Feykir - 20.04.2016, Qupperneq 29
15/2016 29
„Ég byrjaði á þessu eftir að ég
gerðist ritstjóri. Mig langaði
að vera með eina létta
afþreyingarsíðu aftarlega í
blaðinu. Þar átti m.a. að vera
spurning vikunnar, sudoku og
helst krossgáta. Þar sem ég
vissi ekki um neinn sem
smíðaði þær prófaði ég að
útbúa eina. Mér til mikillar
gleði tókst það ágætlega að
eigin mati,“ svarar Páll þegar
hann er spurður útí hvernig
hann byrjaði að gera
krossgátur fyrir Feyki. „Þetta
var nokkuð snúið fyrst en er
komið í betri farveg núna.
Erfiðast er að láta þetta ganga
upp í restina þegar fáir reitir
eru eftir.“
„Hugmyndirnar fæðast
við myndirnar sem ég vel.
Síðan þarf að útbúa stuttan
texta sem ég leiði í gegnum
reiti gátunnar og því næst
hefst prjónaskapurinn.
Hjálpartækin eru veforða-
bókin Snara og
Beygingarlýsing íslensks
nútímamáls á vef stofnunar
Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum.
Ómissandi fyrir alla sem
eitthvað vinna með íslenskt
mál,“ segir hann að lokum.
Palli er krossgátusmiður Feykis
Erfiðast er að láta þetta ganga upp í restina
heimsókn í Skagafjörð rétt á
undan hvítabjörnunum. Hún
var eins og drottning sem
heillaði alla hvar sem hún kom.
Ég var sendur í það verkefni að
taka mynd af þeim hjónum upp
á sjúkrahúsi þar sem þau voru
að húsvitja en endaði með því
að elta þau um allan Skaga-
fjörð.
Ég vil bara að lokum hvetja
alla til að gerast áskrifendur að
Feyki. Ég veit það af eigin raun
að þetta er ekki rekstur sem
hægt er að græða á en við íbúar
Norðurlands vestra „græðum“
mannlífið með skemmtilegu
blaði og lifandi umræðu um
okkur sjálf.
Skipulegt kaos á skrifborði Palla ritstjóra í byrjun september 2012. Þarna er Palli
ásamt Berglindi Þorsteinsdóttur blaðamanni sem nú ritstýrir Feyki. MYND: ÓAB
Afmæliskrossgátan
Verðlaunakrossgáta
Fern verðlaun verða veitt fyrir rétta lausn á krossgát-unni,
sem felur í sér stutta setningu. Lausnin skal sendast á
netfangið feykir@feykir.is eða í pósti á: Feykir, Borgarflöt
1, 550 Sauðárkróki, ekki síðar en 1. maí nk.
Vinningarnir eru:
Geisladiskur Karlakórsins Lóuþræla,
Senn kemur vor
Tveir miðar á Sæluvikuleikrit Leikfélags
Sauðárkróks, Fullkomið brúðkaup.
Geisladiskur Gísla Þórs Ólafssonar, Gillon.
Matreiðslubókin Undir Bláhimni.