Landshagir - 01.11.2014, Blaðsíða 463
Ritröðin Hagskýrslur Íslands
The series Statistics of Iceland
Eftir að Hagstofa Íslands tók til starfa í ársbyrjun 1914 tók hún við
opinberri hagskýrslugerð hér á landi og hóf útgáfu Hagskýrslna
Íslands. Hagskýrslur Íslands voru framhald þeirra hagskýrslna sem
út voru gefnar á árunum 1858–1912. Fyrstu innlendu hagskýrslurn ar
voru gefnar út af Hinu íslenska bók mennta félagi á árunum 1858–
1875. Árin 1874–1898 voru hagskýrslur birtar í Stjórnar tíðindum,
í B-deildinni árin 1874–1881 en í C-deildinni árin 1882–1898. Á
þessu tímabili birt ust skýrslurnar ýmist hver undir sínu heiti eða
voru nefnd ar einu nafni Landshags skýrslur. Eftir 1898 var hætt
að birta þessar skýrslur sem hluta af C-deild Stjórnartíðinda.
Í stað þess voru þær gefnar út sérstaklega og þá undir heitinu
Landshags skýrslur fyrir Ísland. Þannig var útgáfunni háttað árin
1899–1913 en þá tóku Hagskýrslur Íslands við.
Fyrsta skýrslan í ritröðinni Hagskýrslur Íslands kom út árið 1914 og
voru það Verslunarskýrslur fyrir árið 1912. Með útkomu Verslunar-
skýrslna fyrir árið 1949, sem gefnar voru út árið 1951, var ákveðið að
hæfist nýr útgáfuflokkur, merktur II. Í upphaflega útgáfuflokknum
voru þá komar út 130 skýrslur, en tvær skýrslur voru óútkomnar og
birtust þær síðar sama ár og árið eftir, þ.e. 1952. Alls voru því 132
skýrslur í þessum fyrsta útgáfuflokki. Við gerð Verslunar skýrslna
1988 var broti og útliti Hagskýrslna Íslands breytt. Um leið var
ákveðið að þá hæfist þriðji útgáfu flokkurinn, merktur III, og kom
fyrsta skýrslan í þeim flokki út í ársbyrjun 1990. Í öðrum útgáfu-
flokki höfðu þá verið gefnar út 89 skýrslur. Ritið Landshagir 2014
er hundrað asta og sjöunda skýrslan í III. flokki Hagskýrslna Íslands
og jafnframt 328. skýrslan frá upphafi ritraðarinnar.
When Statistics Iceland was found ed in 1914 it became responsible for
the publication of official Icelandic statistics. Statistics Iceland pub-
lished its first issue in the series Statistics of Iceland later that same
year. This series was in effect a continuation of a previous and more
or less regular publication of Icelandic statistics that started in 1858.
In 1951 it was decided to continue the Statistics of Iceland in a new
series, labelled II. That series was maintained until the lay-out and
format of the publications was changed in early 1990 with the issue
of foreign trade statistics for 1988. That issue marked the beginning
of series III of Statistics of Iceland.
In the first series 132 statistical reports were published in the years
1914–1952. The second series published in 1951–1988 contains 89
reports. The present publication, Statistical Yearbook of Iceland
2014, is no. 107 in the third series, and no. 328 in the combined series
of Statistics of Iceland.
Eldri skýrslur
Previous publications
Árbók Hagstofu Íslands 1930. Reykjavík 1930–1931
Tölfræðihandbók. Hagskýrslur Íslands II, 40. Reykjavík 1967
Tölfræðihandbók 1974. Hagskýrslur Íslands II, 63. Reykjavík 1976.
Tölfræðihandbók 1984. Hagskýrslur Íslands II, 82. Reykjavík 1984.
Landshagir 1991. Hagskýrslur Íslands III, 5
Landshagir 1992. Hagskýrslur Íslands III, 8
Landshagir 1993. Hagskýrslur Íslands III, 15
Landshagir 1994. Hagskýrslur Íslands III, 21
Landshagir 1995. Hagskýrslur Íslands III, 32
Landshagir 1996. Hagskýrslur Íslands III, 39
Landshagir 1997. Hagskýrslur Íslands III, 47
Landshagir 1998. Hagskýrslur Íslands III, 59
Landshagir 1999. Hagskýrslur Íslands III, 65
Landshagir 2000. Hagskýrslur Íslands III, 77
Landshagir 2001. Hagskýrslur Íslands III, 82
Landshagir 2002. Hagskýrslur Íslands III, 88
Landshagir 2003. Hagskýrslur Íslands III, 96
Landshagir 2004. Hagskýrslur Íslands III, 97
Landshagir 2005. Hagskýrslur Íslands III, 98
Landshagir 2006. Hagskýrslur Íslands III, 99
Landshagir 2007. Hagskýrslur Íslands III, 100
Landshagir 2008. Hagskýrslur Íslands III, 101
Landshagir 2009. Hagskýrslur Íslands III, 102
Landshagir 2010. Hagskýrslur Íslands III, 103
Landshagir 2011. Hagskýrslur Íslands III, 104
Landshagir 2012. Hagskýrslur Íslands III, 105
Landshagir 2013. Hagskýrslur Íslands III, 106