Landshagir - 01.11.2014, Blaðsíða 441
441
Alþjóðlegar hagtölur eru sóttar til hagstofu
Evrópusambandsins (Eurostat), Sameinuðu
þjóðanna og Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar (OECD). Birtar eru tölur
um mannfjölda, efnahagsmál, útgjöld hins
opinbera og vinnumarkað. Tölunum er
ætlað að varpa ljósi á stöðu Íslands í alþjóð-
legu samhengi.
Mannfjöldi í heiminum rúmir 7 milljarðar
Mannfjöldi í heiminum er um 7.162
milljónir. Fjölmennasta heimsálfan er Asía,
en þar búa rúmlega fjórir milljarðar manna,
eða 60% jarðarbúa. Kína er fjölmennasta
land heims með tæpa 1,4 milljarða íbúa,
Indland er í öðru sæti með rúmlega 1,2
milljarða og Bandaríkin í þriðja sæti með
tæplega 314 milljónir íbúa.
Náttúrleg fólksfjölgun á Íslandi þriðja mesta
í Evrópu
Náttúrleg fólksfjölgun á Íslandi var 0,8%
árið 2012, sú fjórða mesta af ríkjum
Evrópu. Aðeins í Tyrklandi (1,2), Kósóvó
(1,1%) svo og Írlandi (0,9%) var fjölgunin
meiri. Þá var flutningsjöfnuður neikvæður
um 0,1% hér árið 2012, af öðrum Vestur
Evrópulöndum var hann neikvæðari í
Írlandi (-0,8%), Portúgal og Grikklandi
(-0,4%) og Spáni (-0,3%).
Mestur hagvöxtur í Chile
Hagvöxtur í fyrra var mestur í Chile (4,1%)
af OECD-ríkjunum árið 2013, í níu OECD-
ríkjum var neikvæður hagvöxtur og var
hann neikvæðastur í Grikklandi (-3,9%). Á
Íslandi var hagvöxtur 3,5% í fyrra, en það
er þriðji mesti hagvöxtur í ríkjum OECD.
Verðbólga var mest í Tyrklandi (7,5%),
næstmest í íslandi (3,9%). Er það langt yfir
meðaltali OECD-ríkja (1,6). Verðhjöðnun
var í tveimur OECD-ríkjum, Grikklandi
(-0,9%) og Sviss (-0,2%).
Opinber útgjöld til menntastofnana með þeim
hæstu á Íslandi
Opinber útgjöld til menntastofnana sem
hlutfall af vergri landsframleiðslu var 6,9%
á Íslandi árið 2011, aðeins í Danmörku
(7,5%) og Noregi (7,3%) er hlutfallið hærra
innan OECD. Lægst var hlutfallið í Japan
(3,6%).
24Alþjóðlegar hagtölurInternational statistics
Norrænu þjóðfánarnir
© Shutterstock