Landshagir - 01.11.2014, Page 225
225
Hagstofa Íslands tekur saman tölur um
menningarmál sem ýmsar sérhæfð-
ar stofnanir láta í té, lögaðilar, fyrirtæki,
samtök og stofnanir. Kvikmyndahúsa-
eigendur í Reykjavík, atvinnuleikhúsin
og söfn á landinu senda Hagstofu t.d.
tölur um gesti, fjölda sýninga, uppruna
kvikmynda og leikverka einu sinni á ári.
Hagstofan tekur einnig saman tölur um
útgefnar bækur og tímarit og efni þeirra,
svo og um ritakost, útlán og starfs-
menn bókasafna. Þá er tölum safnað um
starfsemi fjölmiðla og tölur birtar um
útsendingartíma og efni útvarps- og sjón-
varpsstöðva. Ennfremur tekur Hagstofan
saman tölur um mannfjöldann eftir
trúfélögum og breytingar á trúfélagsaðild.
Hver landsmaður fer einu sinni á ári í leikhús
Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar
leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleik-
félaga innanlands var 323 þúsund á leikári
2011/2012. Það jafngildir því að hver lands-
maður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu.
Áhorfendum á leikári 2011/2012 fjölgaði
um 22 þúsund frá því á leikárinu á undan,
eða um 8%. Á síðasta leikári voru færðar á
fjalirnar 150 uppfærslur á vegum leikhúsa,
leikhópa og leikfélaga, sem sýndar voru
1.603 sinnum.
Tímaritum fækkar
Gefin voru út 679 tímarit hér á landi árið
2013 en þeim fækkaði um 78 frá árinu á
undan. Flest tímarit voru gefin út árið
1998, alls 1.122. Blöðum fjölgaði um 1 milli
ára, fóru úr 74 árið 2012 í 75 árið 2013.
Aðsókn að söfnum
Aðsókn að söfnum og tengdri starfsemi á
árinu 2011 var ríflega 1,5 milljónir gesta.
Gestum fækkaði um fimm af hundraði frá
fyrra ári, en þá var gestafjöldinn í sögulegu
hámarki, ríflega 1,6 milljónir. Aðsókn að
söfnum og skyldri starfsemi er langsam-
lega mest á höfuðborgarsvæðinu, um 857
þúsund gestir, en það samsvarar um 56
prósentum af fjölda gesta safna árið 2011.
Aðsókn að söfnum og sýningum í öðrum
landshlutum var mun minni.
Sóknarbörn í Þjóðkirkjunni 75,1% mannfjöldans
Hinn 1. janúar 2014 voru sóknarbörn í
Þjóðkirkjunni 244.440 eða 75,1% mann-
fjöldans. Fyrir ári voru þau 744 fleiri eða
76,2% af mannfjöldanum. Kaþólska kirkjan
er næstfjölmennasta trúfélag landsins
með 11.454 sóknarbörn. Utan trúfélaga
voru 17.218 einstaklingar 1. janúar 2014,
en 20.959 voru í óskráðu trúfélagi eða með
ótilgreinda trúfélagsaðild.
9Menning og miðlunCulture and media
Sinfónían í Hörpu
© Ómar Óskarsson