVO IDP 500S
• Intel Core i5 6200U 2.3-2.8GHz dual core 3MB HT TB
• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni
• 256GB SSD 2.5“ 5mm
• 14“ Full HD LED TN 1920x1080
• Intel HD
• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum
VERÐ KR. 149.900
LENOVO IDP YOGA3 14
• Intel Core i3 5005u 2.0GHz dual core 3MB HT
• 4GB DDR3 1600MHz vinnsluminni (Stækkanlegt í 8GB, 1 rauf)
• 256GB SSD 2.5“ 5mm
• 14“ IPS LED Full HD 1920x1080 snertiskjár og Gorilla glass vörn
• Intel HD5500
• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum
VERÐ KR. 119.900