Feykir - 20.04.2016, Side 30
30 15/2016
ensku. Auk þess er þetta fyrsta platan
mín sem inniheldur ekki ljóð eftir
Geirlaug Magnússon,“ segir Gísli þegar
hann er spurður nánar út í plötuna. Í
sérstöku uppáhaldi segir Gísli vera lagið
Sumar, sem varð til síðastliðið haust.
„Þá var eins og einskonar ritstífla hafi
brostið og eilítill nýr tónn kviknað. Enn
nýrri tónn kviknaði svo í desember og
hefur verið að þróast síðan, en það eru
lög sem eru hugsuð fyrir þarnæstu
plötu. Annars þykir mér einna
vænst um lögin Svo blindur og
Hin eina sanna.
En liggur meiri vinna á
bakvið sum lög en
önnur? -„Já, nema við
Sigfús erum orðnir
pínu sjóaðir í vinnu-
ferlinu og ákváðum
auk þess að hafa
þessa plötu frekar
lifandi og ekki mikið
útsetta. E.t.v. er mesta
vinnan fyrir mig sú
hvernig lög þróast frá því
að þau eru samin og þar til
ég hitti Sigfús til að taka þau
upp. Flest eru þau fullmótuð í
huga mér, þó sumar útsetningar
verði til í skapandi flæði okkar beggja.
Að loknum upptökum gengur svo Fúsi
frá hljóðblöndun og masteringu. Til
gamans má nefna að lagið My Special
Mine var reynt á íslensku og ég gerði
nokkra texta og söng einn þeirra inn, en
það vantaði mýktina sem var í upp-
runalega textanum og vinnudemóinu
þannig að við ákváðum að kýla á það á
ensku, en þannig var það samið sumarið
2011.“
Aðspurður um hvað sé eftirminni-
legast við gerð plötunnar svarar Gísli að
það sé að hvaða leyti hún virðist að-
gengilegri og auðveldari í vinnslu en
hinar á undan. „Einnig að lag við ljóð
Ingunnar Snædal, Komin til að vera,
nóttin, lifnaði einhvern veginn við er við
endurgerðum útsetninguna á því eftir
áramót. Svo var lagið Sumar tekið upp
þegar það var nýsamið en það hefur ekki
verið algengt hjá mér til þessa.“
Upplifir í æskudrauminn
Gísli Þór vinnur jafnframt að útgáfu
nýrrar ljóðabókar sem hann áætlar að
gefa út í haust og er að semja lög á
þarnæstu plötu. „Ekki er víst að ég efni
til tónleika í kjölfar útgáfunnar, en
Contalgen Funeral mun engu að síður
vera eitthvað viðloðandi næstu mán-
uðina, en við hittumst núna aðra hverja
helgi til að skoða og æfa nýtt efni.“
„Undanfarin tíu ár hefur verið gaman
að fá innsýn í þann draum sem hefur
fylgt mér síðan ég var barn, að hafa kost
á því að gefa út bækur og diska og öðlast
reynslu á því sviði. Á unglingsárunum
kviknaði svo ljóðaáhuginn, en í haust
eru tíu ár síðan mín fyrsta ljóðabók,
Harmonikkublús kom út. Það getur
verið að ég haldi upp á það afmæli með
einhverjum hætti. Það kemur nánar í
ljós í haust,“ segir Gísli að lokum.
Gillon er fáanleg hjá Gísla í gegnum netfagnið thorgillon@
gmail.com. Einnig í Skagfirðingabúð, auk helstu tónlistarbúða
syðra, Smekkleysu og 12 tónum.
Ný hljómplata lítur dagsins ljós -
Gillon eftir Gísla Þór Ólafsson
Hljómurinn áreynslulaus
og flest lögin í ballöðustíl
Tónlistarmaðurinn Gillon, í daglegu lífi
þekktur sem Gísli Þór Ólafsson, er að
gefa út sína fjórðu plötu en líkt og
tónlistarmaðurinn sjálfur ber
platan heitið Gillon. „Þessi plata
er poppaðri en tvær seinustu og
e.t.v. meira í ætt við fyrstu
plötuna Næturgárun. Til
gamans má geta þess að umslag
disksins prýðir ljósmynd af mér,
en það er í fyrsta skiptið sem
mynd af mér birtist á hljóm-
afurð,“ sagði Gísli Þór í gaman-
sömum tón þegar Feykir spurði
hann að hvaða leyti platan sé
frábrugðin fyrri útgáfum.
Að sögn Gísla hófst vinnsla plötunnar um
mánaðarmótin ágúst/september 2015 og
var að mestu lokið í byrjun október. Hún
var unnin með Sigfúsi Arnari Benedikts-
syni og tekin upp í stúdíóinu hans, Stúdíó
Benmen. „Platan var í salti frá október og
út árið og svo endurskoðuð í byrjun nýs
árs. Þá ákváðum við að breyta tveimur
lögum á henni, lögum við ljóð Ingunnar
Snædal, en hún á tvö ljóð á plötunni. Að
MYND:
HJALTI ÁRNA
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
öðru leyti eru lög og textar eftir mig og
efnið samið á tímabilinu 2010-2015,“
útskýrir hann.
„Hljómur er áreynslulaus og flest
lögin í ballöðustíl. Þá er lag á ensku á
plötunni sem heitir My Special Mine. Það
er í fyrsta skiptið sem ég gef út lag á