Feykir - 20.04.2016, Blaðsíða 31
15/2016 31
Jóhannes og Adda eru matgæðingar vikunnar
Að elda handahófskennt
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar getur
hugsað hlýlega til Feykis!
Tilvitnun vikunnar
Vandamálin eiga það til að stækka
við að velta sér upp úr þeim.
- Oddvitinn
Sudoku
„Oft er gott að prófa sig áfram
með eitthvað nýtt án þess að
fylgja uppskrift, og er svoleiðis
tilraunamennska oft stunduð
hér á bæ. Svoleiðis tilrauna-
mennska er einnig mjög
hentug til þess að nýta afganga
og mat sem er á síðasta
snúning, eða á það til að
gleymast aftast inn í ísskáp.
Hafa skal þó í huga að sumar
tilraunir mistakast og maður
þarf að sætta sig við það að
ágætis hluti afrakstursins getur
orðið frekar ósmekklegur,“
segja Jóhannes G. Þorsteinsson
og Arnfríður Hanna Hreins-
dóttir í Kollafossi í Miðfirði.
„Gott er því að stunda svona
skemmtilegheit með rétti sem
fara ekki til spillis þó eitthvað
mistakist. Eins og til dæmis vefjur,
þar sem hægt er að hafa margt
mismunandi í boði til að skella í
þær.
Áttu til popp? Jafnvel frá
kvöldinu áður? Settu það í
matvinnsluvélina og eitthvað
annað skemmtilegt með. Kiwi?
Avocado? Eitthvað sem þú
myndir ekki venjulega setja
saman. Smakkast það ekki nógu
vel? Taktu eitthvað annað
handahófskennt og bættu út í.
Einhver skemmtileg krydd.
Endurtaktu þangað til þetta
smakkast annaðhvort óhóflega
vel, eða ásættanlega. Ef þetta
smakkast óhóflega vel, til
hamingju, þú ert komin/n með
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
berglind@feykir.is
nýja uppskrift. Smakkast þetta
ásættanlega? Vel gert, þú getur
sett þetta á listann þinn fyrir
áframhaldandi tilraunastarfsemi.
Óætt? Þá væri best að strika þessa
áhugaverðu samblöndu hráefna
af listanum þínum. Það skemmti-
legasta er, að svona réttir bragðast
sjaldnast nákvæmlega eins þegar
maður reynir að endurskapa þá
síðar.“
AÐALRÉTTUR
Grænmetissúpa
Þessi súpa breytir um lit eftir því
hvaða grænmeti er til í ísskápnum
hverju sinni og í hvaða hlutföllum
það er, en bragðið er þó oftast á
svipuðum nótum. Það má nota
blöndu af fersku og frosnu
grænmeti.
1 dós kókosmjólk
2-3 bollar grænmetiskraftur
2-3 msk kókosolía
Eftirfarandi grænmeti endar
oftast í súpunni: Laukur,
hvítlaukur, sæt kartafla, gulrófa,
spínat, gulrætur.
Stöku sinnum: Grænkál, blómkál,
brokkolí, sellerý, kartöflur.
Aðferð: Skerið grænmetið fremur
gróft og steikið í kókosolíunni við
miðlungshita. Þegar það er farið
að mýkjast er kókosmjólkinni
hrært út í. Grænmetisteningarnir
eru leystir upp í heitu vatni og
bætt saman við. Ef frosið græn-
meti er notað, þá er því einnig
bætt út í og súpan síðan látin
malla við vægan hita í a.m.k. 20
mínútur, eða þar til grænmetið er
orðið mjög mjúkt. Súpunni er
skellt í blandara eða matvinnsluvél
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
og maukuð í örfáar sekúndur, eða
eftir smekk. Ef súpan þykir of
þykk, þá má bæta vatni út í.
EFTIRRÉTTUR
Döðlukaka
Þessa uppskrift rákumst við á
upprunalega á síðunni www.
nordicfoodliving.com og heppn-
ast hún alltaf svo vel að hér er hún
í nánast óbreyttri mynd. Í kök-
unni er hvorki viðbættur sykur
né hveiti (þó flestir sem hafa
smakkað hana eigi erfitt með að
trúa því).
100g dökkt súkkulaði
150g döðlur
200g hnetur / möndlur (t.d.
cashew hnetur, heslihnetur
og möndlur)
2 bananar
2 egg
1 tsk lyftiduft
¼ tsk salt
1 tsk vanilluduft (má sleppa)
Aðferð: Saxið súkkulaðið og 50g
af hnetunum. Malið restina af
hnetunum í matvinnsluvél þar til
blandan er orðin að mjöli. Hrær-
ið mjölinu saman við saxaða
súkkulaðið og hneturnar í stórri
skál. Blandið lyftidufti og salti
saman við. Setjið banana, döðlur,
egg og vanillu (ef notuð) í
matvinnsluvél og blandið þar til
áferðin er orðin mjúk og allt vel
blandað saman. Setjið blönduna
út í stóru skálina og hrærið öllu
vel saman. Bakað í 20-25sm
hringlaga formi (eða eldföstu
móti) við 180°C í U.Þ.B. 25
mínútur.
Berið kökuna fram volga með
þeyttum rjóma eða ís. Kakan er
einnig góð köld.
Verði ykkur að góðu!
Við skorum á Ástu Sveinsdóttur
á Fosshóli að koma með upp-
skriftir að einhverju ljúfmeti.
„Ég hef verið áskrifandi
en er það ekki lengur.“
Hrefna Þórarinsdóttir
„Já, ég hef verið áskrifandi.“
Hanna Eiríksson
Feykir spyr...
Ert þú eða
hefur verið
áskrifandi að
Feyki?
[SPURT Í
SKAGFIRÐINGABÚÐ
Á SAUÐÁRKRÓKI]
UMSJÓN kristin@feykir.is
„Ég er það ekki
en hef verið áskrifandi.“
Jón Daníel Jónsson
„Ég hef ekki verið áskrifandi
en maðurinn minn keypti
blaðið lengi.“
Sigurlaug Eiríksdóttir
Jóhannes og Adda. MYND: ÚR EINKASAFNI
Vissirðu að ...
... Mount Olympus Mons fjallið á Mars er þrisvar sinnum stærra en Everest?
... um eitt tonn af geimryki og öðru geimdrasli fellur til jarðar á hverjum degi?
... um það bil 40.000 Bandaríkjamenn slasa sig á klósettum árlega?
... algengasta nafnið í heiminum er Múhameð?
„Ég hef verið áskrifandi í
rúmlega ár.“
Agnar Búi Agnarsson