Feykir


Feykir - 20.04.2016, Blaðsíða 17

Feykir - 20.04.2016, Blaðsíða 17
15/2016 17 væri malbik notað á vegi. Þegar við vorum komnir hérna fram- hjá Vík – ég var nú svo óhepp- inn að sitja fram í – þá varð mér litið á hraðamælirinn og hann stóð í 160! Þegar ég náði andanum fór ég að hafa orð á þessu. Þá lýsti bílstjórinn því yfir hástöfum að við töluðum svo mikið að hann kæmist ekki að. Þess vegna keyrði hann svona hratt, til að þagga niður í okkur hinum.“ Og Jón bætir við: „Eina sögu á Hilmir, sem hefur birst í bókum. Það var um þann greinarmun sem mætti gera á aksturslagi Jóns Hjartarsonar, Þórðar Þórðarsonar bæjarstjóra og Hjálmars Jónssonar sóknar- prests. Þær væru allir að flýta sér og væri það algjör tilviljun að Þórður Þórðarson héldist á veginum. Það væri hins vegar ekki tilviljun með okkur Hjálmar, því það væri hönd sem kæmi úr neðra og héldi Hjálmari við veginn en það væri drottins hönd sem héldi mér á veginum. En svo kom þessi saga út í mismunandi útgáfum. Í ævisögu séra Hjálmars, þá var allt í einu búið að skipta um hendur milli mín og hans.“ Og áfram heldur Hilmir að segja frá ferðinni góðu í Húna- gantast Jón með að það hafi verið talinn kostur að ef menn úr Lýtingsstaðahreppi ættu erindi til að kaupa sér bomsur á Króknum gætu þeir komið við í ríkinu í leiðinni. Viðstaddir ritstjórnarmenn rifja upp að starf þeirra hafi verið grasrótarstarf í orðsins fyllstu merkingu. Þeir funduðu til að mynda einu sinni á lóð- inni hjá Hilmi, að Víðigrund 3, og lágu á grasinu ræddu málin. Þá var það föst hefð hjá rit- stjórninni að funda í hádeginu daginn sem blaðið kom út og leggja drög að næsta blaði. Eitt sinn segist Hilmir sjálfur hafa orðið ósáttur vegna greinar sem komst inn í blaðið á síðustu stundu, frá andstæðingum í bæjarpólitíkinni. Hann óskaði þá eftir að fá birta grein í næsta blaði en þá reyndist ekki pláss í blaðinu. „Þá fauk í mig svo ég bjó til vísu og keypti auglýsingu í Sjónhorninu. Hún var svona: Feykir hann má næðis njóta nú er stefnu búið að móta bæjarslúðrið leiða og ljóta lætur sem vind um eyru þjóta.“ Ekið á „Guðs vegum“ Hilmir rifjar upp ferð í Húna- vatnssýslurnar í árdaga Feykis. „Þá keyrði Jón [Hjartarson] en hann átti nýjan Volvo. Ég man að Jón Ásbergsson var með og Baldur, og sennilega Árni Ragnarsson. Þetta var á þeim árum sem enginn hafði heyrt talað um bílbelti og hafði nú engin maður frétt af því að það Sex af tuttugu og sjö stofnfélögum mættu í 35 ára afmæli Feykis. Frá vinstri: Björn Björnsson, Birna Guðjónsdóttir, Hilmir Jóhannesson, Jón Hjartarson, Jón Ormar Ormsson og Hörður Ingimarsson. Gísli Sigurðsson, Ólafur Sigmarsson og Þuríður Harpa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Nýprents. Hilmir, Jón, Birna og Björn rifja upp skemmtilegar sögur frá þeim rúmlega sextán árum sem Þórhallur Ásmundsson (lengst til hægri) ritstýrði Feyki. Ingibergur Guðmundsson, starfsmaður SSNV, og Guðmundur Valtýsson, umsjónarmaður Vísnaþáttar, fletta gömlum Feykisblöðum. Stofnfélagar að Feyki skrafa og skeggræða. Hörður, Jón, Birna og Björn. vatnssýslu: „Þegar við ætluðum að koma okkur heim í fjörðinn Skaga kom séra Hjálmar úr Reykjavík, þá hafði hann verið að breiða Guðs orð þar út, og veitti nú ekki af. Bað hann mig að vera með sér á heimleiðinni, því honum leiddist að vera einn. Ég hélt nú að hann gæti spjallað við almættið en hann var nú búinn að tala mikið við það og orðinn leiður á því líka. Ég var nú til með að fórna mér fyrir Guðs kristni í landinu. Svo keyrði hann heim og þó að Jón keyrði á 160 þá var það eins og gömul hestakerra hjá þeim ósköpum að vera með sóknar- prestinum, það var alveg rosalegt,“ segir Hilmir hlæj- andi. Fjórir prestar á bæn uppi á Vatnsskarði Og enn rifjast upp ferðir af svaðilförum, að þessu sinni á fund með Ingvari Gíslasyni þáverandi menntamálaráð- herra. „Lagt var af stað að næturlagi þar sem fundurinn átti að hefjast klukkan átta að morgni. Það var kafaldsbylur og skyggni mjög lélegt. Við komumst áleiðis upp Vatns- skarðið en endum á því að Þórður [Þórðarson bæjar- stjóri], sem var á amerískri drossíu, keyrði út af. Við náðum að ýta bílnum upp og síðan var reynt að koma honum áleiðis. Þegar hann er kominn á skrið stekk ég upp í, með þeim orðum að einhvers- staðar verði kjalfestan að vera,“ segir Jón og heldur áfram: „Séra Hjálmar sér að bíllinn er að ná sér á skrið og stekkur upp í hann líka en söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, sem var með í för, verður eftir. Þegar hann kemst loks inn í bílinn kemur Lada Sport jeppi að, með fjórum konum sem lýsa upp bílinn, sjá fjóra svartklædda menn og spyrja: „Er ekki allt í lagi með ykkur?“ Við héldum áfram en ákváðum síðan að leggja drossíunni því við kæmumst ekkert áfram á henni. Þegar við komum á Blönduós var búið að skila Lödu Sport jeppanum þangað og höfðu konurnar sem á honum voru sagt að það væru fjórir prestar á bæn uppi á Vatnsskarði!“ Spjallið berst síðan um víðan völl og síðar bætast fleiri í samkvæmið, eins og með- fylgjandi myndir bera með sér. Feykir þakkar þeim sem komu fyrir ánægjulega stund og hlý orð í garð blaðsins.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.