Feykir


Feykir - 20.04.2016, Page 19

Feykir - 20.04.2016, Page 19
15/2016 19 Árni Gunnarsson var ritstjóri Feykis frá 2004 til 2006. Þegar hann var beðinn um að taka við ritstjórnartaumum blaðsins hafði útgáfa blaðsins stöðvast um tíma og segir hann ekki hafa mátt miklu muna að útgáfan legðist af. Bestu minningarnar segir hann án efa samstarfsfólkið og þá fjölmörgu sem lögðu blaðinu lið. -Ég hafði unnið við blaða- og fréttamennsku í tíu ár, bæði á Akureyri og í Reykjavík áður en ég flutti aftur í Skagafjörðinn árið 2000. Ég var formaður blaðstjórnar Feykis árið 2004 þegar þáverandi ritstjóri, Þór- hallur Ásmundsson, færði sig um set til Siglufjarðar og tók við nýju starfi þar. Útgáfa blaðsins stöðvaðist í einhvern tíma og ég var beðinn um að ritstýra blaðinu og skrifa það í nokkrar vikur. Á þessum tíma var ég fram- kvæmdastjóri Leiðbeininga- miðstöðvarinnar og verk- efnisstjóri Upplýsingatækni í dreifbýli og vann yfirleitt við blaðið seinnipart dags og fram eftir kvöldi. Fyrirtækið Hinir sömu, sem er í eigu snill- inganna Óla Arnars Brynjars- VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir sonar og Péturs Inga Björns- sonar, sá um umbrot og uppsetningu Feykis. Frá þeim kom líka mikið af ljósmyndum í blaðið. Við Óli unnum oft fram á nótt við að ganga frá blaðinu fyrir útgáfudag og ég dáðist oft að þolinmæði og jafnaðargeði Óla. „Tilkomumikil sjón“ Við keyrðum blaðið út á PDF formi og síðan fór ég með myndskrána í prentsmiðjuna Hvítt og svart, sem prentaði Feyki, en þar var gerð endanleg myndskrá fyrir prentið. Ég lagði mikið upp úr fyrirsögnum og yfirfyrirsögnum og var stundum að breyta þeim á síðustu stundu, stundum með Þuríði Sigurðardóttur í prent- smiðjunni. Eitt sinn gerði ég breytingar á yfirfyrirsögn á frétt með mynd frá Jóni Sigurðarsyni, ljósmyndara á Blönduósi, af borgarísjaka á Húnaflóa. Yfirfyrirsögnin var „Tilkomumikil sjón“. Ekki vildi betur til en að þessi yfir- fyrirsögn festist inni og kom yfir óskyldar fréttir á sama stað í blaðinu næstu þrjár vikurnar. Meðal annars yfir frétt um það þegar Ingibjörg í Vík var kjörin formaður Búnaðarsambands- ins, fyrst kvenna í Skagafirði. Það glottu ýmsir þegar því var lýst sem „Tilkomumikilli sjón“. Ég hætti með Feyki í lok árs 2006. Það eru margar skemmti- legar minningar frá þessum árum. Mörg góð viðtöl eins og t.d. dæmis við Einar Odd Kristjánsson, sem var kallaður „bjargvætturinn frá Flateyri“ eftir þjóðarsáttarsamningana á sínum tíma. Einnig fékk ég að taka viðtal við Baltasar og Lilju heima hjá þeim á Hofi á Höfðaströnd fyrir jólablað Feykis. Ég held að Feykir hafi verið eina glansmagasínið sem fékk að taka svona drottn- ingarviðtal við þau heima á Hofi. Bestu minningarnar eru þegar upp er staðið án efa samvinnan með Óla, Þuríði, Guðna og því fjölmarga fólki sem lagði blaðinu lið. Það mátti ekki miklu muna að útgáfan legðist af á þessum tíma. Sem betur fer varð það ekki og ég óska aðstandendum Feykis til hamingju með árin 35. Nú rekur Árni Gunnarsson Skottu kvikmyndafjelag og hefur verið ötull við gerð heimildamynda. Hér er hann í Beirút við gerð myndar um komu flóttafólks til Íslands. MYND: ÚR EINKASAFNI „Mátti ekki miklu muna að útgáfan legðist af“ Fyrrum ritstjórar rifja upp Feykisárin Árni Gunnarsson ritstjóri 2004-2006 Yfirfyrirsögnin sem gekk aftur. Það var ekki laust við að ritstjóri og uppsetjari klóruðu sér í höfðinu þegar yfirfyrirsögnin birtist í annað sinn en ritstjóri fór fyrst að hafa áhyggjur af málinu í þriðja skiptið sem hún birtist – enda kannski pínu óheppileg í það skiptið. Loks kom þó í ljós hvar hnífurinn stóð í kúnni en allt kom fyrir ekki. Hún birtist aftur! Byggðasaga Skagafjarðar Fellshreppur og Haganes- hreppur kemur út 2017 Á síðasta ári voru liðin 20 ár síðan hafist var handa við undirbúning að ritun Byggðasögu Skagafjarðar. Lokið er umfjöllun um tíu hreppa í sjö bindum og vinna við 8. bindið er langt á veg komin. Áætlanir gerðu ráð fyrir að það bindi (Fellshreppur og Haganes- hreppur) kæmi út haustið 2016 en ákveðið hefur verið að fresta útgáfu þess til hausts 2017. Umfang Byggðasögunnar er mikið og þegar hefur verið fjallað um 556 býli, á 3204 blaðsíðum og ljósmyndirnar orðnar á fimmta þúsund. Níunda bindi Byggðasögunnar mun fjalla um Holtshrepp, sem er þrettándi hreppurinn í ritröðinni, sem hófst árið 1999 með útgáfu 1. bindis um Skefilsstaða- og Skarðshreppa. Samhliða ritun verksins hefur verið unnið að gerð nafnaskrár fyrir þau sjö bindi sem út eru komin. Þar koma fyrir 21.400 mannanöfn. Nafnaskrár verða í lokabindi, sem og sérnafnaskrá en vinna við gerð hennar hefst á þessu ári. Í lokabindinu verður sögð saga verslunarstaðanna Hofs- óss og Grafaróss, og jarða í Hofsósshreppi. Drangey og Málmey fá einnig umfjöllun í því bindi. Byggðasagan þykir einstak- lega vandað og fjölbreytt fræði- og uppflettirit um byggð í Skagafirði að fornu og nýju. Ritstjóri Byggðasögunnar er Hjalti Pálsson frá Hofi og hefur hann unnið að ritun verksins frá upphafi. Aðstoðar- ritstjóri er Kári Gunnarsson frá Flata-tungu. Byggðasagan er vinsæl til tækifærisgjafa, ýmist einstök bindi eða verkið í heild. /Tilk. Frá Bakka á Bökkum í Haganeshreppi, þar sem hinir skagfirsku Bakkabræður bjuggu. MYND: BYGGÐASAGA SKAGAFJARÐAR

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.