Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Blaðsíða 6
6
Hvað eru brothættar byggðir?
... byggðarlög sem búið hafa við langvarandi fólksfækkun
Byggðamál
Þetta er verkefni um samfélagsþróunsem grundvölluð er á íbúalýðræði,“
segja þau Sigríður K. Þorgrímsdóttir og
Kristján Þ. Halldórsson, verkefnastjórar
Brothættra byggðahjáByggðastofnun. Í
greiningu Byggðastofnunar á „byggðar-
lögum sem búið hafa við langvarandi
fólksfækkun“ frá2008og2012 telstum
helmingursveitarfélagaílandinutilbrot-
hættrabyggða.Þarerbyggðmeðfólks-
fækkunsemnemura.m.k.15%á15ára
tímabili skilgreind sem brothætt byggð.
Verkefnið Brothættar byggðir hófst á
RaufarhöfnenKristjánÞ.Halldórssonvar
ráðinn verkefnisstjóri í mars 2013. Verk-
efniðnærídagtilsjösamfélaga,Raufar-
hafnar, Breiðdalshrepps, Skaftárhrepps,
Bíldudals,Kópaskersognærsveita,Gríms-
eyjar og Hríseyjar, sjá nánar www.bygg-
dastofnun.is/is/brothaettar-byggdir
Ástæður þess að byrjað var á Raufarhöfn
voru að aðstæður þar voru sérstaklega
aðkallandi, yfir 50% fólksfækkun á fimmtán
árum, hækkandi meðalaldur og samdráttur í
atvinnulífinu. Mörg samfélög á Íslandi hafa
liðið fyrir viðvarandi fólksfækkun en til þessa
hefur ekki tekist að snúa vörn í sókn.
„Með Brothættum byggðum er verið að
þróa aðferð til að taka á vandanum í sam-
starfi við íbúa hvers byggðarlags og við erum
að leita leiða til að ná sem bestum árangri,“
segir Kristján.
Sigríður kom að verkefninu með þekkingu
úr greiningarvinnunni þar sem hennar hlut-
verk var að heimsækja byggðirnar, hitta sveit-
arstjóra og íbúa. „Það skiptir máli að hafa
sjálf ekið ónýta vegi og upplifað lélegt net- og
símasamband. Með þessum heimsóknum
byggði ég bæði upp tengsl og öðlaðist þekk-
ingu á stöðu mála í samfélögunum,“ segir
Sigríður.
Ný nálgun og þátttaka íbúa
Aðspurð um hvort þau þekktu til svipaðra
verkefni erlendis frá, kom fram að farið hafði
verið í heimsókn til Noregs til að kynna sér þá
aðferðafræði sem þar er beitt til að efla brot-
hættar byggðir.
„Í Noregi er áherslan á atvinnulífið og fyr-
irtækin, okkar verkefni horfir meira til samfé-
lagsins alls, leggur áherslu á að byggja upp
jákvætt andrúmsloft, skapa umræðu og vinna
með hugmyndir heimamanna um nýsköpun
og samfélagsþróun,“ segja þau.
Í aðdraganda verkefna er skipuð verkefnis-
stjórn og í kjölfarið er haldið íbúaþing þar
sem hugmyndavinna fer fram og lögð eru
fyrstu drög að áherslum í verkefninu, sem
síðan er unnið áfram með í stefnumótun-
arvinnu og markmiðssetningu. Byggt á niður-
stöðum þessarar vinnu er ráðinn verkefnis-
stjóri sem vinnur áfram með heimamönnum
að þróun hugmynda, hvort sem þær tengjast
nýsköpun, umbótum á innviðum eða samfé-
lagsþróun.
Mikilvægt að þjálfa
skapandi hugsun
Sigríður og Kristján tóku þátt í tilraunakennslu
á vinnustofum á vegum FIERE verkefnisins
(www.fiereproject.eu) um nýsköpunarvirkni
og samfélagsþróun í lok október á síðasta ári.
Vinnustofan var skipulögð út frá þremur
meginþáttum þ.e. sköpunarkrafti og nýsköp-
un, greinandi hugsun og útsjónarsemi og að
lokum leiðtogahæfni og seiglu.
Sigríður K. Þorgrímsdóttir og Kristján Þ. Halldórsson, verkefnastjórar Brothættra byggða hjá Byggðastofnun.
Hringurinn er skemmtilegt fundarform. Mál brothættrar byggðar rædd í Skaftárhreppi.