Feykir


Feykir - 20.04.2016, Side 21

Feykir - 20.04.2016, Side 21
15/2016 21 N Ý P R E N T MJÓLKURSAMLAG Vönduð vinnubrögð skila okkur í fremstu röð! Fáðu þér Sveitabita á brauðsneiðina og Mozzarella í salatið Sveitabiti & Mozzarella Tveir góðir frá KS Hallrún Ásgrímsdóttir með myndlistarsýningu í Sæluviku „Náttúran, hrossin, fólkið í samfélaginu og sveitalífið heillar mig“ Listasafn Skagfirðinga, í samvinnu við Safna- húsið, stendur fyrir myndlistarsýningu Hallrúnar Ásgríms- dóttur í Sæluviku. Hallrún, sem er frá Tumabrekku í Óslands- hlíð, er nemi við Myndlistarskólann á Akureyri. Hún segist hafa alla tíð hafa verið að teikna en myndlistar- námið hóf hún fyrir fáeinum árum og er nú að ljúka öðru ári af þremur í námi við fagurlistadeild. „Ég hef teiknað frá því að ég man eftir mér. Ég hafði samt ekkert lært fyrr en ég byrjaði í Myndlistarskól- ann á Akureyri fyrir þremur árum,“ segir Hall- rún. Hún byrjaði í svo- kölluðu fornámi við skólann og er núna á öðru ári í fagurlist, sem er önnur af tveimur sérbrautum skólans. „Ég hef aðallega verið að mála olíumálverk í vetur og vil stefna á að halda áfram í því,“ segir Hallrún, aðspurð um hvers konar myndlist hún fæst við. „Það má segja að ég sé frekar þjóðleg í myndavali. Það er náttúran, hrossin, fólkið í samfélaginu í kringum mig og sveitalífið sem að heillar mig,“ bætir hún við. Hallrún segist hafa verið mikið í kringum hesta og áður en hún hóf myndlistarnámið hafði hún lokið námi í tamn- ingum við Háskólann á Hólum. Einnig hafði hún lokið sveinsprófi í húsa- smíði frá VMA og námi í búfræði á Hólum. „Ég hef valið mér að gera bara það sem mér finnst skemmti- legt að gera og svo vonast ég til að geta bara fléttað þessu saman á einhvern hátt,“ segir hún. Hallrún með folald í Danmörku. Myndin er tekin þegar hún starfaði þar við tamningar síðasta sumar. MYND: ÚR EINKASAFNI Hallrún tók þátt í sam- sýningu nemenda í fagur- list við Myndlistaskólann á Akureyri í Mjólkurbúðinni í Gilinu á Akureyri, sem haldin var í vetur. Sýningin í Sæluviku Skagfirðinga er hennar fyrsta einkasýning. Þegar Feykir hafði sam- band við hana var hún ekki búin að leggja loka- hönd á að velja myndir á sýninguna en sagðist reikna með að þær yrðu nokkuð margar. Sýningin verður í Safnahúsi Skag- firðinga og verður opin alla daga Sæluvikunnar, frá klukkan 11-18. Hallrún hefur gert töluvert af því að mála og teikna eftir pöntunum, til að mynda skopmyndir og segist ennþá gera töluvert á því, auk þess að mála eftir pöntunum. Hún er með fésbókarsíðuna Hallrún, þar sem hægt er að skoða myndir af verkum hennar og setja sig í samband við hana. Lokaverk úr áfanga í Málun, sem sýnt var á sýningunni Guð minn góður! í Mjólkurbúðinni á Akureyri í vetur. „Viðfangsefnið var að mála okkur sjálf eftir spegli og setja okkur í hlutverk trúarpersónu eða guðs. Ég málaði rómversku gyðjuna Eponu (guð hestanna) með Sleipni og Gera, hesti og úlfi Óðins, með sér,“ segir Hallrún um þessa mynd. MYND: ÚR EINKASAFNI VIÐTAL Kristín S. Einarsdóttir

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.