Feykir


Feykir - 20.04.2016, Síða 16

Feykir - 20.04.2016, Síða 16
16 15/2016 Margt þurfti að koma til svo Feykir gæti orðið að veruleika Þann 10. apríl voru liðin 35 ár síðan fyrsta tölublað Feykis leit dagsins ljós. Af því tilefni ákváðu núverandi starfsmenn að stefna saman stofnendum blaðsins og efna til endurfunda þar sem hægt væri að rifja upp skemmtilegar stundir frá upphafsárunum. Af þeim 27 einstaklingum sem sátu stofnfund blaðsins eru nokkrir látnir og aðrir fluttir brott úr héraði. Engu síður tókst að koma á endurfundum með sex þessara aðila, og áttum við Feykiskonur skemmtilegt kaffispjall með þeim á Hótel Tindastóli á föstudaginn var. Stofnendum Feykis stefnt saman var rifjað upp. Hér verður aðeins stiklað á stóru í því sem bara á góma, til að gefa lesendum smá innsýn í þessa skemmtilegu stund. Jón rifjar það upp að við fyrstu skólasetningu Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra 22. september 1979 hafi Ólafur Jóhannesson fyrrverandi for- sætisráðherra, Ragnar Arnalds og fleiri verið viðstaddir. „Baldur Hafstað, þáverandi kennari við skólann, stillti þessu þannig upp að menntamála- ráðherra og þingmenn flyttu ræður sínar á undan skóla- meistara, sem hélt að venju langa ræðu. Þegar skólaslitin voru búin var hann búinn að gefa út hraðfréttablað sem sagði frá atburðunum,“ segir Jón. Hann útskýrir jafnframt að meðan skólinn var minni hafi oft þurft að ráða kennara í hlutastarf og þá hafi þurft að Það voru þau Birna Guðjóns- dóttir, Björn Björnsson, Hilmir Jóhannesson, Hörður Ingi- marsson, Jón F. Hjartarson og Jón Ormar Ormsson sem áttu heimangengt til þessara endurfunda. Greinilegt var að þeir voru kærkomnir og margt SAMANTEKT Kristín Sigurrós Einarsdóttir MYNDIR Berglind og Kristín finna fyrir þá annað hlutastarf á móti. Það hafi meðal annars verið kveikjan að stofnun Feykis, enda var fyrsti ritstjór- inn, Baldur Hafstað, íslensku- kennari við skólann og svo var raunar um fleiri ritstjóra. Á þessum tíma höfðu hér- aðsfréttablöð sprottið upp víðsvegar um landið. Einnig höfðu ýmsir reynt að halda úti einhvers konar blaðaútgáfu á Króknum, svo sem Hreinn Sig- urðsson með blaðinu Vettvangi. „Ég held að menn hafi nú áttað sig á því, þó að Vettvangur kæmi nú ekki út lengi, að það væri eftirsóknarvert að hafa einhvers konar blað,“ segir Björn. Þannig voru það raunar nokkrar skyldar hugmyndir sem kviknuðu á mismunandi stöðum sem urðu til þess að ráðist var í útgáfu á óháðu héraðsfréttablaði. Áhugasamir og þróttmiklir menn komu svo hugmyndinni á koppinn, ekki síst vegna þess að samfélagið þurfti frjálsan samskiptagrund- völl um málefni sem voru í gerjun á þessum tíma. Má þar t.d. nefna stofnun Fjölbrauta- skólans fáeinum misserum áður, upphaf Steinullarverk- smiðjunnar og Blönduvirkjun, sem allt voru fyrirferðarmikil Jón Ormar, Hilmir, Hörður og Jón rifja upp skemmtilegar minningar frá árdögum Feykis. Gestir í afmælisveislu Feykis í Jarlsstofu á Hótel Tindastóli. Sigríður Svavarsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi í Skagafirði sker afmæliskökuna. Jón F. Hjartarson flutti skemmtilegt ávarp um aðdragandann að stofnun Feykis og fyrstu ár blaðsins. málefni í blaðinu á fyrstu árum þess. Baldur á hlaupum með Feykisblöð og barnavagn Auðheyrt er á spjalli stofnfélag- anna að margir voru frá upphafi afar velviljaðir Feyki. Fyrstu blöðunum var ekið til Akur- eyrar, í umbrot og prentun en síðar tóku vöruflutningar Magnúsar Svavarssonar að flytja blaðið og var það þá prentað meðan flutningabíl- stjórinn lauk erindum á Akur- eyri. Í framhaldi af þessu rifjast upp að Baldur hafi oft farið í hús með blöðin til áskrifenda, með dóttur sína í barnavagni með- ferðis. „Maður hafði nú ekki, á þessum tíma, séð karlmann með barnavagn. Hann gekk heldur aldrei, hann hljóp,“ rifjar Birna upp og auðheyrt er á þeim öllum að Baldur var mikill hvalreki fyrir blaðið. Hörður nefnir einnig að aðkoma Stef- áns Árnasonar og Þórhalls Ásmundssonar að blaðinu hafi verið ómetanleg. Svo mætti eflaust lengi telja upp ein- staklinga sem hafa átt stóran þátt í útgáfusögu blaðsins. Hilmir grípur orðið og bend- ir núverandi Feykiskonum góðfúslega á að langt sé síðan konur komu að blaðinu. „Einu sinni var hjá okkur ritstjóri sem hét Jón Gauti. Þá voru nú ritstjórnarlaunin borguð bæði seint og illa svo hann fór bara á togara á milli blaða. Ef hann gat ekki skroppið í land til að gefa út Feyki sá konan bara um það og blöðin voru ekkert verri hjá henni.“ Þá segir Jón frá því að Katrín Gunnarsdóttir, fyrrum ritari í fjölbrautaskólanum, hafi átt hugmyndina að nafni blaðsins. Orðrómur um áfengis- útsölu á Hofsósi „Eitt sprell gerðum við, en þá var skólaslitafagnaður í Bifröst og ég sat með Ófeigi Gestssyni sem þá var sveitarstjóri á Hofs- ósi. Við erum að ræða verslun og viðskipti í héraðinu og þar með áfengisverslun. Þá spurði ég sveitarstjórann hvort ég mætti ekki hafa það eftir honum í Feyki að við hefðum verið að ræða opnun áfengisútsölu á Hofsósi? „Jú, jú, alveg sjálfsagt, við skulum þá bara ræða um það,“ sagði hann. Síðan kom frétt í Feyki: „Umræður í gangi um opnun áfengisútsölu á Hofsósi,“ rifjar Jón upp. Áfengisútsalan endaði þó á Sauðárkróki sem kunnugt er og

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.