Landshagir - 01.11.2014, Page 365
365
Hagstofa Íslands hóf samantekt hagtalna
um sjávarútveg árið 1999, bæði árstölur og
mánaðartölur, en áður hafði sú vinna verið
á hendi Fiskifélags Íslands og Fiskistofu.
Vigtarskýrslur
Vigtarskýrslur geyma upplýsingar um
aflakaup. Þar koma fram upplýsingar um
fisktegund, stærðarflokkun, gæðaflokkun,
magn og verð, svo og upplýsingar um
kaupandann. Ein skýrsla er gerð fyrir
hvert skip sem keypt er af og nær skýrslan
í flestum tilvikum yfir mánaðarviðskipti
fiskkaupanda, tilgreind eftir dögum.
Fiskkaupandi útbýr vigtarskýrsluna og
sendir Fiskistofu sem sér um skráningu
hennar.
Ráðstöfunarskýrslur
Ráðstöfunarskýrslur sýna afla sem er til
ráðstöfunar hvern mánuð og hvernig
honum er ráðstafað. Afli til ráðstöfunar
felst í birgðum í upphafi tímabils ásamt
fiskkaupum samkvæmt vigtarskýrslum.
Hann er annað hvort seldur unninn
eða óunninn. Aflamagn til ráðstöfunar
þarf þess vegna að vera jafnt því
aflamagni sem verkað er eða selt óunnið.
Ráðstöfunarskýrsla sýnir hvernig aflinn er
verkaður. Hins vegar er ekki hægt að sjá í
ráðstöfunarskýrslum hvaða afurðir verða
til hjá framleiðanda.
Í stuttu máli veita vigtarskýrslur
upplýsingar um allan afla upp úr sjó,
en ráðstöfunarskýrslur segja til um
vinnsluaðferð hans.
Fiskafli dróst saman um tæp 6% milli ára
Heildarafli íslenskra skipa árið 2013 nam
tæpum 1.363 þúsund tonnum og var 5,9%
eða 86 þúsund tonnum minni en árið 2012,
en þá var hann rúm 1.449 þúsund tonn.
Afli botnfisks jókst um 8,3% á milli ára,
þar af var aukning í þorskafla um rúm 31
þúsund tonn, ufsaafla um rúm 6 þúsund
tonn og einnig var aukning í karfaveiðum
um tæp 5 þúsund tonn. Samdráttur varð
í ýsuveiðum, rúmlega tvö þúsund tonn
milli ára og í steinbítsafla um 1.224 tonn.
Skel- og krabbadýraafli var svipaður og
árið áður, um 14 þúsund tonn. Veiði á
humri dróst saman um 9,9% milli ára en
veiði á rækju jókst um 3,2%. Samdráttur
var í heildarafla uppsjávarfisktegunda um
121.000 tonn, eða rúm 12% frá fyrra ári.
Síldarafli dróst saman í magni um 15,1%,
18SjávarútvegurFisheries
Djúpivogur
© Sigurður Bogi Sævarsson