Feykir - 20.04.2016, Side 13
15/2016 13
Guðmundur Valtýsson á Eiríksstöðum í Svartárdal
sér um vísnaþátt Feykis
Á sjöunda hundrað
vísnaþættir á 29 árum
Það er sjaldgæft í seinni tíð að Feyki
berist handskrifuð bréf, en þó gerist
það hálfsmánaðarlega að
ritstjórnarskrifstofunni berast
nokkrar arkir með rithönd þess
manns sem lengst allra hefur verið
fastur penni við blaðið. Þar er á
ferðinni vísnaþáttur Guðmundar
Valtýssonar á Eiríksstöðum í
Svartárdal, sem hóf göngu sína í
blaðinu 1. apríl 1987. Sé miðað við að
þátturinn hafi hverju sinni verið hálf
síða, líkt og hann er í dag, má lauslega
áætla að Guðmundur hafi til þessa
lagt blaðinu til hátt í 1400 síður í 662
vísnaþáttum.
„Þetta kom þannig til að mér var boðið á
árshátíð hestamannafélagsins Stíganda í
mars 1987. Þar hitti ég Ara Jóhann, sem
þá var nýlega tekinn við ritstjórn
blaðsins. Ég fór að tala um þetta við
hann og kvarta yfir því að mér fyndist
mjög slappt að geta ekki haldið úti
vísnaþætti í blaðinu,“ rifjar Guðmundur
upp. Fram að því höfðu þó öðru hvoru
birst vísur í blaðinu sem hagyrðingar og
vísnaunnendur sendu inn. Skemmst er
frá að segja að Ari fól Guðmundi að sýna
fram á að slíkt væri gerlegt og birtist
fyrsti vísnaþátturinn í hans umsjá í
blaðinu 1. apríl 1987.
Guðmundur segist hafa safnað vísum
og kveðskap frá barnsaldri. „Ég var
farinn að tína þetta saman þegar ég var
krakki. Það var til dæmis gömul kona
hérna á næsta bæ, en ég fór stundum
þangað til að hjálpa þar til, sem hafði
orðið vör við þetta hjá mér. Hún fór að
klippa út og safna saman ef hún sá blöð
eða náði í einhverjar vísur og láta mig
hafa það,“ segir hann. „Síðan byrjaði ég á
því sjálfur, smá saman, að safna svona
löguðu að mér.“
Í safni Guðmundar er ógrynni af
vísum og segir hann að það sé þó nokkur
vinna að halda utan um það allt saman.
„Maður er alltaf að safna þessu saman,
sumu kemur maður inn í möppur og
annað er í umslögum eða í bunkum og
stöflum einhvers staðar innan um blöð
og bækur. Svo er maður að róta í þessu
alltaf annað slagið, þegar tími gefst til, og
fá meira í safnið.“ Í seinni tíð segist
Guðmundur reyna að merkja við og
halda til haga hvað búið sér að birta í
Feyki, enda erfiðara að muna það eftir
því sem þáttunum fjölgar. Vísurnar
reynir hann að velja á þann hátt að þær
tengist árstíðum hverju sinni, þó það sé
ekki algilt.
Fjölmargir hafa samband
vegna vísnaþáttarins
Vegna vísnaþáttarins er Guðmundur í
sambandi við fjölda fólks víðs vegar um
landið, sem gjarnan leggur honum til
efni í þáttinn eða biður um áskrift að
blaðinu. Segir hann að þar sé aðallega
um að ræða eldra fólk og efnið sem berst
sé bæði gamalt og nýtt. „Um daginn fékk
ég lifandis ósköp frá konu austur í
Biskupstungum sem sendi mér bréf og
helling af vísum, bæði eftir hana sjálfa og
aðra,“ nefnir hann sem dæmi. Gjarnan
er spurt um höfunda eða auglýst eftir
vísum eftir ákveðna höfunda í
vísnaþættinum og fær Guðmundur
töluverð viðbrögð frá lesendum. Alltaf
kemur fyrir öðru hvoru að vísur séu
„rangt feðraðar,“ enda ber mönnum
ekki alltaf saman um faðernið, og hann
segist kunna vel að meta að fólk leiðrétti
það sem missagt kann að vera í
þættinum.
Sjálfur segir Guðmundur erfitt að
velja einhvern ákveðinn hagyrðing eða
ákveðinn kveðskap sem er í uppáhaldi.
Hann nefnir þó Villu-Gústa og Gísla
Stefánsson, sem dæmi um þá sem hann
hafi hrifist af í gegnum tíðina. Einnig
segist hann hafa hvað mestar mætur á
hringhendum, enda sé afar vandasamt
að setja þær saman.
Þegar blaðamaður innir Guðmund
eftir því hvort hann yrki ekki sjálfur
segir hann að sér finnist ekki við hæfi að
nota vísnaþáttinn sem vettvang til að
birta kveðskap eftir sjálfan sig, þó hann
geri fáeinar undantekningar á því.
Blaðamaður fær þó góðfúslegt leyfi til að
birta tvær vísur, ortar til vinkonu í
Reykjavík, sem á þeim tíma var þula í
sjónvarpinu:
Ylur hýr um æðar líður
allir þrá að sofna rótt
þegar konan besta býður
börnum jarðar góða nótt.
Lífið ætti létt að falla
lánið bætti þennan stað
ef ég mætti höfði halla
hjartaslætti þínum að.
Þeir eru orðnir allmargir starfsmenn
Feykis sem Guðmundur hefur átt
samstarf við gegnum aðkomu sína að
blaðinu. „Ég er ákaflega glaður yfir því
hvað það hefur gengið allt saman vel.
Það er best að vera ekkert að leiða getum
að því hvað þessi þáttur endist lengi, en
maður er farinn að gæla við komast í 30
ár með þetta, í apríl á næsta ári. Þessi
vísnaáhugi fylgir manni og yfirgefur
mann líklega ekki fyrr en á hinstu
stundu,“ segir hann að lokum.
Guðmundur gluggar í gamlan Feyki í
afmælissamkundu í Jarlsstofu sl. föstudag.
MYND: KSE
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir