Feykir - 20.04.2016, Page 28
28 15/2016
Páli Friðrikssyni var
boðinn ritstjórnastóllinn
eftir að hafa starfað
sem blaðamaður hjá
Feyki í þrjú ár og segist
ekki sjá eftir því að hafa
þegið boðið. Páll var
ritstjóri Feykis frá 2011-
2014. Páll er jafnframt
krossgátusmiður Feykis og
á heiðurinn af því að útbúa
nýja krossgátu í blaðið á
hverri viku.
-Það hafði þann aðdraganda að
Guðný Jóhannesdóttir hættir
sem ritstjóri og mér, sem hafði
starfað sem blaðamaður á Feyki
þrjú árin á undan, var boðinn
ritstjórnarstóllinn. Eftir örlitla
umhugsun tók ég boðinu og sé
ekki eftir því. Ég sinnti því starfi
í tvö ár eða þangað til ég snéri
mér að öðrum hlutum. Starfið
lagðist bara vel í mig. Ég hafði
gaman af því að skrifa en maður
var stundum pirraður yfir því
hvað tíminn leið hratt og hve
litlum tíma var hægt að eyða í
hvert verkefni. Blaðið varð að
fara í prentun á réttum tíma
hvernig sem á stóð og þess
vegna fór eitthvað frá manni
sem ekki var alveg eins og
maður vildi hafa það. Ég get mér
þess til að svona sé þetta yfir alla
blaðamannastéttina.
Gætir þú nefnt fyndna frétt
eða fyrirsögn sem þú manst
eftir? -Það er
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
nú örugglega hægt að finna
eitthvað þegar leitað er. Það
poppaði upp nú fyrir skemmstu
minning á Fésbókinni þar sem
ég hafði tekið viðtal við for-
stöðumenn meðferðarheimilis-
ins Háholts, þá Ara og Hinrik.
Það skondna var að á forsíðu var
mynd af þeim standandi fyrir
framan hænsnakofa í garðin-
um, en hann kom lítillega fyrir í
viðtalinu, og var eins og fyrir-
sögnin ætti við hann:
Meðferðarheimilið
Háholt í Skagafirði –
Heimili en ekki fangelsi
Svo man ég eftir einu atriði sem
mér fannst fyndið þegar ég sá
það í blaðinu. Það var í
matarþættinum og einhver
dýrindis uppskrift sem vinir
mínir í Ási í Hegranesi voru
með, þau Bjarney og Einar
Valur. Í uppskriftina voru notuð
ýmis hráefni og upptalning á
þeim eins og gengur. En það
skemmtilega var að síðustu tvö
hráefnin fóru í nýja línu og
stóðu eins og um myndatexta
væri að ræða. Undir myndinni
af þeim hjónum stóð skýrum
stöfum: Salt og pipar.
„Græðum“ mannlífið
með skemmtilegu blaði
og lifandi umræðu
Það var mjög eftirminnilegt
fyrsta sumarið mitt á Feyki
þegar hvítabirnirnir gengu á
land. Fyrst svokallaði Þverár-
fjalls ísbjörn og svo sá sem gerði
vart við sig á Hrauni á Skaga. Sá
fyrri var bara skotinn þegar færi
gafst en hinum
Forsetafrúin og skrípaleikurinn í
kringum hvítabirnina eftirminnilegast
Fyrrum ritstjórar rifja upp Feykisárin
Páll Friðriksson ritstjóri 2011-2014
Páll Friðriksson glottir út í bæði á ritstjórnarskrifstofu Feykis vorið 2012. MYND: ÓAB
síðari átti að reyna að bjarga á
einhvern hátt vegna pólitískrar
réttsýni íslenskra ráðamanna.
Að mínu mati var þar eintómur
skrípaleikur á ferðinni en ég
geri mér alveg grein fyrir því að
margir trúðu því og gera
kannski enn að hægt hefði verið
að bjarga honum og koma
honum „heim til sín“. Eins og
m a r g i r
muna var hann skotinn rétt
áður en hann kom sér í sjóinn.
Á staðinn voru mættir Þórunn
Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra og
ráðuneytismenn til að
fylgjast með björgun-
inni en vonbrigðin
leyndu sér ekki hjá
ráðherranum yfir
sorglegum endi.
Svo verð ég líka að nefna
forsetafrúna sem kom með
eiginmanni sínum í opinbera