Feykir - 20.04.2016, Page 22
22 15/2016
Magna og Siggu Beinteins hlakka til að koma
fram á stórsýningunni „Árið er…“ í Sæluviku
Skemmtileg og mjög
grand hugmynd
Fullkomið brúðkaup á fjalirnar í Sæluviku
„Þessi týpíski farsi
– hraði og misskilningur“
Sæluvikustykki Leikfélags
Sauðárkróks þetta árið er
Fullkomið brúðkaup eftir
Robin Hawdon, þýtt af Erni
Árnasyni. Um er að ræða
dæmigerðan farsa sem
inniheldur hraða, spennu,
misskilning og allt sem góður
farsi þarf að hafa til að bera.
Sex leikarar taka þátt í
uppfærslunni, undir
leikstjórn Guðbrands Ægis
Ásbjörnssonar, og verða
þrettán sýningar, allt frá
upphafi Sæluviku til
hvítasunnudags.
„Þetta er náttúrulega bara þessi
týpíski farsi, hraði og smá
misskilningur, en allt mjög
skemmtilegt,” sagði Sigurlaug
Dóra Ingimundardóttir, for-
maður Leikfélags Sauðárkróks,
þegar blaðamaður Feykis spurði
hana út í umfjöllunarefni
leikritsins. „Það er haldið
steggjapartí rétt fyrir brúðkaup,
sem fer kannski ekki alveg eins
og áætlað var,“ sagði hún, en
vildi lítið tjá sig um innihaldið
að öðru leyti, enda erfitt að gera
það án þess að eyðileggja
spennuna fyrir áhorfendum.
Fullkomið brúðkaup var sýnt
við miklar vinsældir á Akureyri
árið 2005. Sigurlaug Dóra segir
að margir Skagfirðingar og
nærsveitamenn hafi lagt leið
sína þangað á sínum tíma og nú
sé kjörið að koma aftur í leikhús
og endurnýja kynnin af þessu
skemmtilega leikriti, í aðeins
öðrum búningi, enda séu engar
tvær uppfærslur eins.
Leikstjóri er Guðbrandur
Ægir Ásbjörnsson, sem leikstýrt
hefur fjölmörgum sýningum
hjá Leikfélagi Sauðárkróki,
Leikfélagi FNV, Árskóla og
víðar. Sex leikarar taka þátt í
uppfærslunni. Aldrei þessu
vant komust færri að en vildu í
leikarahópinn. „En starf í
áhugaleikhúsi er mun fjöl-
breyttara en bara að leika, það
eru líka mörg skemmtileg
verkefni á bak við tjöldin, enda
þarf alltaf svipaðan fjölda
baksviðs,“ segir Sigurlaug
Dóra. Leikararnir eru blandað-
ur hópur mismikilla reynslu-
bolta, sumir eru að koma aftur
eftir hlé og aðrir hafi sjaldnar
tekið þátt.
Eins og hefð er fyrir verður
frumsýning í byrjun Sæluviku,
eða sunnudaginn 24. apríl.
Auglýstar verða þrettán sýn-
ingar og verður sú síðasta um
hvítasunnuhelgina. Það er því
upplagt fyrir þá sem leggja leið
sína í Skagafjörð, hvort sem er í
Sæluviku eða um hvítasunn-
una, að bregða sér í leikhús. „Í
öllum þessum látum sem eru
búin að vera í þjóðfélaginu
undanfarnar vikur held ég að
sé mjög gott að koma í leikhús
og hlæja mikið og gleyma sér
eina kvöldstund,“ sagði Sigur-
laug Dóra að lokum.
UMFJÖLLUN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Sýningartímar:
Frumsýning sunnudaginn 24. apríl kl. 20
2. sýning þriðjudaginn 26. apríl kl. 20
3. sýning miðvikudaginn 27. apríl kl. 20
4. sýning laugardaginn 30. apríl kl. 15
5. sýning sunnudaginn 1. maí kl. 20
6. sýning þriðjudaginn 3. maí kl. 20
7. sýning miðvikudaginn 4. maí kl. 20
8. sýning föstudaginn 6. maí kl. 20
9. sýning laugardaginn 7. maí kl 15
10. sýning sunnudaginn 8. maí kl. 20
11. sýning miðvikudaginn 11. maí kl. 20
12. sýning laugardaginn 14. maí kl. 15
Lokasýning sunnudaginn
15. maí kl. 20
Undirbúningur fyrir Sæluvikuhátíðina Árið er… lögin sem lifa
gengur vonum framar, að sögn Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur
framkvæmdastjóra sýningarinnar. Um er að ræða glæsilega sam-
suðu af videoklippum, tónleikum og balli sem verður haldið í
Íþróttahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 29. apríl næstkomandi.
Á hátíðinni verður íslensk dægurlagasaga flutt í tali og tónum af
landsþekktum söngvurum í bland við upprennandi stjörnur; Siggu Bein-
teins, Magna Ásgeirs, Sigríði Thorlacius, Sigvalda Helga, Ellert Jóhanns,
Sigurlaugu Vordísi, Róbert Óttars, Bergrúnu Sólu og Malen Áskelsdætur.
Feykir tók púlsinn á Magna og Siggu Beinteins.
„Hugmyndin á bakvið þetta er skemmtileg og mjög „grand“ og þættirnir
sem þetta er byggt á eru auðvitað með því betra sem hefur verið gert í
íslensku útvarpi. Ég held að þetta verði mjög skemmtileg kvöldstund,“
sagði Magni, í samtali við Feyki, um væntingar sínar til kvöldsins. Þegar
hann var spurður hvort hann hefði komið áður fram í Skagafirði játaði hann
því. „Ég hef ekki alveg tölu á því hversu oft ég hef stigið á stokk þarna -
sennilega komið á fimmta tuginn með hinum ýmsu hljómsveitum og
atriðum. Það skemmta sér fáir jafn vel og „skál og syngja“ Skagfirðingar!
Þarna á ég marga vini og vandamenn þannig að ég hlakka alltaf til að
koma þangað,“ sagði Magni og bætir við að lokum: „Sjáumst með
sparibrosið.“
Við í Stjórninni elskuðum að spila í Miðgarði
„Ég hlakka mjög mikið til að koma og syngja í Sæluvikunni, og vona bara
að sem flestir mæti því þetta verður eitthvað sem fólk mun muna eftir. Mér
finnst mjög flott pæling að búa til „show“ úr þessum þáttum sem hafa
verið svo vinsælir,“ sagði Sigga þegar Feykir hafði samband við hana. Líkt
og Magni hefur Sigga stigið margsinnis á svið í Skagafirði. „Þetta er sko
ekki í fyrsta sinn og vonandi ekki það síðasta. Stjórnin spilaði mikið í
Skagafirðinum, bæði á Króknum og svo var Miðgarður eitt stærsta vígi
sveitaballanna. Þar spiluðum við í Stjórninni oft og elskuðum að koma í
Miðgarð og spila, svo hef ég líka komið fram áður að syngja í Sæluvikunni.
Þá var ég að syngja með hljómsveitinni Von og Sigga Dodda snillingi. Ég
verð nú bara að segja það, Skagfirðingar kunna að skemmta sér og það er
aldrei leiðinlegt að skemmta þeim, og maður hlakkar alltaf til. Þeir eru
manna hressastir,“ segir hún. Þegar Sigga er spurð út í lagaval „Árið er…“
segist hún ekki geta upplýst mikið um það því hún viti ekki mikið um það
sjálf. „Það er búið að segja mér að sviðið verði mjög flott og lagavalið
verður æðislegt, ég mun til dæmis syngja íslensk lög sem að ég hef aldrei
sungið áður, svo það verður gaman að prófa það.“
Samkomulag hefur náðst við Rás 2 sem ætlar að koma og taka upp
tónleikana, sem síðan verða fluttir í útvarpi allra landsmanna. Aðspurð
segir Sigurlaug miðasölu hafa farið vel af stað, en hún fer fram í gegnum
Tix.is. Hópar hafa verið hvattir til að mæta og hafa gaman saman, t.d.
saumaklúbbar, vinnustaðir, árgangar og fleiri. Viðtökurnar hafa verið mjög
góðar og bendir hún þeim sem ætli að fjölmenna að hafa samband við
hana sem fyrst til að tryggja sér borð. /BÞ